AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Qupperneq 16
bygging vakið athygli fyrir skjannabjart yfirbragð
og skemmtilegan svip af aðalbyggingu Kennara-
háskólans. Einnig eru í byggingu stúdentagarðar
austan og ofan við Háteigskirkju í túnfæti Sjó-
mannaskólans. Ennfremur hefur verið byggt við
Háteigsskóla sem áður var Æfingaskóli Kennara-
háskóla íslands.
Umfangsmestu áætlanir um breytingar sam-
kvæmt deiliskipulaginu eru fimm stórar byggingar
við Kennaraháskólann. Fjórar þeirra eiga sam-
kvæmt skipulaginu að rísa austan og innan við
aðalbygginguna frá 1962 og sú fimmta við Stakka-
hlíð sunnan við bygginguna frá 1983. Við austur-
enda aðalbyggingar Kennaraháskólans er nú að
rísa fyrsta húsið af þessum fimm. Framkvæmdir
við húsið hófust í ársbyrjun 2001 og áætluð verk-
lok eru haustið 2002. Nýja húsið gengur þvert á
gamla húsið og situr einni hæð dýpra í jörð enda
lækkar land til austurs á þessum stað. Dyr vísa í
norður og um þær verður aðalinngangur skólans.
Batteríið hannar nýbygginguna undir forystu
Sigurðar Einarssonar, Jóns Ólafs Ólafssonar og
Gunnars Ottósonar og hefur við hönnunina lagt
áherslu á góð tengsl við aðalbyggingu með eftir-
tektarverðum hætti. Lengd hússins og breidd
stokkanna tveggja sem mynda aðra og þriðju hæð
svara til lengdar og breiddar gamla hússins.
Grönn form og langar línur, björt sjónsteypa, kop-
arslegnir fyrirlestrarsalir og mikið birtuspil endur-
spegla eldri bygginguna. Tekk og veggflísar munu
setja svip á húsið og gler leikur óvenju stórt hlut-
verk. Eftir húsinu miðju gengur glerklædd gjá frá
norðri til suðurs og að austan, sunnan og norðan
eru heilar húshliðar og gaflar úr gleri. Að austan-
verðu eru hliðar bornar uppi af skástoðum úr stáli
innan við gler sem spannar tvær hæðir. í gjánni
verður glerlistaverk fellt inn í arkitektúrinn auk lit-
brigða á veggflísum og gleri á húsinu utanverðu,
allt eftir listamanninn Kees Visser í náinni sam-
vinnu við arkitekta.
Það er ekki bara gler og framsækin bygginga-
tækni sem marka nýja húsinu sérstöðu, það á
einnig við um þá starfsemi sem þar mun fara fram.
í húsinu verður Menntasmiðja sem sameinar á
nýstárlegan hátt starfsemi háskólabókasafns,
gagnasmiðju með búnaði til gagnagerðar og
tæknimiðlunar og kennslumiðstöðvar sem fjallar
um námsgögn og kennsluhætti í skólastarfi. í hús-
inu verða meðal annars fjarkennslustofur, hljóðver
og tölvuver, kennslustofur og þrír vel búnir fyrir-
lestrarsalir með um 70, 200 og 300 sætum. Víða
erlendis leysa upplýsingamiðstöðvar af þessu tagi
hefðbundin bókasöfn af hólmi og nú leggur Kenn-
araháskólinn sem lengi hefur einn íslenskra há-
skóla átt á gagnasmiðju og kennslumiðstöð að
skipa fyrstur íslenskra skóla út á þessa braut.
Þegar gengið er inn í húsið er komið inn á mið-
hæð sem liggur í sama fleti og jarðhæð gamla
hússins. Þar verða fyrirlestrarsalir á hægri hönd,
gagnasmiðja og kerfisþjónusta á vinstri hönd en
um stiga og gjá er opið niður í stórt bókasafn með
afgreiðslusvæði, vinnusvæðum starfsmanna,
safnkosti, vinnuherbergjum og lessvæðum fyrir
gesti, sýningarsvæði og sérbúinni kennslustofu. í
smiðjunni á miðhæð verður tækjabúnaður til
myndvinnslu, klippibúnaður, upptökuklefi og
sveigjanleg vinnurými til tölvuvinnslu og gagna-
14