Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 60
60 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Meðalafurðir eftir hverja á voru
27,91 kg sem er talsvert minna
en verið hefur síðastliðin tvö ár.
Árið 2020 voru meðalafurðir eftir
fullorðnar á 28,52 kg og árið 2021
voru afurðirnar 29,46 kg eftir ána
og hafa aldrei verið meiri. Það var
ekki hægt að búast við að stöðugur
stígandi yrði í afurðum eftir ána
milli ára en afurðir 2022 eru á mjög
svipuðu róli og þær voru árin 2018
og 2019.
Niðurstöður eftir svæðum
Afurðir voru gerðar upp í 125
fjárræktarfélögum. Stærsta
félagið er Fjárræktarfélag
Sveinsstaðahrepps í Austur-
Húnavatnssýslu með 10.343 ær á
skýrslum hjá 33 félagsmönnum.
Hjá nágrönnum þeirra í
fjárræktarfélagi Svínavatnshrepps
eru 30 félagsmenn með 6.636 ær á
skýrslum. Fjárræktarfélagið Stefnir
við vestanverðan Hrútafjörð er með
6.142 ær hjá 11 félagsmönnum,
Fjárræktarfélag Lýtingsstaðahrepps
í Skagafirði með 6.120 ær hjá 30
félagsmönnum og Fjárræktarfélagið
Tindur í Strandasýslu er með 6.092
ær hjá 25 félagsmönnum. Fæstar eru
ærnar í Fjárræktarfélagi Suðurnesja
eða 169 ær hjá 8 félagsmönnum
en þetta félag er jafnframt yngsta
fjárræktarfélag landsins.
Þegar niðurstöður eru
skoðaðar eftir sýslum ná
Vestur-Húnvetningar mestum
afurðum eftir sínar ær eða 30,6
kg eftir hverja. Næst kemur
Eyjafjarðarsýsla með 29,9 eftir
hverja á, þá Strandasýsla með 29,5
kg eftir hverja og síðan Dalasýsla
með 29,3 kg eftir hverja á.
Efstu búin
Þau bú í skýrsluhaldi sem skiluðu
uppgjöri fyrir árið 2022 og eru með
100 fullorðnar ær eða fleiri eru
samtals 923. Efstu búin á lista yfir
kg kjöts eftir hverja á sýna hvað
hægt er að ná gríðarlegum afurðum
eftir ærnar þar sem frjósemi er góð,
mikil vaxtargeta fyrir hendi hjá
lömbunum og aðstæður með þeim
hætti að sú vaxtargeta er nýtt. Þetta
árið eru það þrjú bú sem ná meira
en 40 kg eftir hverja á. Efst stendur
Gýgjarhólskot í Biskupstungum
með 44,6 kg. Þetta bú hefur skipað
efsta sætið samfellt frá árinu 2015
og alltaf náð meira en 40 kg eftir
ána. Mestar voru afurðirnar árið
2017, 48,1 kg eftir ána. Í öðru sæti
árið 2022 er Kiðafell í Kjós með 41
kg eftir ána og í þriðja sæti eru Efri-
Fitjar í Fitjárdal með 40,6 kg eftir
ána. Hjarðirnar á þessum bæjum
eru orðnar hagvanar í grennd við
afurðatoppinn.
Frjósemi og lömb til nytja
Afurðir eftir hverja á byggja á
fjölda lamba til nytja og fallþunga
lambanna. Þetta er því ekki
algildur mælikvarði á útkomu
sauðfjárbúa þar sem mismunandi
framleiðslukerfi henta fyrir
mismunandi bú. Sumir sjá hag
sinn í því að koma með lömbin
snemma til slátrunar en aðrir leggja
áherslu á að bata lömbin lengur og
nýta vaxtargetu þeirra að fullu. Í
þessu sambandi er mikilvægt að
allir leggi áherslu á að framleiða
góða vöru en lömbin mega hvorki
vera of holdlítil né of feit. Alltaf
er grundvallaratriði að lömbin séu
í góðu standi og framför þegar
kemur að slátrun þeirra.
Eitt mikilvægasta atriði m.t.t.
afkomu sauðfjárbúa, er að ná
sem flestum lömbum til nytja.
Frumskilyrði er að ærnar séu
frjósamar en síðan eru ýmsir þættir
sem hafa áhrif á lifun lambanna.
Meðalfrjósemi árið 2022 var 1,84
lömb eftir ánna. Frjósemin hefur
heldur potast upp á síðustu árum
þó landsmeðaltalið hreyfist mjög
hægt. Meðaltalið frá árinu 2000
hefur sveiflast frá 1,80 til 1,85
lömb en árið 2021 fór meðaltali í
1,85 lömb fædd í fyrsta sinn.
Því ber þó að halda til haga að
mörg bú hafa náð þarna frábærum
árangri og eru með frjósemi í
kringum tvö lömb eftir ánna en
það er jú ræktunartakmarkið.
