Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 60

Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 60
60 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS Meðalafurðir eftir hverja á voru 27,91 kg sem er talsvert minna en verið hefur síðastliðin tvö ár. Árið 2020 voru meðalafurðir eftir fullorðnar á 28,52 kg og árið 2021 voru afurðirnar 29,46 kg eftir ána og hafa aldrei verið meiri. Það var ekki hægt að búast við að stöðugur stígandi yrði í afurðum eftir ána milli ára en afurðir 2022 eru á mjög svipuðu róli og þær voru árin 2018 og 2019. Niðurstöður eftir svæðum Afurðir voru gerðar upp í 125 fjárræktarfélögum. Stærsta félagið er Fjárræktarfélag Sveinsstaðahrepps í Austur- Húnavatnssýslu með 10.343 ær á skýrslum hjá 33 félagsmönnum. Hjá nágrönnum þeirra í fjárræktarfélagi Svínavatnshrepps eru 30 félagsmenn með 6.636 ær á skýrslum. Fjárræktarfélagið Stefnir við vestanverðan Hrútafjörð er með 6.142 ær hjá 11 félagsmönnum, Fjárræktarfélag Lýtingsstaðahrepps í Skagafirði með 6.120 ær hjá 30 félagsmönnum og Fjárræktarfélagið Tindur í Strandasýslu er með 6.092 ær hjá 25 félagsmönnum. Fæstar eru ærnar í Fjárræktarfélagi Suðurnesja eða 169 ær hjá 8 félagsmönnum en þetta félag er jafnframt yngsta fjárræktarfélag landsins. Þegar niðurstöður eru skoðaðar eftir sýslum ná Vestur-Húnvetningar mestum afurðum eftir sínar ær eða 30,6 kg eftir hverja. Næst kemur Eyjafjarðarsýsla með 29,9 eftir hverja á, þá Strandasýsla með 29,5 kg eftir hverja og síðan Dalasýsla með 29,3 kg eftir hverja á. Efstu búin Þau bú í skýrsluhaldi sem skiluðu uppgjöri fyrir árið 2022 og eru með 100 fullorðnar ær eða fleiri eru samtals 923. Efstu búin á lista yfir kg kjöts eftir hverja á sýna hvað hægt er að ná gríðarlegum afurðum eftir ærnar þar sem frjósemi er góð, mikil vaxtargeta fyrir hendi hjá lömbunum og aðstæður með þeim hætti að sú vaxtargeta er nýtt. Þetta árið eru það þrjú bú sem ná meira en 40 kg eftir hverja á. Efst stendur Gýgjarhólskot í Biskupstungum með 44,6 kg. Þetta bú hefur skipað efsta sætið samfellt frá árinu 2015 og alltaf náð meira en 40 kg eftir ána. Mestar voru afurðirnar árið 2017, 48,1 kg eftir ána. Í öðru sæti árið 2022 er Kiðafell í Kjós með 41 kg eftir ána og í þriðja sæti eru Efri- Fitjar í Fitjárdal með 40,6 kg eftir ána. Hjarðirnar á þessum bæjum eru orðnar hagvanar í grennd við afurðatoppinn. Frjósemi og lömb til nytja Afurðir eftir hverja á byggja á fjölda lamba til nytja og fallþunga lambanna. Þetta er því ekki algildur mælikvarði á útkomu sauðfjárbúa þar sem mismunandi framleiðslukerfi henta fyrir mismunandi bú. Sumir sjá hag sinn í því að koma með lömbin snemma til slátrunar en aðrir leggja áherslu á að bata lömbin lengur og nýta vaxtargetu þeirra að fullu. Í þessu sambandi er mikilvægt að allir leggi áherslu á að framleiða góða vöru en lömbin mega hvorki vera of holdlítil né of feit. Alltaf er grundvallaratriði að lömbin séu í góðu standi og framför þegar kemur að slátrun þeirra. Eitt mikilvægasta atriði m.t.t. afkomu sauðfjárbúa, er að ná sem flestum lömbum til nytja. Frumskilyrði er að ærnar séu frjósamar en síðan eru ýmsir þættir sem hafa áhrif á lifun lambanna. Meðalfrjósemi árið 2022 var 1,84 lömb eftir ánna. Frjósemin hefur heldur potast upp á síðustu árum þó landsmeðaltalið hreyfist mjög hægt. Meðaltalið frá árinu 2000 hefur sveiflast frá 1,80 til 1,85 lömb en árið 2021 fór meðaltali í 1,85 lömb fædd í fyrsta sinn. Því ber þó að halda til haga að mörg bú hafa náð þarna frábærum árangri og eru með frjósemi í kringum tvö lömb eftir