Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Mikilvægt að læra af sögunni „Ef við lærum ekki af sögunni erum við oft að brenna okkur á sama soðinu,“ segir Ragnhildur aðspurð um mikilvægi safnastarfs. „Gripirnir sem voru smíðaðir og settir saman í Ólafsdal segja okkur mikið um hvernig staðan var þá um þekkinguna. Sama með gripi frá miðri tuttugustu öld og gripi frá deginum í dag. Þetta segir líka hvert aðgengið er að hráefnum til að búa til þessa muni. Nú eru miklar samfélags- breytingar í gangi og kannski getum við tekið eitthvað af þessum eldri gripum og þróað þá áfram. Úti í safni erum við með lítið tæki sem býr til blómapotta úr mold, þannig að við þurfum ekki plastið. Þetta þótti úrelt þegar plastið kom, en núna sjáum við vandann sem því fylgir. Við eigum að varðveita söguna og læra af henni til frambúðar.“ Laxveiðar og landbúnaðurinn Landbúnaðarsafnið einblínir núna á sögu laxveiða. „Við erum í rannsóknarvinnu og síðan er einn partur af þessu að setja upp sýningu þar sem við gerum grein fyrir hvernig þetta hefur breyst. Þetta þróaðist frá því að vera hugsað sem öflun matar og undirstaða fyrir fæðuöryggi þjóðarinnar og yfir í það að þetta er orðið sport. Við fórum í þetta og fáum til þess styrki vegna þess að þessi nýtingarpartur og mannlífið í kringum þetta hefur ekki verið gerð skil annars staðar,“ segir Ragnhildur. „Þetta er eins og lítill snjóbolti sem byrjar að rúlla – frá því að Bjarni Guðmundsson rak þetta að hluta til í sjálfboðavinnu, yfir í að við getum ráðið inn verktaka í afmörkuð verkefni, upp í að vera komin með fastráðinn starfsmann núna og erum við tvær að nálgast eitt stöðugildi samtals. Það gefur möguleika á að halda áfram og kannski getum við undirbyggt fyrir enn þá fleiri rannsóknir. Vonandi verður rannsóknavinnan enn veigameiri partur af rekstrinum heldur en hefur verið. Hins vegar verður það aldrei þakkað hversu óþreytandi Bjarni hefur verið í að skrásetja þessa þekkingu og upplýsingar sem hann hefur, sem eru gríðarlega mikil verðmæti fyrir allt og alla,“ segir Ragnhildur. Anna Heiða bætir því við að lokum að stefnt sé að halda upp á áttatíu ára afmæli Bjarna Guðmundssonar í sumar með því að efna til málþings í ágúst undir heitinu „Landbúnaður í gegnum safn og skóla.“ Frísk frá Prestsbæ 4. sæti flokki 4 vetra hryssna á LM2022 Aðaleinkunn 8,11 Þráinn fer frábærlega vel af stað sem kynbótahestur og hefur þegar skilað gæðingum til dóms. Þráinn gefur heilt yfir geðgóð, stór og falleg hross með góða framhæð. Töltið er mjúkt og skrefmikið og mörg vel vökur. Afkvæmin virka samstarfsfús og eru upp til hópa gæf og forvitin. Þráinn hefur sjálfur sannað sig og náð mögnuðum árangri í kynbótadóm (Ae. 8,95) og keppni (F1.-7,73 / A-fl.- 8,91). Þráinn frá Flagbjarnarholti verður í sæðingum og hólfi hjá Guðríði í Reykjadal við Flúðir frá miðjum júní og fram á haust. Upplýsingar um notkun í Reykjadal veitir Jón William í síma: 847 8130 og um netfangið: gudridur88@gmail.com Pantanir og upplýsingar gefur Þórarinn í síma 891 9197 og á netfangið: totieymundsson@gmail.com Þrá frá Lækjarmóti 2. sæti flokki 4 vetra hryssna á LM 2022 Aðaleinkunn 8,33 Vala frá Syðra-Garðshorni 1. sæti flokki 4 vetra hryssna LM2022 Aðaleinkunn 8,39 Þráinn frá Flagbjarnarholti 1) Fyrsta keppni í fimmgangi 2) Kynbótadómur 2018. Ae. 8,95 3) Einstakur persónuleiki Þráinn frá Flagbjarnarholti IS20221181608 1 2 3 Anna Heiða Baldursdóttir (t.v.) starfar við rannsóknir og skrásetningu við Landbúnaðarsafn Íslands, en hún lauk nýlega doktorsprófi í sagnfræði. Ragnhildur Helga Jónsdóttir (t.h.), safnstjóri, starfar jafnframt sem aðjúnkt við LbhÍ. Mikill fjöldi er af traktorum og merkilegum búvélum. Dýrmætustu munir safnsins láta ekki mikið yfir sér. Það eru hin svokölluðu Ólafsdalsverkfæri sem smíðuð voru á ofanverðri 19. öld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.