Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Fyrsta starfsleyfið sem veitt hefur
verið til grænkera ostagerðar fékk
nýsköpunarfyrirtækið Lifefood í
október á síðasta ári.
Aðdragandinn nær aftur til
ársins 2018 þegar þróunarvinna
hófst, en fyrirtækið var stofnað af
tvennum vinahjónum, þeim Erlendi
Eiríkssyni, Fjólu Einarsdóttur,
Ingólfi Þór Tómassyni og Ernu Rán
Arndísardóttur, árið 2019 í þeim
tilgangi að framleiða hágæða osta
úr plöntuafurðum. Nú er komið að
mikilvægum tímamótum í
sögu fyrirtækisins því fyrstu
ostarnir eru væntanlegir í
tilteknar sérverslanir á næstu
vikum.
Erlendur ostagerðarmaður
er með sitt tilraunaeldhús í
Austurmörk í Hveragerði, en
þar hafa þau einnig komið sér
upp vinnslurými – og hyggjast
stækka framleiðslugetuna
umtalsvert á næstu misserum.
„Hér er allur tækjabúnaður
ýmist notaður og keyptur
ódýrt eða við fengið að hirða
upp einhvers staðar sem átti
að henda,“ segir Erlendur
blaðamanni sem tók hús á þeim
Fjólu í tilefni tímamótanna.
„Þegar við höfum frétt af
hlutum og tækjum sem átti að
farga þá höfum við beðið um að
fá að hirða þá, lagað aðeins til
og svo hafa þeir staðið sig vel
hér í okkar aðstöðu.
Þetta er mjög í anda þeirrar
sjálfbærnihugsjónar sem við
leggjum upp með í okkar
framleiðslu, auk þess erum við
tilbúin til að gera næstum hvað sem
er til að koma draumnum af stað,“
segir Erlendur.
Tímafrek þróunarvinna
Vörulína Lifefood er tilbúin,
framleiðslan safnast upp í kælunum
í Austurmörk og stutt er í að ostarnir
fari í verslanir.
Vörutegundirnar grundvallast
á tveimur ostagerðargrunnum,
þar sem lagt er upp með að nota
íslenskt hráefni að mestu leyti.
„Annar byggir á aðferð sem ég lærði
í Þýskalandi með kasjúhnetum og
kókosmjólk, en við höfum lagað
að íslenskum aðstæðum og notum
kartöflur og haframjólk. Svo höfum
við verið að prófa að nota í þessum
grunni rófur og blómkál – sem
kemur mjög skemmtilega út. Hinn
grunnurinn er fyrir mjúka osta,
þar sem kasjúhnetumjólk er
undirstaðan. Síðan notum við auð-
vitað gerla fyrir þroskunarferli
ostanna. Út úr þessum tveimur
grunnum koma svo 11 vörutegundir
– mjúkir og harðir ostar sem henta
fyrir flest tilefni,“ segir Erlendur sem
er einnig með reynslu af ostagerð frá
Skyrgerðinni í Hveragerði.
Kartöfluostarnir verða sérstaða
grænkeraostanna, en þá hefur Erlendur
verið lengi með í þróun. Íslenskar
kartöflur eru þar grunnhráefni og eins
ætlar hann að nota eigin haframjólk
– sem verður gerð frá grunni – í
framleiðsluna. Hann segir að það
hafi farið óhemjumikill tími í að þróa
eigin osta enda geti tíminn einn skorið
úr um ágæti hverrar vörutegundar.
Þau ætli líka að skapa sér sérstöðu
með því að vera með eins „hreina
vöru“ og mögulegt er – með fáum
innihaldsefnum.
Gufuinntak í vinnslunni
Sem fyrr segir er lagt upp með markmið
um sjálfbærni í framleiðslunni og liður
í því er að að nýta hveragufuna sem
er aðgengileg í Austurmörkinni. „Við
erum með gufuinntak fyrir allt húsið.
Öll starfsemin verður því knúin með
þeirri náttúrulegu orku; ofn og annar
tækjabúnaður,“ segir Fjóla.
