Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 13
Inga Þórisdóttir
Stjórnendaþjálfi
Ragnar Alfreðsson
Trésmiður
Hrein íslensk fæðubót
frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup,
Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó
Ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira
Alsæl með Smoother
SKIN & HAIR
Inga Þórisdóttir, stjórnendaþjálfi, segist barnslega
glöð yfir frábærum árangi bætiefnisins Smoother
SKIN & HAIR frá Eylíf á hár sitt. Hárlos er úr sögunni
og hárið vex sem aldrei fyrr.
Inga er stjórnendaþjálfi í fyrirtæki sínu Via Optima
þar sem hún vinnur með stjórnendum sem koma til
hennar í stjórnendamarkþjálfun ásamt því að vera
með námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir. Hún er
fædd og uppalin á Akureyri en hefur nú búið lengur
í Kópavogi en fyrir norðan. „Ég hef mikla ástríðu
fyrir því að vinna með fólki í krefjandi störfum því ég
reyndi það sjálf á eigin skinni þegar ég starfaði lengi
í fjármálageiranum,“ segir Inga sem er iðin við að
stunda golf í frístundum. „Ég hef lengi glímt við hárlos
og prófað ótal hárkúra með misgóðum árangri, en
þegar ég rakst á viðtal við Ragnhildi Sigurðardóttur
golfkennara, þar sem hún mælti heilshugar með
bætiefninu Smoother SKIN frá Eylíf, vissi ég að
Ragga myndi aldrei gefa sín meðmæli nema hún
væri ánægð með vöruna. Ég hugsaði með mér að
ef Ragga finnur svona mikinn mun á hári sínu ætla
ég að prófa líka,“ segir Inga sem nú hefur tekið inn
Smoohter SKIN & HAIR í að verða þrjá mánuði. „Ég
er núna að klára þriðja skammtinn og fann fljótlega
mun, en þegar hárgreiðslukonan fór að tala um
gróskuna í hárinu á mér, hugsaði ég með mér: „Getur
verið að þetta virki svona vel?“. Eftir klippinguna
ákvað ég að láta Ólöfu Rún hjá Eylíf vita hversu
ótrúlega ánægð ég er með Smoother SKIN &
HAIR og hvað það virkar vel. Það er eitthvað í
þessu bætiefni sem svínvirkar því ég er með ný hár
út um allt á höfðinu. Hárlosið er úr sögunni, fullt af
nýjum hárum og hárið er allt annað,“ segir Inga, svo
sannarlega ánægð með árangurinn.
„Ég hef prófað mjög mörg hárvítamín á markaðnum.
Þar af hefur sumt verið gott en Smoother SKIN &
HAIR er best. Bætiefnamarkaðurinn er frumskógur
og þegar maður stendur fyrir framan hillur verslana
með gríðarlegu úrvali vítamína er erfitt að vita hvað
virkar í raun. Stundum heldur maður að það dýrasta
sé best og reynir að rýna í innihaldsefnin en í
Smoohter SKIN & HAIR fann ég loksins bætiefni
sem raunverulega virkar. Þetta er frábær bætiefna-
blanda fyrir hárið og einhver samsetning í því sem
virkar mjög vel. Í því er kollagen, sink, bíótín,
magnesíum og kopar, sem allt eru vítamín og
steinefni sem eru góð fyrir hárið, en hjá Eylíf eru
þau hárrétt blönduð og árangurinn lætur ekki á sér
standa,“ segir Inga sem finnur líka mun á húð sinni
eftir að hún fór að taka inn Smoother SKIN & HAIR.
„Í frosthörkunum í vetur hef ég verið með minna
exem en ég fæ vanalega á veturna. Það er gaman að
upplifa þennan árangur og mér fannst skemmtilegt
þegar hárgreiðslukonan spurði hvort ég sæi hversu
mikið væri af nýjum hárum, en til þess þurfti ég hennar
gleraugu því ég sé ekki ofan í hársvörðinn. Hún átti
ekki einasta orð yfir árangrinum. Mér fannst það
mjög sterkt og þá varð ég endanlega sannfærð.