ánna en það er jú ræktunartakmarkið. Hinsvegar eru búin miklu fleiri sem eiga mikil sóknarfæri í því að bæta frjósemina og hér þyrfti að nást aukinn árangur á næstu árum. Nokkur munur er á milli landsvæða í frjósemi. Best er frjósemi ánna í Vestur-Húnavatnssýslu og Norður- Þingeyjarsýslu þar sem hver ær fæðir 1,92 lömb að jafnaði. Í Suður-Þingeyjarsýslu og Eyjafirði fæðast svo 1,90 lömb að jafnaði hjá hverri á. Afgerandi minnst er frjósemi ánna í Ísafjarðarsýslum eða 1,61 lamb fætt eftir hverja. Í Mýrasýslu eru þau 1,75 og í Barðastrandarsýslum 1,79. Til nytja eru að jafnaði 1,65 lamb eftir ána en árið 2021 komu 1,66 lömb til nytja og sá árangur náðist einnig árin 2016 og 2017. Veturgömlu ærnar Veturgamlar ær eru 63.215 á skýrslum árið 2022. Meðal frjósemi þeirra er 0,95 lömb. 12,7% ánna voru geldar og 12,3% af þeim var ekki haldið undir hrút. Meðalafurðir eftir hverja veturgamla á voru 11,64 kg. Árið 2021 voru meðalafurðir eftir hverja veturgamla á 12,24 kg, fædd lömb 0,97, 12,6% voru geldar en 13% ánna var ekki haldið undir hrút. Ánægjulegt er að sjá að hlutfall áa sem ekki er haldið undir hrút lækkar nú aðeins milli ára. Mestum afurðum eftir veturgamlar ær (miðað við bú með 20 eða fleiri veturgamlar ær) náðu Þorsteinn og Katrín á Jökulsá í Borgarfirði eystri. Þar voru afurðir eftir 48 veturgamlar ær 27,1 kg að jafnaði eftir ánna. Afurðir eftir allar ær búsins (fullorðnar og veturgamlar) Nú er í fyrsta sinn birtur nýr afrekalisti í samantektum yfir niðurstöður skýrsluhaldsins. Það er listi yfir mestar afurðir eftir allar ær og veturgamlar ær á búinu þá með í hópnum. Búið í Gýgjarhólskoti stendur á toppnum hér með 41,0 kg eftir hverja á. Fullorðnu ærnar eru 286 en þær veturgömlu eru 66 og er þetta algerlega frábærar afurðir eftir hjörðina. Í öðru sæti er Kot í Svarfaðardal en þar eru fullorðnar ær 101 en þær veturgömlu 7. Hver ær í Koti skilar 37,6 kg. Svínafell 3 í Öræfum og Efri-Fitjar í Fitjárdal deila svo 3. sætinu með 36,8 kg eftir hverja á. Ragnheiður í Svínafelli er með 239 fullorðnar ær og 51 veturgamla en fjölskyldan á Efri- Fitjum er með 816 fullorðnar ær og 198 veturgamlar. Þegar þessi mælistika á afurðir er notuð skiptir að sjálfsögðu máli hver hlutur veturgömlu ánna er í heildarfjölda áa og vert að hafa það í huga þegar þessi afrekalisti er skoðaður. Hér má einnig sjá hve mikilli framleiðslu er hægt að ná ef tækifærin eru nýtt eins og kostur er og tekst að láta allt ganga vel upp. Listi yfir bú sem ná góðum árangri (úrvalsbú) Í nokkur ár hefur verið birtur listi Árni Brynjar Bragason. Eyþór Einarsson. Niðurstöður sauðfjárskýrsluhalds árið 2022 Uppgjör fyrir árið 2022 byggir á 287.974 ám tveggja vetra og eldri og eru skýrsluhaldarar um 1.567 talsins. Þetta er fækkun um 14.628 ær miða við uppgjörið 2021. Fara þarf aftur fyrir árið 2007 til að finna færri skýrslufærðar ær í landinu. Í einstökum sýslum er flestar á á skýrslum í Austur-Húnavatnssýslu eða 27.445 ær. Í Skagafirði eru þær 25.345, í Norður-Múlasýslu eru þær 22.943 og í Vestur-Húnavatnssýslu 20.740. Í öðrum sýslum eru fullorðnar ær á skýrslum færri en 20.000. Tafla 1. Efstu bú landsins samkvæmt afurðum eftir hverja fullorðna á. Einungis bú með 100 eða fleiri vetrafóðraðar ær. Tafla. 2. Efstu bú landsins samkvæmt fjölda lamba til nytja eftir hverja fullorðna á. Bú með 100 eða fleiri vetrarfóðraðar ær. Tafla 3. Efstu bú landsins samkvæmt afurðum eftir allar ær (veturgamlar og fullorðnar). Bú með 100 eða fleiri vetrarfóðraðar kindur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.