AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Síða 67
Hochschule fiir bildende Kúnste,Wett-
beverb 2000, Hamburg.
Sendiráð íslands í Berlín. Samk. 1996.
arkitektastofa Gunnlaugs
Ausstellungsgebaude Mercedes.
Bald, Siegen. 1996.
Baldurssonar
okkrir íslenskir arkitektar hafa á
undanförnum árum haslað sér völl
erlendis og reka þar nú arkitekta-
stofur í stað þess að snúa til baka
til heimahaganna að námi loknu.
Þessir aðilar hafa starfað í alþjóð-
legu umhverfi og öðlast mikilvæga þekkingu og
reynslu sem m.a. getur bæði nýst íslenskum fyrir-
tækjum sem starfa erlendis og erlendum fyrir-
tækjum sem hugsa sér til hreyfings hér á landi.
Tímaritið aVs hefur ákveðið að kynna nokkra þes-
sara aðila og verk þeirra í næstu heftum í þeirri von
að það verði íslenskum arkitektum hvatning til þátt-
töku í verkefnum á erlendri grund. ritstj.
Aö loknu námi í arkitektúr viö háskólann í Karls-
ruhe fann ég mér starfsvettvang i Kölnarborg. Þar
var ég í liðlega 10 ár í vinnu á þekktum teikni-
stofum. Áriö 1985 haslaði ég mér völl sem sjálf-
stæður arkitekt, fyrst í Köln, en frá 1991 í háskóla-
bænum Siegen, 80km austan frá Köln. Siðustu
árin hef ég haft að meðaltali 3-4 menn í vinnu,
þannig að samvinnan er mjög svo persónuleg og
náin.
Ég tel það mér til gæfu að hafa kynnst ströngum
skóla Eiermanns og annarra sem á þessum árum
voru áberandi í Karlsruhe. Undir áhrifum þessa
tíma hefur nokkuð stöðugt handbragð þróast hjá
okkur.
En hvernig verður nú arkitektúr til? Mikilvægt er
að gera sér vísvitandi grein fyrir staðháttum og
samhengi. Samfelld þróun er að jafnaði heilla-
drýgri en byltingar. Mannveran er mælikvarðinn,
hvernig henni líður vel og hvar samvera og menn-
ing getur þrifist og dafnað.
Rótgróin menning Miðjarðarhafslanda heillar mig
enn og aftur. Þar er lífsgleðin og orkan óskert. Oft
heyri ég byggjendur okkar tala um að húsin hafi
sál, sem minni á frítíma og gott andrúmsloft
Miðjarðarhafsumhverfis. Það þykja mér góð laun
eftir erfiðið.
Skapandi og listrænn skilningur er undirstaðan
fyrir fagvinnu okkar. Afgerandi er þó öryggi í fram-
kvæmdum og tæknilegu eftirliti. Hér á slóðum ber
hönnuður ábyrgð á að verki sé lokið innan ákveð-
ins kostnaðar- og tímaramma. Verkið verður að
fullnægja öllum lögum og reglum. Mikil ábyrgðar-
vinna gleymist þó, þegar nýtt hús er vígt og höf-
undur finnur að manneskjurnar í kringum hann
geisla af lífsfjöri. Til þess var jú leikurinn gerður.
Þeim sem vilja fá meiri upplýsingar um Arkitektastofu
Gunnlaugs Baldurssonar er bent á www.baldursson.de
65
GUNNLAUGUR BALDURSSON ARKITEKT