Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Séra Sigurður Ægisson, sóknar- prestur á Siglufirði, er að vinna að bók um völvur og völvuleiði á Íslandi. „Völvur voru konur sem tengdust norrænum átrúnaði eða svokallaðri ásatrú, sem er rangnefni, því Vanir komu líka við sögu. Fólk sem vildi fræðast um komandi tíma gekk meðal annars til slíkra kvenna. Þær voru fjölkunnugar og sögðu fyrir örlög manna og óorðna hluti. Af fornum heimildum má ráða að völvur hafi á 8., 9. og 10. öld verið algengar á Norðurlöndum og Grænlandi, en tekið að fækka upp úr því, við tilkomu hins nýja siðar, kristinnar trúar. Ég hef samt efasemdir um að slíkt hafi gerst hér fyrr en löngu síðar,“ segir Sigurður. Rannsóknir á völvum Fornleifafræðingar hafa verið að rannsaka völvur mikið erlendis, endurmeta eldri, þekkt kuml og grafa upp ný, þannig að mikil gróska er í þessum fræðum og verður eflaust lengi áfram. „Þetta hófst upp úr 1995,“ segir Sigurður,“ ef ég man rétt. Þeim finnst líklegt að sumar þessara dysja séu í raun og veru völvuleiði, grafir þessara fornu sjáenda og í sumum tilvikum seiðkvenna, sem lesa má um í fornritum okkar. Þetta er mjög spennandi. Völvur hafa bersýnilega verið mjög virtar áður fyrr og ríkulega búnar, enda þáðu þær laun fyrir þjónustu sína í perlum og slíku. Lýsingin á Þorbjörgu lítilvölvu, í Eiríks sögu rauða, styður þetta. Þetta á að gerast í kringum árið 1000 en er sennilega skráð um 1300. Þar segir meðal annars: „Í þennan tíma var hallæri mikið á Grænlandi; höfðu menn fengið lítið þeir sem í veiðiferðir höfðu farið, en sumir eigi aftur komnir. Sú kona var þar í byggð er Þorbjörg hét. Hún var spákona; hún var kölluð lítilvölva. Hún hafði átt sér níu systur og voru allar spákonur og var hún ein eftir á lífi. Það var háttur Þorbjargar á vetrum að hún fór á veislur og buðu menn henni heim, mest þeir er forvitni var á um forlög sín eða árferð. Og með því Þorkell var þar mestur bóndi þá þótti til hans koma að vita hvenær létta mundi óárani þessu sem yfir stóð. Þorkell býður spákonu þangað og er henni búinn góð viðtaka sem siður var til þá er við þess háttar konu skyldi taka. Búið var henni hásæti og lagt undir hægindi. Þar skyldi í vera hænsafiðri. En er hún kom um kveldið og sá maður er í móti henni var sendur þá var hún svo búin að hún hafði yfir sér tyglamöttul bláan og var settur steinum allt í skaut ofan. Hún hafði á hálsi sér glertölur. Hún hafði á höfði lambskinnskofra svartan og við innan kattskinn hvítt. Staf hafði hún í hendi og var á hnappur. Hann var búinn messingu og settur steinum ofan um hnappinn. Hún hafði um sig hnjóskulinda og var þar á skjóðupungur mikill. Varðveitti hún þar í töfur þau er hún þurfti til fróðleiks að hafa. Hún hafði kálfskinnsskó loðna á fótum og í þvengi langa og sterklega, látúnshnappar miklir á endunum. Hún hafði á höndum sér kattskinnsglófa og voru hvítir innan og loðnir.“ Þess má geta, að samkvæmt Grágás var kattarskinn margfalt verðmeira en refaskinn. Það segir ýmislegt. Völvuleiði á Íslandi Sigurður segist hafa frá árinu 1985 verið að safna upplýsingum um völvuleiði á Íslandi. Oft er þar um að ræða hóla, steina, þúfur í túni eða óreglulegar þústir. „Völvuleiðin eru mörg eystra og með suðausturströndinni en fækkar eftir því sem norðar og vestar dregur. Alls hef ég fundið í örnefnaskrám, bókum og í öðrum heimildum 63 völvuleiði á um 50 stöðum. Um flest þessara völvuleiða er lítið vitað, en örfáum fylgja þó sagnir, munnlegar eða ritaðar. Þar kemur stundum fram, að sá, sem hressi við leiðið ef það er farið að láta á sjá, eða haldi því við, fái einhvern glaðning eða happ í staðinn. Kunnasta frásögnin af slíku er líklega frá Kálfafellsstað frá því skömmu fyrir 1900, í tíð séra Péturs Jónssonar, þegar mikið tré rak á fjörur landareignarinnar og úr því var reist timburhús á Kálfafellsstað, 14 álna langt og 7 álna breitt, einlyft með porti. Það stóð fram yfir 1950. Mörg völvuleiðanna eru því miður týnd, og það fyrir ekkert svo löngu, mörg hurfu á 20. öld, sum í ógáti, önnur við ábúendaskipti og einnig vegna þess að land var brotið til ræktunar, og vitneskja um mörg önnur er að glatast, nema þá hin allra kunnustu, svo sem á Hólmahálsi í Reyðarfirði, í Einholti á Mýrum, í Norður-Vík í Mýrdal og á Felli og einhver fáein í viðbót, þar á meðal í Leyningshólum inni í Eyjafirði. Tíminn er með öðrum orðum að hlaupa frá okkur hvað þetta varðar. Þetta er að glatast. Það má ekki gerast. Þetta eru menningarminjar. VELFERÐARMOTTUR Á STEINBITA Við bjóðum nú sérsniðnar gúmmímottur í ýmsum gerðum fyrir allar gerðir gripahúsa. Flestir eru sammála að steypt undirlag er ekki náttúrulegt fyrir kýr og getur valdið því að þeim líði illa og framleiði þar af leiðandi minna magn af mjólk. Motturnar eru sérskornar fyrir hvert verkefni fyrir sig og fer því nánast ekkert til spillis auk þess sem fljótlegt er að leggja þær á gólfið. Hafðu samband: bondi@byko.is MENNING Rúnasteinn á völvuleiðinu í Leyningshólum í Eyjafirði. Mynd / Sigurður Ægisson. Menningarminjar: Völvur og völvuleiði Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Séra Sigurður Ægisson við völvuleiði að Reykjum í Mjóafirði, í forgrunni. Mynd / Halldór Halldórsson Í Eddukvæðum er talað um völvur, kynngimagnaðar konur sem taldar voru búa yfir margs konar vitneskju. Þekktust er umfjöllum um þær í Völuspá og Baldurs draumum, auk þess sem þeirra er getið víða í Íslendingasögunum. Völvur voru taldar geta séð ókomna atburði og örlög manna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.