AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Síða 38
HALLDOR GISLASON, PROFESSOR
Hönnunardeild
Listaháskóla íslands
ú í haust tók til starfa viö Lista-
háskóla íslands ný deild sem
veröur alfarið um hönnun.
Kennsla í hönnun var áöur kennd
sem hluti af myndlistardeildinni,
fyrst í Myndlista- og Handíðaskól-
anum og seinna viö Listaháskólann. En nú á aö
setja hönnunarkennslu undir einn sameiginlegan
hatt
Hönnun er í raun nafn á ákveöinni vinnuaðferð
og hugarfari viö lausn viðfangsefna, en þau eru
svo víðtæk aö erfitt er aö setja starfinu í deildinni
þröngar skorður. Þó er miðaö viö aö í fyrstu veröi
meginbrautir í vöruhönnun og grafískri hönnun og
svo á þessu ári einnig í arkitektúr. Sú braut sem
nefnd er vöruhönnun skiptist síðan í þrívíöa hönn-
un annars vegar, sem lýtur aö gerð hluta, og textíl-
hönnun eöa fatahönnun hins vegar. Grafísk hönn-
un er hönnunarsvið sem byggist á ævafornum
grunni ritlistar og prenthefðar, sem hefur sprungiö
út á 20. öld í mjög fjölbreytt sviö framsetningar á
efni á frjóan og skipulegan máta. Nám í grafískri
hönnun er nám í framsetningu á upplýsingum á
myndrænan hátt fyrir fjölmiðlagreinar. Hægt er aö
leggja áherslu á prent- eöa skjámiöla.
Eftir mikla og erfiöa um-
ræöu á undanförnum árum
um nám í arkitektúr hér á
landi hefur komiö í Ijós aö
þrátt fyrir eitthvert missætti
um aðferðir, þá eru flestir
sammála því að mikilvægt
sé aö koma náminu á fót
hérlendis. Sterk rök eru fyrir
því frá sjónarhorni fagsins
sem er frekar sundurlaust
innan íslenskrar menningar
vegna þess aö menntun og
rannsóknir fara ekki fram hér
á landi. Ennfremur er al-
mennt álitiö aö nám hér á
íslandi yröi mun hagkvæm-
ara bæöi fyrir nemendur og
fjármögnun menntakerfisins
heldur en aö senda alla til náms erlendis. Sam-
starf er aö hefjast milli Háskóla íslands og Listahá-
skólans um þetta nám og vonandi gengur vel að
ganga frá samningum um þaö.
Viö skipulag kennslu í hönnunardeild verður
haft aö leiöarljósi aö þroska nemendur sem sjálf-
stætt hugsandi einstaklinga, sem geta tekiö á
mismunandi verkefnum á skapandi hátt.
i háskólanámi í hönnun og arkitektúr er algeng-
ast aö kennslan skiptist í 50% verktengt starf í
vinnustofum og 50% í formlega kennslu. Hluti af
formlegu kennslunni er í beinum tengslum viö þau
verkefni sem unnin eru í vinnustofum. Vinnustof-
an er miöpunktur starfseminnar og kennsluskrá
Listaháskólans gerir ráö fyrir þessu formi enda er
þaö eina aðferöin sem er almennt notuö er við aö
kenna hönnun og arkitektúr. Ekki er hægt aö
kenna eingöngu meö fyrirlestrum og heimaverk-
efnum eins og oft er gert viö kennslu tæknilegra
greina.
Viö samsetningu námsins er byggt á því aö nýjar
aðferðir eru kynntar ein af annarri samtímis því aö
hin ólíkustu viöfangsefni eru krufin til mergjar.
Kennslan á fyrsta ári beinist að því að skerpa
sköpunargáfu nemandans og þroska skipulags-
Frá sýningu l.árs hönnunarnema í Ráðhúsinu síðastliðið vor.
36