AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Page 21
Nú verða sílin að fara að vara sig!
á aö færa leik og leikföng á milli svæða. Á þann hátt
fær barnið meira svigrúm fyrir leikinn og hugmynda-
flug sitt.
Til að uppfylla leik barna á mismunandi aldri þarf að
huga að mismunandi þörfum þeirra hvað leikum-
hverfi varðar. Börnum er það nauðsynlegt að hreyfa
sig. Útileiksvæði á að bjóða upp á fjölbreytta mögu-
leika til hreyfileikja allan ársins hring. Börn hafa unun
af að klifra í trjám, hoppa milli steina, hlaupa og fela
sig bak við runna og stóra steina, veltast um á
grasflöt, vera í boltaleik og hringleikjum. Leiksvæði
á að fullnægja og ýta undir hreyfiþroska barna
þannig að barnið læri að samhæfa hreyfingar og
öðlist á þann hátt örugga stjórn á líkama sínum.
Þannig eykst hreyfigleði barnsins og stuðlar að líkam-
legri vellíðan þess.
Þegar börn leika sér gera þau tilraunir með raunveru-
leikann til að átta sig á honum. Börn hafa ríka þörf
fyrir að rannsaka umhverfi sitt. Með því að skapa
leiksvæði fyrir börn sem er tilbreytingaríkt og sem
líkast óspilltri náttúru fáum við þeim möguleika til að
kanna ýmis ferli hennar og fyrirbæri, skoða þau og
sjá tengsl milli þeirra og draga ályktanir.
Leikurinn er heill ævintýraheimur fyrir barnið. Börnum
þykir gaman að leika sér í óspilltri náttúru þar sem
tína má blóm, klifra í trjám, skoða fugla, fiska, steina,
tína orma, drullumalla, búa til stíflur og svona mætti
lengi telja.Heimur leiksins er fullur af möguleikum,
allt getur gerst, allt getur breyst.
Börn vita ekkert skemmtilegra en að leika sér. Þau
börn eru hamingjusöm sem fá útrás fyrir þessa lífs-
tjáningu sína.
Mikilvægt er fyrir þroska barnsins að uppalandi hafi
opinn hug og næmni á það sem er að gerast hjá
barninu. Að mæta leik barnsins mun ekki bara byggja
upp möguleika barnsins til að gleðjast heldur einnig
stuðla að betur skapandi og sveigjanlegri eiginleikum
þess. Viðurkennig á leik og sköpun örvar þroska
barnsins og veitir því öryggi og lífsfyllingu.eða eins
og ítalski uppeldisfrömuðurinn Loris Malaguzzi segir:
„Börnin eru gullnáma, en hlutverk fullorðinna er að
fá gullið til að glóa.” ■
19