AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Page 27
SAMKEPPNI UM SKIPULAG OG
FÉLAGSLEGAR EIGNARÍBÚÐIR í BORGAHVERFI
Undanfarin ár hafa verið uppi hugmyndir
um, að áhugavert væri að efna til hug-
myndasamkeppni um félagslegar eignar-
íbúðir (verkamannabústaði), þar sem
höfuðáhersla væri lögð á vandaðar og góðar
íbúðir, sem jafnframt væru hagkvæmar í framleiðslu.
A fundi Húsnæðisnefndar Reykjavíkur 19. júní 1991 var
samþykkt að efna til samkeppni um u.þ.b. 150 félagslegar
eignaríbúðir á svæði, sem Reykjavíkurborg hafði gefið
fyrirheit um í Borgahverfi.
Erindi var sent borgarráði, þar sem óskað var eftir samþykki
borgarráðs á slíkri samkeppni.
Erindi Húsnæðisnefndar var samþykkt á fundi borgarráðs
25. júní sl. og veturinn 1991 -1992 efndi síðan Húsnæðis-
nefnd Reykjavíkur í samvinnu við Borgarskipulag
Reykjavíkur og Arkitektafélag Islands til tveggja þrepa
samkeppni um félagslegar eignaríbúðir í Borgarholti II,
Borgahverfi.
DÓMNEFND SKIPUÐU:
Tilnefnd af Húsnæðisnefnd Reykjavíkur:
Hafdís Hafliðadóttir, arkitekt FAI, Borgarskipulagi
Reykjavíkur, formaður. Hilmar Guðlaugsson, múrari,
formaður Húsnæðisnefndar Reykjavíkur. Ríkarður
Steinbergsson, verkfræðingur, framkvæmdastjóri Hús-
næðisnefndar Reykjavíkur.
Tilnefnd af Arkitektafélagi íslands: Pétur H. Ármanns-
son, arkitekt FAÍ. Valdís Bjamadóttir, arkitekt FAÍ.
Ritari dómnefndar var Ágúst Jónsson, lögfræðingur,
skrifstofustjóri borgarverkfræðings og trúnaðarmaður
dómnefndar Guðlaugur Gauti Jónsson, arkitekt FAÍ.
TEGUND OG TILHÖGUN SAMKEPPNINNAR
Ákveðið var að hafa samkeppnina í tveimur þrepum. Fyrra
þrepið var opin hugmyndasamkeppni þar sem fyrst og
fremst var leitað eftir hugmyndum keppenda um skipulag
svæðisins, gerð bygginga og tengsl þeirra við opin svæði.
Við lok fyrra þreps var öllum keppendum sent álit
dómnefndar, en nafnleynd var ekki rofin fyrr en lokið
hafði verið við að dæma síðara þrep samkeppninnar.
Dómnefnd valdi 5 tillögur til þátttöku í síðara þrepi
samkeppninnar, og þar unnu þátttakendur þessara tillagna
frekar úr hugmyndum sínum með aðaláherslu á gæði og
gerð íbúða, svo og hagkvæmni.
LÝSING VERKEFNISINS
Viðfangsefni þessarar samkeppni var skipulag íbúða-
byggðar og hönnun félagslegra eignaríbúða fyrir
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur.
„Meginmarkmið er að ná fram sem bestri heildarlausn
viðfangsefnisins, þar sem höfuðáhersla verður lögð á gott
ytra umhverfi, vandaðar íbúðir og samspil þessara tveggja
þátta. Áhersla er jafnframt lögð á hagkvæmni í framleiðslu.
Þar sem útbjóðendur eru háðir fjármögnun úr félagslega
íbúðakerfinu, er óraunhæft að gera ráð fyrir einbýlishúsum
á svæðinu sökum kostnaðar. Keppendur eru hvattir til að
leita nýrra leiða í mótun þéttrar byggðar og þróun íbúða-
gerða. Miklu skiptir, að útfærsla opinna svæða og hálf-
opinberra(semi-public) rýmahvetjitiljákvæðrafélagslegra
samskipta og betra mannlífs".
FRAMKVÆMD SAMKEPPNINNAR OG DÓMUR
Skilafrestur samkeppnistillagna hafði verið ákveðinn 26.
febrúarl992, en að ósk keppenda var hann framlengdur til
11. mars. 38 tillögur bárust, þar af var ein tillagan dregin til
baka áður en störf dómnefndar hófust. Allar innsendar
tillögur uppfylltu skilyrði keppninnar.
I mati sínu á einstökum tillögum lagði dómnefnd til
grundvallar eftirfarandi sjónarmið, sem tilgreind voru í
keppnislýsingu:
1. Heildarlausn frá sjónarmiði skipulags og byggingar-
listar.
2. Hugkvæmni og nýsköpun í mótun þéttrar byggðar
og þróun íbúðagerða.
3. Aðlögun byggðar að staðháttum, náttúru og
umhverfi.
4. Fyrirkomulag útirýma, þ.m.t. tengsl leiksvæða við
íbúðir, aðkoma, fyrirkomulag bflastæða og
bflageymslna, göngutengsl, skjól og skugga-
myndun.
5. Gæði íbúða með tilliti til aðkomu, fyrirkomulags,
húsdýptar, birtu og útsýnis.
6. Hagkvæmni úrlausnar, m.a. með tilliti til kostnaðar
og uppbyggingar.
Margir tillöguhöfundar settu fram áhugaverðar hugmyndir,
sem orðið gætu verðugt framlag til þróunar húsgerða og
mótunar þéttrar byggðar hér á landi. Það olli dómnefnd þó
vonbrigðum hversu fáar tillögur settu fram heildarlausn,
sem uppfyllti væntingar um samspil nýsköpunar og
hagkvæmnisjónarmiða. Alls voru þrettán tillögur teknar
til nánari skoðunar. Af þeim valdi dómnefnd fimm tillögur
til frekari útfærslu og aðrar þrjár sem athyglisverðar:
Störfum dómnefndar við fyrra þrep samkeppninnar lauk
27. maí 1992 og sendi trúnaðarmaður öllum keppendum
álit hennar. Höfundum þeirra 5 tillagna, sem valdar höfðu
verið til áframhaldandi keppni, var send keppnislýsing
síðara þreps.
Við mat úrlausna á síðara þrepi lagði dómnefnd til
grundvallar sömu sjónarmið og í dómi fyrra þreps, þó með
aukinni áherslu á gæði íbúða og hagkvæmni úrlausna. Það
var samhljóða niðurstaða dómnefndar, að tvær af fimm
tillögum síðara þreps uppfy lltu á sannfærandi hátt markmið
samkeppninnar um samspil nýsköpunar og hagkvæmni í
heildarlausn. I hinum þremur tillögunum var að finna
áhugaverðar lausnir á einstökum þáttum viðfangsefnisins,
en að mati dómnefndar vantaði herslumun á að heildarlausn
þeirra uppfyllti væntingar um niðurstöðu síðara þreps.
Heildarverðlaununum að upphæð 5,5 millj. króna var
skipt jafnt á milli allra þátttakenda í síðara þrepi.