AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Side 59

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Side 59
MIÐBÆR REYKJAVÍKUR SUMARIÐ1993 Sumarið 1993 unnu nokkrir nemar á háskólastigi verkefni um Miðbæ Reykjavíkur, þ.e. svæðið frá Aðalstræti að Hlemmi en það svæði er skilgreint sem starfssvæði þróunarfélags Reykjavíkur. Borgar- skipulag Reykjavíkur sá um framkvæmd verkefn- anna í náinni samvinnu við þróunarfélagið. Niður- stöður verkefnanna munu nýtast við skipulagsvinnu í miðbænum og auk þess gefa fyrirtækja- og versl- unareigendum sem og öðrum greinargóðar upplýs- ingar um hann. Borgarskipulag Reykjavíkur hefur gefið út niðurstöður verkefnanna í þremur skýrslum: Miðbærinn. Fjöldi, ferðir og erindi gangandi vegfar- enda sumarið 1993. Miðbærinn. Viðhorf borgarbúatil miðbæjarins sum- arið 1993. Miðbærinn. Könnun á notkun húsnæðis sumarið 1993. í fyrstu skýrslunni er gerð grein fyrir talningu á gangandi vegfarendum í miðbænum og könnun á aldri þeirra, kyni, búsetu, erindum þeirra í miðbæn- um, ferðamáta og tíðni ferða. í sömu skýrslu er sagt frá athugun á hvort farþegar tveggja skemmtiferða- skipa nýttu daginn í Reykjavík. í annarri skýrslunni eru birtar niðurstöður úr könnun á viðhorfum gang- andi vegfarenda í miðbænum og úrtaks íbúa í Breið- holti, Árbæjarhverfum og Grafarvogi til miðbæjarins og í þeirri þriðju eru birtar niðurstöður frá skráningu á notkun húsnæðis í miðbænum. Öll eru þessi verkefni tengd. Fjöldi gangandi fólks í miðbænum skiptir máli fyrir líflegt og áhugavert umhverfi hans og arðvænlegt umhverfi viðskipta og þjónustu. Það er einnig forvitnilegt að vita hve oft fólk kemur í miðbæinn og hvað það hefur þangað að sækja. Ef starfsemi þar er ekki fjölbreytt og “rétt” blönduð laðar hún ekki að sér viðskiptavini og þar með aukna umferð gangandi fólks. Þessari umferð er hægt að stýra með markvissri staðsetningu viðskipta- og þjónustufyrirtækja. Fjöldi ferðamanna sem dvelur í miðbænum skiptir einnig máli fyrir mannlífið þar og afkomu verslana og fyrirtækja. f könnunum á viðhorfum borgarbúa til miðbæjarins kemur m.a. fram hvaða sess hann skipar í hugum þeirra, hvað þeir telja að sé jákvætt við hann og hvað neikvætt. Þessi vitneskja kemur þeim sem vinna að framgangi miðbæjarinstil góða, bæði hvernig til hefur tekist með það sem hefur verið gert og hvert skuli stefna að áframhaldandi uppbyggingu hans. Jafn- framt því sem nákvæmar upplýsingar um notkun húsnæðis í miðbænum eru mikilvægur gagnabanki munu upplýsingar um autt og eða illa nýtt húsnæði þar nýtast við tilraunaverkefnið “íbúð á efri hæð” sem er nú hafið og felur í sér að breyta fyrrnefndu húsnæði í íbúðir þar sem það er mögulegt. Aukinn fjöldi íbúða í miðbænum mun aftur stuðla að fjöl- breyttara og auðugra mannlífi þar og auknu öryggi þar sem fleiri verða á ferli. TALNING Á GANGANDI VEGFARENDUM Gangandi vegfarendur voru taldir í sex daga, fimm virka daga og einn „langan” laugardag, á fjórum stöðum í miðbænum, Austurstræti 20, Bankastræti 8 og Laugavegi 30 og 84. Talið var á tímabilinu 27. júlí til 20. ágúst 1993 frákl. 9.15 til 18.00 virku dagana en frá 10.00 til 17.00 á laugardeginum. Þar sem gert var ráð fyrir að veður gæti haft áhrif á ferðir fólks í miðbæinn, varveðurlýsing skráð með reglulegu milli- bili talningardagana. Helstu niðurstöður af talningu vegfarenda benda til að fleiri gangandi vegfarendur séu á ferli í Austur- stræti og Bankastræti en Laugavegi nema þegar haldinn er „langur laugardagur” en þá voru fleiri á 57 GUÐLAUGSDOTTIR SKIPULAGSFRÆÐINGUR

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.