Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
LÍF&STARF
Vel er stutt við varðveislu
menningar og rekinn er skóli fyrir
þau börn á svæðinu sem illa eru sett.
Ævintýralegur munaður og
umhverfismeðvitund
Augljóst er að Kristján, sem sá um
rekstur Tiger Tops samhliða föður
sínum, er enginn nýgræðingur
þegar kemur að því að hafa yfirsýn
yfir vel rekið fyrirtæki.
Fyrir fimm árum síðan fékk hann
bróður sinn til liðs við sig, en faðir
þeirra lést árið 2009. Kristján hefur
því í dag frjálsari hendur er kemur
að því að sinna öðrum hlutum og
hefur þráin til Íslands oftar en ekki
blundað innra með honum. Hann
hefur í nokkurn tíma velt því fyrir
sér hvort hérlendis væri ekki hægt
að setja upp lúxusgistiaðstöðu
í mongólskum tjöldum, þá yurt
– eða ger eins og þau heita á
mongólsku, en Kristján kynntist
töfrum Mongólíu fyrst árið 1997.
Leist honum svo vel á að hann
heimsótti landið árlega næstu sjö
árin yfir sumartímann.
„Ég fékk þessa hugmynd að
gaman væri að setja upp mongólsk
tjöld á Íslandi, þá á óbyggðum
landsvæðum. Í Mongólíu getur
hitastigið farið niður í -40 að
vetrarlagi og tjöld þeirrar þjóðar
gætu því alveg eins hentað
vel á Íslandi. Þar er reyndar
lítið um að fólk eigi landsvæði
svona sérstaklega, heldur fylgja
heimamenn geitum sem þefa upp
grösug landsvæði, hentug til að
setja upp tjöld. Nota bene, fólki
er ráðlagt að elta geitur, ekki
kindurnar, „því komið hefur í ljós
að vitsmunir þeirra bjóða ekki upp á
grösugar lendur, heldur oftast þvert
á móti,“ segir Kristján glottandi.
„Tjöldin sem um ræðir fara vel
með umhverfið, eru notaleg og afar
skjólgóð, en hátt er til lofts, vítt til
veggja og flokkast gisting í þeim á
allan hátt undir það sem kalla mætti
ævintýralegan munað. Þau eru
kringlótt og því þarf að byggja
kringlóttan pall undir hvert og eitt.
Kamína er í hverju tjaldi, þannig
útbúið að rör komi upp úr loftinu
sem hleypir reyknum út. Innan við
tjalddúkinn er svo ullarfelt sem
heldur hitanum inni og hægt er að
setja segl yfir til að halda rigningunni
úti. Er tjaldið stöðugt enda vel fest.“
Kristján festi nýverið kaup á
fimm afar rúmgóðum tjöldum, 6,7
metra í þvermál, sem henta vel
undir rúm fyrir fjóra gesti. Ef fólk
kysi einhverra hluta vegna að sofa
fremur á gólfinu kæmust a.m.k.
10 manns fyrir. Til viðbótar keypti
hann minni tjöld sem þjóna tilgangi
salernis, tengjast þá þeim stærri og
gerir gestum kleift að ganga á milli
án þess að þurfa að fara út fyrir.
Kristján festi einnig kaup á
tjaldi ætluðu undir veitingaaðstöðu,
tæplega níu metra stóru að
þvermáli og nýtist því vel sem
matsalur. Kristján vill bjóða upp á
hágæðaferðaþjónustu með áherslu á
lágt kolefnisspor. Sér hann fyrir sér
að hafa ekki gestina of marga enda
ekki um almennt tjaldstæði að ræða,
heldur fremur það sem mætti kalla
lúxusupplifun.
Landeigendur athugið
„Mér þætti gaman að komast í
samband og jafnvel samvinnu
við landeigendur þar sem hægt
er að nálgast rennandi vatn,
jafnvel rafmagn og gjarnan þá
sem til dæmis eiga hesta, standa
í fjárbúskap eða hafa aðgang að
heitum uppsprettum, laugum eða
veiðiám. Leigja þá landsvæði undir
húsakostinn, sem er framandi en
bæði spennandi og hentugur
íslenskum aðstæðum.“
Kristján leggur ríka áherslu á
að fara vel með það landsvæði
sem yrði nýtt undir starfsemina
enda virðing fyrir umhverfinu
honum hjartans mál og kemur það
sterklega fram í öllu því sem hann
hefur byggt upp og staðið fyrir í
gegnum árin.
Þeir sem hafa áhuga mega
senda honum línu á netfanginu
Kristjan.edwards@tigertops.com
eða hafa samband við höfund
greinar.
Æ fleiri ferða- og heimamenn
vilja njóta þess munaðar að
heimsækja staði sem bjóða upp á
umhverfisvæna ferðaþjónustu. Þá
ekki síst vitandi að bak við fyrirtæki
slíkrar þjónustu stendur nafn
meðvitaðrar umhverfisvitundar.
Gaman er að líta á vefsíðu
fjölskyldufyrirtækis Kristjáns
www.tigertops.com enda lofsvert
framtak í þágu heimsins.
Enn skemmtilegra verður að fá
að fylgjast með velgengni hans á
íslenskri grund, en án efa fer hér
maður með skýra sýn á mark-
mið sitt.
Hótel/gistihús til leigu til lengri tíma - Framtíðarráðstöfun - Tilbúið til rekstrar strax í sumar
√ Allur búnaður til staðar, bókanir sumarsins og bókunarkerfi tengt við Booking.com og Expedia.com.
√ Áður skóli og heimavist. Náttúruperla mitt í fuglafriðlandi Svarfdælinga.
√ Tvö hús, samtals um 1300 fermetrar.
√ Ný vönduð rúm og sængurfatnaður, þvottavélar og góð aðstaða.
√ Möguleiki á heilsársrekstri og búsetu.
√ Framtíðartækifæri fyrir fagaðila og áhugasama með metnað í hótel og gististarfsemi.
Húsabakki Svarfaðardal
Fasteignamarkaðurinn ehf. – Óðinsgötu 4 , 101 Reykjavík – www. fastmark.is -fastmark@fastmark.is
Valhöll Fasteignasala ehf. - Síðumúla 27, 108 Reykjavík - www.valholl.is
Þó nokkur fjöldi fólks rúmast vel í einu tjaldi.
Falleg gistiaðstaða.
Það er að sjálfsögðu baðaðstaða í yurtum, vel kynt og notaleg.
Hátt er til lofts, vítt til veggja og umhverfið allt ævintýralegur munaður.
Kristján, ásamt börnum sínum tveimur, umvafinn íslenskri náttúru.