Hún segir að næstu vikur og
mánuðir verði áhugaverður tími hjá
þeim. „Við ætlum að markaðssetja
vörurnar okkar á næstunni og svo
erum við komin í samtal við mögulega
fjárfesta til að skala framleiðsluna
upp. Það er ekki alveg ljóst í hvaða
verslunum ostarnir verða seldir, en
þar koma nokkrar sérverslanir
til greina og skýrist
fljótlega.“
LÍF&STARF
KOMDU SKIPUL AGI
Á HJÓL AGEYMSLUNA
hjolalausnir.is
Hjólarekkar
frá Falco
hámarka
nýtingu
á fermetrum
Lifefood:
Fyrsta íslenska grænkeraostagerðin
– Framleiðsla úr íslensku hráefni og markmið um sjálfbærni
Vörulína
veganostanna
Kartöfluostar
Rauðisterki: Þurrkuð jarðarber og
rósablöð úr Hveragerði með smá
eldpipar til að gefa þessu kikk.
Villisveppir og truffluolía: Eins og
er þá notum við blandaða franska
villisveppi og hvíta truffluolíu ( jarð-
sveppaolíu) til að ná fram djúpu og
jarðnesku bragði.
Túnfífill og graslaukur: Þar sem
túnfífillinn var notaður sem lækn-
ingajurt hér áður fyrr var engin
spurning um að þróa einn góðan
fallegan sumarost með þessari jurt
sem allir kannast við. Svo stráum við
heimaræktuðum graslauk yfir.
Hreinn og beinn: Þessi er
grunnurinn að jarðeplaostunum.
Honum svipar til hefðbundins brauð-
osts og er frábært á samlokur, í salöt
og á heita rétti.
Reyktur og Svartur: Reyktsvört
lífræn paprika frá Sólheimum hulin
með ávaxtaösku. Spennandi og
falleg viðbót á ostabakka.
Ferskostar: Smyrjanlegir og mjúkir
ostar úr lífrænum kasjúhnetum með
ostagerlum og blöndu af íslenskum
kryddjurtum og grænmeti.
Blandað Sólheimagrænmeti:
Ferskasta blandaða árstíðarbundna
grænmetið sem hægt er að finna og
ræktað á lífrænan hátt.
Fjallagrös og kúmen: Íslensk
handtínd fjallagrös og kúmen.
Bæði gott og stútfullt af heilnæmri
næringu íslenskrar náttúru.
Tómatar og basil pestó: Hálf-
þurrkaðir lífrænir tómatar frá vinum
okkar í Friðheimum ásamt ferskum
basil, hvítlauk, næringargeri og
kasjúhnetubitum.
Svartur hvítlaukur: Gerjaður
svartur hvítlaukur og svartur pipar.
Dimmur og smá spæsí.
Mjúkir ostar
Camembert/BrieStyle – Mjúkur
og hvítur: Hvítmygluostur sem
gerður er eftir hefbundnum aðferðum
ostagerðar en við notum okkar
eigin kasjúhnetumjólk í stað þess
að nota hefðbundna dýramjólk í
framleiðsluna.
Gráða/Blámygluostur – Blár og
bragðmikill: Þessi ostur tekur
hvað lengstan tíma að búa til
og ná fram besta bragðinu og
fallegum bláum línum. Þess virði
að bíða eftir! Blámygluostur
sem gerður er eftir hefbundnum
aðferðum ostagerðar en við notum
okkar eigin kasjúhnetumjólk í
stað þess að nota hefðbundna
dýramjólk í framleiðsluna. Til að
hækka fituinnihaldið í ostinum
notum við lífræna kókosmjólk en
kókosbragðið hverfur í þroskaferlinu
og ostabragðið tekur yfir á dásam-
legan hátt.
Erlendur Eiríksson og Fjóla Einarsdóttir hafa alið með sér draum um veganostaframleiðslu í Hveragerði frá 2018 og nú er komið að því að markaðssetja vörurnar. Hér er Erlendur með kartarellur. Myndir / smh
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Erlendur kátur við plaggið um starfsleyfið til
grænkera ostagerðar, hið fyrsta sem veitt er
hér á landi.