AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Blaðsíða 34
rannsóknarverkefna sem og þróun námsins. í
nánustu framtíð veröur boöið upp á fjarnám í ríkari
mæli. Á Hólum er einnig Norðurlandsdeild Veiöi-
málastofnunar, Héraössetur landgræöslunnar og
Dýralæknir hrossasjúkdóma. Ágætt samband er
milli embættis vígslubiskups á Hólum og Hóla-
skóla. Á Hólastað er bæði leikskóli og grunnskóli.
Góöir skólar fyrir börnin eru lykilatriði þegar fólk
velur sér staö til búsetu í lengri eöa skemmri tíma.
Á Hólum hefur sem sagt skapast gott samfélag
þar sem fólk vinnur metnaöarfullt starf.
Hólaskóli er staðarhaldari á Hólum og mikil og
góö tengsl eru við Sveitarfélagið Skagafjörð um
þróun byggöar og þjónustu á staðnum. Auk þess
aö vera ein stærsta jörð á Norðurlandi hefur mynd-
ast á Hólum myndarleg byggö, sem hefur tekiö
mikinn vaxtarkipp á undanförnum tveimur ára-
tugum. Skólaárið 2001-2002 sækja nám í Hóla-
skóla 65 nemar. Auk þess fylgja nokkrum nemend-
um börn og makar. Aö meðtöldum nemendum
Byggingarsaga Hóla
Byggöa- og byggingasaga Hóla er löng og merk.
Á miðöldum var á Hólum eitt stærsta þéttbýli
landsins, þar sem bjuggu 3-400 manns. Nú eru aö
hefjast miklar fornleifarannsóknir sem miöa meöal
annars aö því aö rannsaka húsaskipan og þorps-
uppbyggingu þessa tíma.
Dómkirkjan á Hólum, sem var vígö 1763, er
byggö úr rauðum sandsteini úr fjallinu Hólabyröu.
Kirkjan, sem er í síö-barrokkstíl, var endurgerð í
sinni upprunalegu mynd. Þeim breytingum lauk
1988. Sjö kirkjur þar af 5 dómkirkjur hafa staöiö á
þessum sama staö og voru sumar þeirra meö
stærstu timburhúsum í Evrópu.
Á Hólum er veriö aö Ijúka endurgerð merks
stokka- og stafhúss, sem biskupinn Auöunn rauði
Þorbergsson reisti um 1315, var húsiö nefnt eftir
honum og kallað Auöunnarstofa. Húsiö var rifið
vegna fátæktar ábúenda Hólastaöar í byrjun 19.
aldar og timbrið selt. Þorsteinn Gunnarsson
arkitekt haföi faglega yfirumsjón meö endurgerö
dómkirkjunnar og byggingu Auöunnarstofu hinnar
nýju.
Þá er nýlokiö aö gera upp utan sem innan gamla
torfbæinn á Hólum, sem kallaður er Nýibær. Hann
er frá miöri 19. öld og í honum var búið þar til eftir
seinna stríö. Þjóöminjasafnið á bæinn, en Hóla-
skóli sér um rekstur hans samkvæmt sérstökum
samningi.
Byggingar skólans
Húsnæðisvandræöi háöu skólanum fyrstu árin.
Þau hús sem hér stóöu voru kirkjan úr steini en öll
önnur hús úr torfi og grjóti. Fljótlega varö því aö
reisa skólahús og varð úr aö keypt var timburhús
sem stóö í Hrísey. Var þaö flutt til Hóla og reist þar
aftur. Húsiö var fullbyggt áriö 1892. Húsiö var tvær
hæöir og kjallari meö miklu risi og kvisti um þvert.
Hús þetta brann 16. október 1926.
Áriö 1910 var annað skólahús reist, en þaö var
hannað af Rögnvaldi Ólafssyni húsameistara.
Húsiö var byggt úr steini, þó aö lagt hafi verið til aö
þaö væri úr timbri og haföi Alþingi miðað fjárveit-
ingar sínar viö þaö. Þaö var illa einangrað og þótti
kalt.
Eftir aö eldra hús skólans brann 1926 var nauð-
synlegt aö byggja nýtt hús. Var ákveðið aö byggja
þaö áfast húsinu frá 1910. Geröi Guöjón Samúels-
son húsameistari uppdrátt að því. Hefur mönnum
þótt vel til takast og hefur Guöjón borið fulla virö-
ingu fyrir verki Rögnvalds.
Þessar tvær byggingar mynda saman núverandi
skólahús, sem var á sínum tíma taliö besta skóla-
hús á landinu. Um árabil bjó nær allt fólk á Hólum,
nemendur og starfsfólk í þessu húsi utan örfárra
sem bjuggu í torfbænum.
Leikfimihús var byggt áriö 1912. Það brann áriö
1969, en veggir stóöu uppi og var húsið endur-
byggt.
Á undanförnum árum hefur verið staöiö myndar-
lega aö viðhaldi og endurgerö skólahússins og
hlutverki þess að hluta breytt. í húsinu eru ekki
lengur íbúðir starfsfólks og nemenda, heldur hýsir
þaö nú skrifstofur og kennslustofur skólans. Á
efstu hæöinni eru gistiherbergi. Við framkvæmd-
irnar var lögö áhersla á aö fylgja upprunalegu útliti
eins og kostur var. Björn Kristleifsson var arkitekt
verksins og var mjög vandað til þess svo húsiö er
allt oröiö hiö fegursta.
Um 1910 var fyrsti hluti fjóssins á Hólum byggö-
ur, höfundurinn var Rögnvaldur Ólafsson. Áriö
1927 var fyrsti hluti gömlu fjárhúsanna byggöur og
voru þau hönnuö af Guöjóni Samúelssyni. Þetta
voru stór og glæsileg hús. Þessum fjárhúsum hef-
ur núna verið breytt í fiskrannsóknahús. Seinna
var byggt viö bæöi fjárhúsin og fjósiö.
Á grunni skólahússins sem brann var byggt
hesthús, sem síðar var breytt í vélaverkstæði og
trésmíðaverkstæði.
Á árabilinu 1947-1956 voru svo reistir tveir kenn-
arabústaðir og skólastjórabústaöur, einnig var á
32