AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Qupperneq 41
Líkan, síðara þrep.
Grunnhugmynd.
3. - 5. SÆTI
Höfundar: Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, lands-
lagsarkitekt, og Ögmundur Skarphéðinsson,
arkitekt.
MARKMIÐ
I samræmi við forsendur aðal - og deiliskipulags, svo og
ákvæði keppnislýsinga eru eftirfarandi markmið einkum
höfð að leiðarljósi:
Að þróa sjálfstætt og afgerandi yfirbragð byggðar er eykur
aðdráttarafl svæðisins og styrkir borgarmyndina og tengslin
við nærliggjandi byggð og náttúruminjar.
Að þróa íbúðargerð er veitir íbúum ferska valkosti við
innri tilhögun og frágang íbúða.
Að skapa svigrúm til nýjunga á sviði byggingartækni er
leiðir til hagkvæmni og kemur til góða í senn fram
kvæmdar - og eignaraðiljum.
Að skapa virk tengsl milli útisvæða og innisvæða árið um
kring.
Að tryggja hlut gróðurs og ræktunar við skjólmyndun,
fegrun og útivist.
I tillögunni er þess freistað, að setja fram fjölbreytta
valkosti til að þjóna ofangreindum markmiðum og að
tengja þá saman í eina sterka heild. Leitast er við að sýna
fram á hvemig skipta megi framkvæmdum í byggingar-
áfanga, sem hver um sig er sjálfstæð eining, og að innra
jafnvægi tillögunnar raskist ekki, þó svo einum valkosti sé
hafnað eða öðrum bætt við.
Af Borgarholti og Gufunesási er víðsýni mikið og áhrif
umhverfis óvenju sterk. Klapparásinn, sem sker svæðið
þvert í gegn, gefur tóninn hvað varðar staðsetningu
byggðarinnar, jafnframt að skapa óvenju fjölbreytta
möguleika til útivistar. I tillögunni er tveimur þriðju
hlutum byggðarinnar skipað austan klapparássins en um
þriðjungi í slakkanum vestan hans.
Á austursvæðinu er byggðinni einkum komið fyrir á norð-
austurmörkum svæðisins, sem gerir kleift allt í senn: að
halda samfelldu opnu svæði til suðurs við meginbyggðina,
að mynda hlésvæði milli umferðar og byggðar - og loks að
búa henni tilkomumikinn og óvenjulegan forgrunn.
Byggingum er raðað í geisla með meginstefnu norð-
austur/ suð-vestur.
Þær eru brotnar upp í einingar og hliðrað til, með tilliti til
útsýnis og skjólmyndunar.
Hæðir by gginga á austurhluta svæðisins eru all t frá tveimur
til sex hæða. Hæstu byggingunum er komið fyrir við jaðar
svæðisins, til að takmarka skuggamyndun.
Á vestursvæðinu er byggðinni komið fyrir á svipaðan hátt
meðtilliti til staðhátta ogaðgengis. Þarerþéttleiki byggðar
tvær hæðir, ef frá er skilinn 5 hæða þyrping nyrst á
svæðinu. Staðsetning byggðarinnar í brekkunni tryggir
sem jafnast útsýni úr íbúðunum og möguleika á
skjólmyndun.
39