AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2001, Side 84
FERDINAND HANSEN OG BRYNJAR RAGNARSSON, SAMTOKUM IÐNAÐARINS
manna fyrirtækisins og betri nýting
tíma og hráefnis eykur ánægju viö-
skiptavinarins og viðskiptatækifærum
fjölgar. Mistökum fækkar og óhag-
ræöi minnkar sem leiðir af sér betri
framlegð og meiri afköst, án fjölgunar
vinnustunda. Af gæðastjórnun leiðir
að starfsfólk og stjórnendur fá meiri
tíma til að sinna starfi og leik, yfirvin-
nan minnkar, frítíminn lengist og lífs-
gæðin aukast. Starfsfólk verður
ánægðara, það skapast meira vinnu-
öryggi, aukin hæfni og gott orðspor
fyrir viðkomandi.
Góð stjórnun bœtir
afkomu verktakans
Allt mœlir með gœðastjórnun í mannvirkjagerð og bygg-
ingariðnaði
annvirkja- og byggingariðn-
aður á íslandi skapar eina af
hverjum tíu krónum sem
þjóðin hefur í tekjur og leggur
til eitt af hverjum tíu störfum í
landinu. Stærstu einstöku
verkkauparnir eru ríkisstofnanir og sveitarfélög en
einnig skipta rúmlega 20 þúsund heimili um eig-
endur á hverju ári og á landinu öllu eru um 110
þúsund íbúðar- og atvinnuhúsnæði sem þarfnast
viðhalds og viðgerða með reglubundnu millibili.
Góður árangur gæða-
herfis Sl
Síðastliðin fimm ár hafa Samtök
iðnaðarins beitt sér fyrir þróun
gæðakerfis fyrir verktaka og fram-
leiðendur í mannvirkjagerð og bygg-
ingariðnaði með góðum árangri. Það
hefur nú verið í notkun víða og er
m.a. orðið viðurkennt sem fullnægjandi kerfi í
útboðum flestra ríkisstofnana og sveitarfélaga.
Gæðakerfi Sl er sniðið að þörfum hvers fyrir-
tækis. Það er einfalt í notkun og leiðbeinir starfs-
fólki og stjórnendum, hvort sem er á byggingar-
stað eða í verksmiðjunni, við að halda utan um
þau fjölmörgu mál sem koma upp hverju sinni og
hafa áhrif á afkomu fyrirtækisins þegar upp er
staðið.
Nagnið skiptir ekki máli
Tími þeirra, sem ekki innleiða gæðastjórnun í
rekstri sínum, er að renna út. Ný kynslóð þjónustu-
fyrirtækja í þessum greinum er að koma fram í
sviðsljósið og þau eiga það sameiginlegt að hafa
innleitt gæðakerfi og gæðavitund meðal starfs-
manna sinna til að bregðast við auknum kröfum
verkkaupenda. Fyrir vikið fá þessi fyrirtæki stöðugt
fleiri verkefni sem hvert um sig skilar góðum hagn-
aði.
Gxði besta auglýsingin
Gæðastjórnun er góð auglýsing bæði fyrir verk-
kaupa og verktaka. Aukin gæðavitund starfs-
Stórbxtt afkoma byggingaverk-
takans
Góð stjórnun leiðir ótvírætt til betri afkomu fyrir-
tækja í byggingariðnaði. Tökum sem dæmi verk-
takafyrirtæki, með um 30 starfsmenn (bæði fast-
ráðna og í undirverktöku), sem fékk 226 milljóna
króna verkefni sem átti að Ijúka á fjórum mánuð-
um. Þó að fyrirtækinu tækist að skila verkinu á til-
settum tíma varð hagnaðurinn nánast enginn eða
aðeins um 185 þúsund krónur (sjá töflu A á næstu
síðu).
Við skulum því staldra aðeins við og skoða þetta
dæmi betur. Reiknum að með áhrifum gæðastjórn-
unar hefði fyrirtækið náð 1% betri nýtingu á tíma
stjórnenda og starfsfólks í umræddu verkefni (1%
jafngildir aðeins um 6 mínútum á dag á hvern
starfsmann). Eitt prósent er ekki beint metnaðar-
fullt markmið en ágætis dæmi um hversu lítið þarf
82