AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Side 71

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Side 71
viðvörunarkerfi sem aðvarar stjórnendurframkvæm- dar áður en skaðinn er skeður. Með eftirliti er hægt að fylgjast með árangri framsettra mótvægisaðgerða og framgangi framkvæmdar svo hægt verði að grípa strax í taumana ef nauðsyn krefur. Einnig má með eftirliti öðlast meiri þekkingu á hagnýtri spádóms- tækni um árangur þeirra mótvægisráðstafana sem beitt er og efla þekkingu á umhverfisröskun ýmissa framkvæmdaþátta á tiltekið umhverfi. Sú þekking kæmi umhverfismati beint til góða með minni óvissu og skapar skilning á hvernig nýta má hagkvæmar þá tækni og auðlindir sem völ er á. Athugun á nákvæmni og árangri umhverfismats hefur verið kölluð endurskoðun við framkvæmdalok (post- auditing), þótt engin ein viðurkennd skilgreining sé til í umhverfisvísindum. Megintilgangur þessarar endurskoðunar er að rannsaka virkni aðferða, laga og stjórnsýslu er við koma umhverfismati og til að vera hvatning til úrbóta. Hæfni umhverfisröskunar- spáa og mótvægisaðgerða gæti t.d. verið rannsókn- arefni og/eða skilvirkni stjórnunaraðferða við um- hverfismat. Einnig mætti leggja mat á gagnsemi um- hverfismats og kanna hvort ferlið uppsker traustar, viðeigandi og skýrar upplýsingar varðandi umhverfis- áhrif framkvæmda og það sem af þeim leiðir. Venju- lega hafa háskólar eða aðrar rannsóknarstofnanir þetta hlutverk með höndum. II. LÖG OG REGLUGERÐ UM MAT Á UMHVERF- ISÁHRIFUM Lögin og nýtilkomin reglugerð um mat á umhverfis- áhrifum setja fram dæmigert fyrstu-kynslóðar um- hverfismatsferli sem samanstendur af ákvæðum um afstúkun framkvæmda, mótvægisaðgerðir, upplýs- ingagjöf um framkvæmd, umsagnarrétt almennings eftir skil á upplýsingum framkvæmdaraðila og ákvörðunartöku, en án umfangsstigs, snemmbærrar almennrar þátttöku, formlegrar matsskýrslu (nema við aðra athugun) eða vöktunar. Ákvæðin munu vafa- laust leiða til meiri formfestu við umsýslu umhverfis- röskunar fyrirhugaðra framkvæmda og sér í lagi kunna þau að þrengja athafnafrelsi stofnana á borð vió Vegagerð og Landsvirkjun vegna ákvæða um skyldumat á umhverfisáhrifum nýrra vegastæða og virkjana. í lögunum og í viðauka við þau eru skrár yfir fram- kvæmdir sem ávallt skulu háðar umhverfismati og er eðli og stærð framkvæmda mælikvarðinn fyrir báðar skrárnar. Viðauki laganna er tekinn inn óbreytt- ur frá Viðauka I í tilskipun EBE nr. 85/337 (sem ísland hefur skuldbundið sig til að uppfylla með tilkomu Evrópska efnahagssvæðisins, EES). Aðrar fram- kvæmdir sem líklegar eru til að valda mestri umhverf- isröskun hérlendis eru tilteknar í lögunum sjálfum s.s. virkjanir, háspennulínur, vegaframkvæmdir, efnis- námur, sorpeyðingarstöðvar, stál/álver o.fl. ( reglu- gerðinni (Viðauka II) eru einnig skráðarframkvæmdir sem kunna að hafa umtalsverða röskun í för með sér og þ.a.l. gætu þurft að fara í mat þegar svo ber undir. þau efnisatriði sem hafa bertil hliðsjónar þegar metið er hvort framkvæmd kunni að hafa umtalsverð áhrif verða sett fram í leiðsögureglum. Með því ákvæði er afstúkun í aðferðafræði umhverfismats fest í sessi. þar sem leiðsögureglurnar eru ekki tilbúnar er óljóst hvort efnisatriði fyrir afstúkun verða almenns eðlis eða hvort þær munu gefa vísbendingar/mæli- kvarða hvenær mats er þörf fyrir hvern framkvæmda- flokk í Viðauka II. Umhverfisráðherra getur sett í reglugerð að aðrar framkvæmdir skuli háðar mati á umhverfisáhrifum í samræmi við alþjóðasamninga, sem og ákvarðað um hvort aðrar framkvæmdir en þær sem tilteknar eru í lögunum verði háðar mati. í því síðastnefnda skal álit skipulagsstjóra liggja fyrir og ráðherra er einnig skylt að leita umsagnar framkvæmdaraðila, leyfis- veitanda og hlutaðeigandi sveitarstjórna áður en ákvörðun er tekin um hvort framkvæmdin verði mats- skyld. Þetta ákvæði mun hafa verið sett fram til að sýna stjórnarfarslegan vilja til að stækka þann flokk framkvæmda sem lögin ná til, þar sem mögulegt er að ákveða framkvæmdir í mat með reglugerðar- breytingu án þess að fjalla um það áður á Alþingi. Hér mun einkum hafa verið litið til framkvæmdaflokka í Viðauka II í tilskipun EBE (sjá Viðauka II í reglu- gerðinni) og að láta lögin ná til uppsöfnunar- og margfeldisáhrifa margra smárra framkvæmda innan sama svæðis, þar sem engin ein tiltekin framkvæmd yrði háð mati. í reglugerðinni er almenningi veitt heimild til að til- kynna framkvæmd til ráðherra en hins vegar er al- menningi ekki veittur umsagnarréttur við afstúkun framkvæmda. Eðli málsins samkvæmt ætti almenn- ingur að fá að sitja við sama borð og framkvæmdar- aðili. Margfeldis- og uppsöfnunaráhrifum eru hins vegar ekki gerð sérstök skil þó vera kunni að í leiðsögureglum verði mælikvarði sem höfði til þétt- leika frarmkvæmda. 69

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.