Hinsvegar eru búin miklu fleiri
sem eiga mikil sóknarfæri í því að
bæta frjósemina og hér þyrfti að
nást aukinn árangur á næstu árum.
Nokkur munur er á milli landsvæða
í frjósemi. Best er frjósemi ánna í
Vestur-Húnavatnssýslu og Norður-
Þingeyjarsýslu þar sem hver ær
fæðir 1,92 lömb að jafnaði. Í
Suður-Þingeyjarsýslu og Eyjafirði
fæðast svo 1,90 lömb að jafnaði
hjá hverri á. Afgerandi minnst er
frjósemi ánna í Ísafjarðarsýslum
eða 1,61 lamb fætt eftir hverja.
Í Mýrasýslu eru þau 1,75 og í
Barðastrandarsýslum 1,79.
Til nytja eru að jafnaði 1,65
lamb eftir ána en árið 2021 komu
1,66 lömb til nytja og sá árangur
náðist einnig árin 2016 og 2017.
Veturgömlu ærnar
Veturgamlar ær eru 63.215 á
skýrslum árið 2022. Meðal
frjósemi þeirra er 0,95 lömb.
12,7% ánna voru geldar og 12,3%
af þeim var ekki haldið undir
hrút. Meðalafurðir eftir hverja
veturgamla á voru 11,64 kg. Árið
2021 voru meðalafurðir eftir hverja
veturgamla á 12,24 kg, fædd lömb
0,97, 12,6% voru geldar en 13%
ánna var ekki haldið undir hrút.
Ánægjulegt er að sjá að hlutfall
áa sem ekki er haldið undir hrút
lækkar nú aðeins milli ára. Mestum
afurðum eftir veturgamlar ær
(miðað við bú með 20 eða fleiri
veturgamlar ær) náðu Þorsteinn
og Katrín á Jökulsá í Borgarfirði
eystri. Þar voru afurðir eftir 48
veturgamlar ær 27,1 kg að jafnaði
eftir ánna.
Afurðir eftir allar ær búsins
(fullorðnar og veturgamlar)
Nú er í fyrsta sinn birtur nýr
afrekalisti í samantektum yfir
niðurstöður skýrsluhaldsins. Það er
listi yfir mestar afurðir eftir allar ær
og veturgamlar ær á búinu þá með
í hópnum. Búið í Gýgjarhólskoti
stendur á toppnum hér með 41,0
kg eftir hverja á.
Fullorðnu ærnar eru 286 en
þær veturgömlu eru 66 og er
þetta algerlega frábærar afurðir
eftir hjörðina. Í öðru sæti er Kot í
Svarfaðardal en þar eru fullorðnar
ær 101 en þær veturgömlu 7. Hver
ær í Koti skilar 37,6 kg. Svínafell 3
í Öræfum og Efri-Fitjar í Fitjárdal
deila svo 3. sætinu með 36,8 kg eftir
hverja á. Ragnheiður í Svínafelli
er með 239 fullorðnar ær og 51
veturgamla en fjölskyldan á Efri-
Fitjum er með 816 fullorðnar ær
og 198 veturgamlar. Þegar þessi
mælistika á afurðir er notuð skiptir
að sjálfsögðu máli hver hlutur
veturgömlu ánna er í heildarfjölda
áa og vert að hafa það í huga þegar
þessi afrekalisti er skoðaður. Hér má
einnig sjá hve mikilli framleiðslu
er hægt að ná ef tækifærin eru nýtt
eins og kostur er og tekst að láta allt
ganga vel upp.
Listi yfir bú sem ná góðum
árangri (úrvalsbú)
Í nokkur ár hefur verið birtur listi
Árni Brynjar
Bragason.
Eyþór Einarsson.
Niðurstöður sauðfjárskýrsluhalds árið 2022
Uppgjör fyrir árið 2022 byggir á 287.974 ám tveggja vetra og eldri og
eru skýrsluhaldarar um 1.567 talsins. Þetta er fækkun um 14.628 ær
miða við uppgjörið 2021. Fara þarf aftur fyrir árið 2007 til að finna
færri skýrslufærðar ær í landinu. Í einstökum sýslum er flestar á á
skýrslum í Austur-Húnavatnssýslu eða 27.445 ær. Í Skagafirði eru þær
25.345, í Norður-Múlasýslu eru þær 22.943 og í Vestur-Húnavatnssýslu
20.740. Í öðrum sýslum eru fullorðnar ær á skýrslum færri en 20.000.
Tafla 1. Efstu bú landsins samkvæmt afurðum eftir hverja fullorðna á. Einungis bú með 100 eða fleiri vetrafóðraðar ær.
Tafla. 2. Efstu bú landsins samkvæmt fjölda lamba til nytja eftir hverja fullorðna á. Bú með 100 eða fleiri vetrarfóðraðar ær.
Tafla 3. Efstu bú landsins samkvæmt afurðum eftir allar ær (veturgamlar og fullorðnar). Bú með 100 eða fleiri
vetrarfóðraðar kindur.