AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Blaðsíða 90
Tómasarhagi. Heimili Gísla.
umferðina. Því þó að margur maðurinn sé á móti bílum þá
er enginn sem vill vera án þeirra.
Arkitektar hafa fengið aukið svigrúm til að tengja íbúðir
við garða og gróður. Umferð hefur að verulegu leyti verið
aðskilin frá íbúðarhverfum, nema til og frá íveruhúsnæði.
Lögð hefur verið rækt við stóraukið skipulagsstarf um allt
land og er þar mikill skilningur hjá öllum sveitarstjómar-
mönnum. Stærsta byltingin í því að gera þetta sem best úr
garðivarðhérum 1960-65, þegaraðalskipulagReykjavíkur
var gert. Þá var virkilega litið til framtíðarinnar í skipu-
lagsmálum og það var mikið átak sem Reykjavíkurborg
gerði þá. Eg fylgdist með því starfi og tel það hafa verið
mjög mikið og þarft verk, sem unnið varþáfyrir framtíðina.”
Hveria telurður helstu vankanta á faainu í
dag?
„Það em ýmsir erfiðleikar og mörg ljón á veginum hjá
arkitektum sem eru að fást við að byggja upp bæina og
landið. Sérstaklega er nokkur þrándur í götu hjá því opin-
bera að það skipuleggur ekki nóg undirbúninginn að
byggingum. Þama þurfa ríkisvaldið og sveitarfélögin að
standa betur að verki. Þetta eru mest áberandi byggingar
hjá hverri þjóð og þar þarf að vanda til verks. Oft hefur vel
tekist til en því miður oft ekki nægilega vel. Það þarf að
gera heildaryfirlit yfir málið áður en byrjað er í alvöru að
teikna stórhýsi.
Arkitektar og verkfræðingar vinna vel og sam viskusamlega
að þessari þróun, og gera sitt besta. En þeir eru oft ekki
teknir með sem ráðgefandi, fyrr en á seinna stigi málsins
og þá getur það verið of seint. Nú er svo komið, að það er
sárasjaldan að eftirlitsmaður sé ráðinn í samráði við arkitekt,
og því síður að eftirlitsmaðurinn sé arkitekt, eða starfsmaður
hans á teiknistofunni. Það er mikil nauðsyn til þess, að
arkitekt geti fylgst vel með byggingarframkvæmdum
sjálfur, eða gegnum sinn eftirlitsmann. Hver sem hannar
hús þarf að geta fylgst vel með framkvæmdum, svo hægt
sé að grípa inn í framkvæmdir ef eitthvað fer á annan veg
en ætlað var.
Það er sérstök ástæða fyrir Arkitektafélagið að taka upp
samstarf við borg og ríki um framkvæmdina á eftirliti við
opinberar byggingar. Það er óþekkt annarsstaðar, að
öllum teikningum, útboðs- og verklýsingum sé skilað til
þriðja aðila eins og hér á sér stað. Eftir að arkitekt hefur
lokið við útboðsgögn taka sérstakar byggingardeildir við
öllum framkvæmdum og útboði. Ráðnir eru eftirlitsmenn
við framkvæmdir án þess að arkitektinn ráði þar nokkru
um.
Þama er mikilvægur hlekkur tekinn úr vinnu arkitektsins,
en það er að hafa beint samráð við verktaka og verkkaupa.
Nú er hann ekki sá milliliður lengur milli þessara aðila,
eins og talið er sjálfsagt. A þessu verður ekki ráðin bót
nema með samningi, og hann ætti að taka upp sem fyrst,
til að koma í veg fyrir að arkitektinn sé aðeins kallaður á
byggingarstað þegar einhver skaði er skeður, eins og nú á
sér stað. Þetta hef ég margbent á í félaginu og á öðrum
vettvangi. Hönnuðir, arkitektamir verða að fá að fylgjast
með framvindu verksins alveg til endaloka. Að öðru leyti
lendum við stöðugt í þessum vandræðum sem upp hafa
komið síðastliðin ár.“
HvaS finnst þér að stjórnmólamenn og
88