AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Qupperneq 34
Við afhendingu vöru skai fylgja gátlisti og leiðbein-
ingarfyrir uppsetningu. Einnig skal kveðið á um skoð-
un og úttekt að lokinni uppsetningu. Framleiðandi
#skal láta fylgja upplýsingar um eftirlit og viðhald sem
nota skal við rekstur leiksvæðisins.
í þessum staðli eiga kröfur jafnt við um leiktæki sem
yfirborðsefni.
9 Rekstur.
Staðallinn inniheldur meðmæli fyrir rekstur á öruggu
leiksvæði og mælt er með því að rekstraraðili fylgi
leiðbeiningum framleiðanda. Einnig ber að skipu-
leggja stjórn öryggismála á leikvöllum.
Sérstaklega er bent á það að starfsfólk sé upplýst
og þjálfað fyrir þau öryggisverkefni sem staðallinn
tiltekur. Á leiksvæðinu skal setja upp skilti sem sýnir
stystu leið til þess að kalla á neyðarhjálp (næsta
síma). Sú leið skal vera aðgengileg og hættulaus
fyrir umferð og frágengin í samræmi við lög og reglur
á hverjum stað. Neyðaráætlun um viðbrögð við
slysum skal vera tiltæk. Forstöðumaður skal skrá allar
upplýsingar um slys sem upp koma. Skráningin skal
innihalda dagsetningu, aldur hins slasaða, búnað
sem snerti atvikið, lýsingu á slysinu, meiðsli og við-
brögð við slysinu.
EN 1177, yfirborðsefni, kröfur um öryggi og prófunar-
aðferðir.
Gildissviðl 177 er að skilgreina almennar kröfur um
yfirborð leiksvæða og sérstakar kröfur til undirlags
þar sem höggdempun er nauðsynleg. Skilgreind eru
atriði sem taka verður tillit til þegar velja á yfirborð á
leiksvæði og prófunaraðferð sem mælir höggdemp-
un. Prófunaraðferðin mælir mestu leyfilega fallhæð
og eiginleika efna til þess að draga úr hugsanlegum
höfuðáverkum af notkun leiktækja.
Staðallinn fyrir yfirborðsefni og undirlag er afar þýð-
ingarmikill þar sem flest slys á barnaleikvöllum eru
fall af ýmsu tagi. Hér á landi eru margar slysagildrur
á leikvöllum vegna ófullnægjandi yfirborðs og í sum-
um tilvikum á þetta líka við um íþróttavelli.
Helstu kröfur eru þær að yfirborð skal vera jafnt og
laust við hættu frá ójöfnum. Engir hlutar á yfirborðinu
skulu vera með hvössum brúnum né hættulegum út-
standandi hlutum. Yfirborðsefnið skal ekki innihalda
nein hættuleg eiturefni.
Seljenduryfirborðsefnafyrir leiksvæði skulu láta fylgja
því upplýsingar um eftirfarandi:
í fyrsta lagi áætlaðan endingartíma efnis miðað við
að leiðbeiningum um lögn og viðhald sé fylgt. í öðru
lagi brunatæknilega eiginleika miðað við viðurkennd-
ar prófunarreglur þar um. í þriðja lagi skulu fylgja
efninu nauðsynlegar leiðbeiningar um rétta lögn,
viðhald og eftirlit.
Merkja skal efnið framleiðanda eða seljanda eða láta
fylgja skriflegar upplýsingar um þá.
Sérstök efni eru ætluð til varnar höggum sem börn
verða fyrir við fall. Eiginleiki undirlags er skilgreindur
sem HlC-tala (HIC= Head Injury Criteria) og þess er
krafist að hún fari hvergi yfir 1000. Efni eru mismun-
andi vel dempandi og henta því misvel miðað við
mismunandi fallhæð. Staðallinn skilgreinir prófunar-
aðferð sem sker úr fyrir hvaða fallhæð ákveðið undir-
lag getur gengið.
Fyrir fallhæð undir 60 cm eru engar sérstakar kröfur
gerðar um dempandi undirlag en fyrir leiktæki með
fallhæð þar yfir er skilgreint hugtakið „fallflötur” sem
skal þakinn dempandi undirlagi.
Sem undirlag fyrir fallhæð undir 100 cm má við góðar
aðstæður nota hefðbundin dempandi efni án sér-
stakrar prófunar. Hér er um að ræða gras eða torf,
myldinn jarðveg eða því um líkt. í öllum öðrum tilvik-
um skal nota viðurkennt efni í fallflötinn miðað við
prófanir eftir þessum staðli.
Þegar lausbundið (mulið) efni er notað í undirlag skal
til viðbótar við lágmarksþykkt bæta 200 mm til þess
að vega upp tilfærslur í efninu við notkun. í athuga-
semd sem fylgir er bent á það að eiginleikar yfiborðs-
efnisins séu mjög háðir ytri skilyrðum svo sem:
veðurfari, staðsetningu leiksvæðisins, rekstrar-
fyrirkomulagi og viðhaldi. Seljendur viðurkennds yfir-
borðsefnis verði því að vera tilbúnir að gera grein
fyrirslíku. ■
LEIÐRÉTTING frá Oddi Hermannssyni
vegna greinar sem hann skrifaði um Skrúð í
l.tbl. AVS 1994 : „Þau mistök áttu sér stað í
lokaorðum um garðinn Skrúð í 1 ,tb. 1994 að þar fórst
fyrir að geta þess að megin styrktaraðailar
uppbyggingar Skrúðs hafa verið Fjárlaganefnd
Alþingis og Landvernd. Greinarhöfundur vill f.h.
framkvæmdarnefndar Skrúðs koma á framfæri
sérstökum þökkum til þessara aðila og beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.1' ■
32