AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Side 17

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Side 17
gerðar ásamt afgreiðslu, vinnuherbergjum og kerfisþjónustu. Á efstu hæð verða svo lessalir, tölvuver, stórar stofur og smáar ásamt sérbúnum kennslustofum til fjarkennslu með myndsend- ingum. Við hönnunina var mikil áhersla lögð á tæknileg- an sveigjanleika, greiðar lagnaleiðir til hvers konar samskipta ásamt þráðlausu neti um allt skóla- svæðið. Með samvinnu við Nýherja hefur verið tryggt að þetta öfluga net tengist þroskaþjálfaskor skólans við Skipholt, list- og verkgreinahúsi skól- ans á horni Skipholts og Bolholts, miðstöð sí- menntunar á Varmalandi og íþróttaskor á Laugar- vatni þar sem skólinn hefur á að skipa miklum íþróttamannvirkjum og stendur meðal annars að sérstakri þjónustumiðstöð í samvinnu við íþrótta- hreyfinguna. Nýbyggingin á Rauðarárholti gegnir miðstöðvar- hlutverki í skipulagi skólans og gefur tóninn um frekari þróun á skólasvæðinu. Arkitektúr hennar með sín grönnu form og löngu línur kallast á við aðalbygginguna frá 1962, stúdentagarðana nýju, nálægar kirkjur og tíguleg form Sjómannaskólans. Um leið myndar hún andstæðu við þyngri bygging- ar á svæðinu. í tillögu hönnuða að húsinu var meðal annars gefið til kynna hvernig leika mætti þetta stef við frekari stækkun skólans. Hvenær næst verður byggt liggur alls ekki fyrir en aðsókn fer vaxandi á mörgum brautum í grunn- og fram- haldsnámi, rannsóknir eflast og námsframboð eykst. í því Ijósi má telja víst að starfsemin knýi á um frekari byggingarframkvæmdir fyrr en síðar. B. Berker rofar og kerfi. B.3 Eðalálrammar svartar miðjur B.1 Margir litir fágað útlit Design Award Winner 2000 og valið er einfalt. Vatnagörðum 10 - 104 Reykjavík - sími 570 0000 - fax 570 0017 - www.volti.is - volti@volti.is 15 avs grafík

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.