AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Síða 25
Háskólaþorpið á Bifröst:
Þekkingarsamfélag nýrrar aldar
riöskiptaháskólinn á Bifröst er alh-
liöa viöskiptaháskóli staösettur á
Bifröst í Borgarfirði. Þar stendur nú
yfir uppbygging á vaxandi háskóla-
og þekkingarþorpi sem veröur ein-
stætt hérlendis. Umhverfi skóla-
samfélagsins markast af staösetningu þess á
einum fegursta staö landsins í gróðurbolla viö
rætur Grábrókar en auk hennar setja Hreöavatn
og fjallið Baula sterkan svip á umhverfið. í dag búa
og starfa tæplega 400 manns í háskólaþorpinu en
gert er ráð fyrir aö sú tala vaxi í 600 á næstu
tveimur árum.
Starfræktar eru nú þrjár deildir viö háskólann:
■ Viðskiptadeild meö um 190 nemendur, þar af um
60 í fjarnámi.
■ Lögfræöideild með tæplega 40 nemendur alla á
1 .ári en deildin tók til starfa í haust. Fullskipuö
munu um 120 nemendur veröa í deildinni.
■ Frumgreinadeild meö um 30 nemendur en sú
deild býöur upp á eins árs aðfarar- og undirbún-
ingsnám aö háskólanámi á Bifröst fyrir fólk úr
atvinnulífinu.
Hlutverk háskólans er aö búa nemendur undir
ábyrgöar-, forystu- og stjórnunarstörf í innlendu og
alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Skólinn hefur á
undanförnum árum haft frumkvæöi aö nýjungum í
kennsluháttum meö tæknivæðingu og skipulagi
sem hentar hraöa samtímans. Óháöur háskóli
meö takmarkaðan fjölda nemenda býr yfir sveigj-
anleika til þess aö takast á viö breytingar í alþjóð-
legu samfélagi og getur veitt hverjum nemanda
persónulegri þjónustu og betri aöstööu til náms og
þroska en aðrir háskólar. Viðskiptaháskólinn á
Bifröst er þekkingarfyrirtæki. Verömæti hans liggja
þannig í hæfum nemendum sem valdir eru úr stór-
um hópi umsækjenda og vel menntuðu og hæfu
starfsfólki sem mikilvægt er aö laða aö til kennslu
og rannsókna.
Til aö standa undir kröfum íbúa þarf háskólinn aö
bjóöa upp á fyrsta flokks aöstööu til náms, starfa,
lífs og leikja. Uppbyggingin á Bifröst miöar þannig
aö þessum þörfum og má skipta henni í þrjá þætti:
■ búöarhúsnæöi fyrir nemendur og starfsfólk
■ Þjónustuhúsnæöi, t.d. íþróttaaðstaða, verslun,
kaffihús og leikskóli.
■ Kennslu- og rannsóknarhúsnæöi
Nemendagarðar samanstanda af þremur hverf-
um, sem hvert hafa sitt svipmót, húsgerðir og full-
nægja mismunandi þörfum íbúa. Kota og Garða-
hverfi eru hönnuö af Arkís en Hraunshverfi af
Magnúsi Ólafssyni arkitekt.
Viö fyrirhugaö Háskólatorg er ætlunin aö safna
saman allri miölægri þjónustu. Þegar eru þar
Líkamsræktarstöð og laugarsvæði, þvottahús og
Kaffi Bifröst, en áformað er aö bæta bókabúö og
dagvöruverslun viö þessa þjónustu. Borgarbyggö
rekur leikskóla sem liggur vel viö íbúðarbyggðinni
en hönnun á stækkun hans stendur yfir.
Skólahús Viðskiptaháskólans samanstanda af
húsnæöi sem byggt var á árunum 1949-1965.
Perla þeirra bygginga er Gamla skólahúsið sem
hannaö er af Sigvalda Thordarsen og er elsta
húsiö á staðnum. Þaö er vel varðveitt og í upp-
runalegu horfi og litum. Vistarhús og Aðalból eru
síöari tíma viðbætur frá 6. og 7. áratugnum hann-
aðar af Teiknistofu Sambandsins. Þessi hús öll
eru órofa hluti af sögu skólans og hafa mikið
menningarlegt gildi. Þegar ákvöröun var tekin um
nýtt skólahús var eitt helsta úrlausnarefni þess
hönnunarferlis hvernig nýjar byggingar gætu allt í
senn: Fullnægt faglegur þörfum skólans, skapaö
honum nýja miöju og um leið virt tilvistarrétt hinna
gömlu og virðulegu húsa sem fyrir eru. Þrjár arki-
tektastofur tóku þátt í forvali um bygginguna,
Arkís, Batteríiö og Stúdió Granda. Stúdíó Granda
var valið til verksins og er húsið nú fullhannað.
Þaö er mat stjórnenda háskólans aö sú hönnun
hafi tekist sérlega vel og við erum stolt af húsinu
sem mun gjörbreyta allri aöstööu Bifrestinga til
náms og starfa. ■
23
RUNÓLFUR ÁGÚSTSSON, REKTOR