AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Side 33
Súluritið sýnir samanburð á ýmsum efnum undir leiktækjum
og fallhæð barna á þau án heilahristings.
Heimild: The Franklin Institute research Laboratories U.S.A
ekki framleidd sem slík. Staðallinn fyrir leiktæki nær
ekki yfir leikföng eins og þau eru skilgreind í tilskipun
Evrópusambandsins. en gildandi staðall fyrir leikföng
er EN 71.
Öryggiskröfur staðalsins ná til skipulags leiksvæða
barna en gildir þó eingöngu um kröfur varðandi leik-
tækin ásamt undirstöðum og undirlagi búnaðarins.
Staðallinn gerir kröfur til verndunar notenda frá
ófyrirsjáanlegri áhættu sé leiktækið notað eins og til
er ætlast eða í samræmi við það sem búast má við
og gera ráð fyrir.
í þeim drögum sem voru til umsagnar í vor voru þrjár
athugasemdir við gildissvið staðalsins. í þeirri fyrstu
þeirra segir að gera verði ráð fyrir að börn yngri en
þriggja ára séu undir umsjón (fullorðinna?) Þegar
þau noti leiktækin sem um ræðir. Hugsanlega sé
nauðsynlegt að setja fram viðbótarkröfur vegna
leiktækja ætluðum þeim aldurshópi enda séu slík
leiktæki greinilega merkt!
í annarri athugasemd er skýrt tekið fram að kröfur
séu ekki settar fram til þess að hefta leikþörf barnsins.
Ekki skal draga úr þætti leiktækja í þroskaferli barns-
ins né mikilvægi leiktækja við þjálfun og kennslu.
í þriðja lagi fylgir athugasemd þar sem segir að ekki
sé ætlunin að hafa áhrif á mikilvæga hugmyndafræði
um gildi leikja hvað varðar samsetningu tækja, hrynj-
anda leiksins, örvun snertiskyns, félagslega hegðun
eða annað þess háttar.
í almennum kröfum er hæsta leyfilega hæð þar sem
barn getur staðið upp á, svo nefnd fallhæð, 3 metrar,
en hæsti punktur á leiktæki er 4 metrar. Börn mega
því ekki komast upp á hæsta topp leiktækis ef hann
er yfir 3 metra. Hæðirnar eru mældar lóðrétt frá toppi
niður á lárétt undirlag.
Sérákvæði vegna einstakra leiktækja eru í köflum
2-6:
2 Rólur, sérkröfur um öryggi og prófunaraðferðir.
3 Rennibrautir, sérkröfur um öryggi og prófunar-
aðferðir.
4 Hlaupakettir, sérkröfur um öryggi og prófunar-
aðferðir.
5 Hringekjur, sérkröfur um öryggi og prófunar-
aðferðir.
6 Rugguhestar, sérkröfur um öryggi og prófunarað-
ferðir.
Almenn atriði er varða meðferð og notkun leik-
tækja eru í köflum 7-9:
7 Skipulag leiksvæðis (“Lay out”).
8 Uppsetning, eftirlit og viðhald.
Skilgreinir kröfur til uppsetningar, eftirlits og viðhalds
til tryggingar samfellu í notkun og öryggi. Einnig
eru kröfur um upplýsingar frá framleiðanda sem skulu
vera á tungumáli (tungumálum) viðkomandi lands.
Framleiðanda ber skylda til að láta í té upplýsingar
um öryggiskröfur fyrir uppsetningu búnaðarins áður
en pöntun er staðest, t.d. rýmisþörf, undirlag o.fl.
31