Smoother SKIN & HAIR er raunverulega að gera
sitt gagn,“ segir Inga. Hún mælir með Smoother
SKIN & HAIR fyrir alla sem eru að velta fyrir sér
hvaða hárvítamín séu góð.
„Ég gef Smoother SKIN & HAIR mín bestu með-
mæli. Það er virkilega gaman að finna hvað hárið
nýtur góðs af því og ég er barnslega glöð yfir því að
þetta virki í raun svona fáránalega vel. Ég er alsæl.“
Vörulínan frá Eylíf
Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN &
HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger
LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel.
Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum,
engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á
Grenivík undir GMP gæðastaðli.
Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru:
• Kalkþörungar frá Ískalki Bíldudal
• Smáþörungar (Astaxanthin) frá Algalíf Reykjanesbæ
• Kísillinn frá Geosilica Reykjanesbæ
• Kollagen frá Marine Collagen Grindavík
• Kítósan frá Primex Siglufirði
• Íslenskar jurtir frá Íslenskri Hollustu Hafnarfirði
Hrein íslensk óerfðabreytt hráefni
Íslensk framleiðsla
Heilsan er dýrmætust
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað
börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en
ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Mælir hiklaust með
Stronger LIVER
Ragnar Alfreðsson trésmiður notar bætiefnið Stronger
LIVER með frábærum árangri. „Blóðið í mér hefur verið
að hlaða upp járni og fylgjast þarf náið með gildunum
því ef þau verða of há þarf að fara í aftöppun. Ég fer því
í blóðprufur á þriggja mánaða fresti en eftir að ég fór að
taka inn Stronger LIVER frá Eylíf hafa lifrargildin, sem
voru áður ekki upp á tíu, snarbreyst til hins betra. Það er
einfaldlega allt í topplagi eftir að ég fór að taka inn þetta
magnaða bætiefni sem hefur breytt ótrúlega miklu fyrir
mig,“ segir Ragnar, alsæll með árangurinn.
Hann hefur tekið inn Stronger LIVER samviskulega
upp á dag hvern í hálft annað ár. „Ég mæli 100 prósent
með Stronger Liver því ég þekki það af eigin raun. Ég er
yfirleitt ekki ginnkeyptur fyrir töflum eða bætiefnum en
fékk ábendingu um Stronger LIVER frá Eylíf. Í fyrstu var
ég hikandi og hafði enga trú á áhrifum þess en eftir að ég
fór að lesa mér til um bætiefnið ákvað ég að prófa. Ég var
nýkominn úr blóðprufu þar sem lifrargildin voru alltof
há og fannst ég ekki hafa neinu að tapa að gefa þessu
séns. Eftir þriggja mánaða skammt varð ég svo nánast
orðlaus yfir því hvað gildin höfðu breyst mikið þegar ég
fór næst í blóðprufu. Stronger LIVER var greinilega að
svínvirka,“ segir Ragnar, og læknirinn hans var líka hissa
á betri lifrargildum. „Ég sagði lækninum að ég væri að
taka inn Stronger LIVER og hann sagði það greinilega
virka mjög vel, sem eru sannarlega góð meðmæli.
Vitaskuld má maður ekki vera með fordóma fyrirfram
og dæma það sem maður veit ekki um. Það heillaði mig
líka að bætiefnið er unnið úr náttúrulegum og íslenskum
hráefnum,“ segir Ragnar sem mælir eindregið með
Stronger LIVER. „Nýrnastarfsemin var líka í pínu ólagi
hjá mér en þetta virðist haldast í hendur því nýrnagildin
hafa líka lagast eftir að ég fór að taka inn Stronger
LIVER. Ég er mjög ánægður og mun halda áfram að
taka inn þetta einstaka bætiefni inn fyrir heilsu mína.
Ég mæli því hiklaust með Stronger LIVER fyrir alla sem
glíma við ójafnvægi í járnbúskapnum því allt hefur það
lagast í mínu tilviki og ég hef þurft að fara miklu sjaldnar
í aftöppun en áður. Ég hef líka hvatt félaga mína sem eru
með of hátt lifrargildi að taka inn Stonger LIVER og senn
kemur í ljós hvort gildin hafi ekki lækkað hjá þeim líka.“