Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 63

Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 63
63Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá Verðdæmi Kverneland AD 5 skeri lokuð moldverpi ....... Verð án vsk kr. 3,190,000,- Fullt verð kr. 3,349,000,- Verðdæmi Kverneland 150 S 4 skeri lokuð moldverpi ... Verð án vsk kr. 4,643,000,- Fullt verð kr. 4,950,000,- Verðdæmi Kverneland ES 4 skeri opin moldverpi ........... Verð án vsk kr. 5,640,000,- Fullt verð kr. 6,147,000,- Verðdæmi Kverneland ES 4 skeri lokuð moldverpi ........ Verð án vsk kr. 5,768,000,- Fullt verð kr. 6,256,000,- S IG N A - w w w .s ig n a. is Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • Óseyri 8 • 603 Akureyri VERKIN TALA AFTUR KEMUR VOR Í DAL Allir plógar afhentir samsettir á afgreiðslustað flutningsaðila í þinni heimabyggð. Bændur – verktakar – búnaðarfélög. Nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri. Nánari upplýsingar veita sölumenn Vélfangs Reykjavík og Akureyri. Kverneland og Vélfang bjóða bændum eftirfarandi vortilboð á Kverneland plógum Búnaður byggir á áratuga reynslu íslenskra bænda. Til afgreiðslu nú þegar. • • • VORTILBOÐ Drögum úr eldhættu í landbúnaði Á hverju ári verða því miður alvarlegir eldsvoðar í landbúnaði. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir helstu áhættuþáttum vegna elds á hverju býli og gera ráðstafanir til að draga úr eldhættu. Til þess eru ýmsar leiðir. Rafmagnsbilanir, röng notkun eða uppsetning rafbúnaðar leiðir oft til eldhættu og eru ein algengasta orsök eldsvoða í landbúnaði. Rafbúnaður, raflagnir og tæki í landbúnaðar- byggingum eru gjarnan undir miklu álagi. Raki í lofti, ryk, titringur og slit hefur áhrif á endingartíma og öryggi tækja. Allur rafbúnaður skal vera viðurkenndur og frágangur þarf að taka mið af aðstæðum á hverjum stað. Alltaf skal leita aðstoðar fagfólks við uppsetningu á rafmagni eða við breytingar á rafmagni í útihúsum. Gott er að láta fagmann yfirfara rafmagnstöflur og rafbúnað með reglubundnum hætti. Vel hefur gefist að nota hitamyndavél til þess að meta hvort óeðlilegur hiti myndast út frá lélegum rafmagnslögnum eða tækjabúnaði. Mjög mikilvægt er að frágangur rafmagnsbúnaðar sé óaðfinnanlegur og búnaður allur ryk- og rakaþéttur. Rafmagnstöflur eiga að vera í stál- eða plastskápum og staðsettar á vegg úr óbrennanlegum efnum. Góð jarðtenging og bilunarstraumsrofi (lekaliði) geta skipt sköpum. Fáið ráðgjöf fagmanns um hvaða lekaliði hentar aðstæðum. Eldur í vinnuvélum Nokkur dæmi eru hér á landi um að eldur komi upp í dráttarvélum þegar þær standa inni við og eru ekki í gangi. Tjónið sem af því hlýst er oft mikið þegar bæði vélar og byggingar skemmast. Svokallaður höfuðrofi minnkar líkur á sjálfsíkveikju í vélknúnum tækjum. Sláið honum út þegar tækið er ekki í notkun. Þannig er straumrás frá rafgeymi rofin. Gólf í vélageymslum eiga að vera þétt og með óbrennanlegu yfirborði. Veggir og þök skulu vera úr tregbrennanlegu efni og tryggja þarf góða brunahólfun. Gætið að því að hafa ekki eldsmat nærri vinnuvélum í geymslu. Gaskúta þarf að meðhöndla með varúð og setja þarf merki með gulum þríhyrningi á útihurð sem gefur til kynna að gaskútar séu innan dyra. Slíkar merkingar eru ákaflega mikilvægar fyrir slökkviliðsmenn sem koma á vettvang eldsvoða. Einnig er áríðandi að upplýsa slökkvilið strax ef áburður er geymdur innandyra vegna sprengihættu sem getur stafað af ákveðnum tegundum áburðar við ofhitnun. Aðgát við logavinnu Við logavinnu eða vinnu sem veldur neistaflugi er nauðsynlegt að tryggja sem öruggast umhverfi. Fjarlægið brennanleg og eldfim efni, breiðið yfir þau eða bleytið. Viðeigandi slökkvibúnaður á alltaf að vera innan seilingar þegar unnin er logavinna. Ágætar leiðbeiningar um varúðarráðstafanir vegna logavinnu er að finna á vef Eldvarnabandalagsins, eldvarnabandalagid.is Reynslan sýnir ótvírætt að sé maður meðvitaður um eldhættu á býlinu og geri viðeigandi ráðstafanir má draga verulega úr hættu á að eldur komi upp með tilheyrandi tjóni á eignum og rekstri. Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og Garðar H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Eldvarnabandalagsins. Vigdís Häsler og Garðar H. Guðjónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.