Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 64

Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 64
64 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Hið árlega og einkar áhugaverða danska fagþing nautgripa- ræktarinnar, Kvægkongres, var haldið í lok febrúar sl. og líkt og undanfarinn áratug voru þar flutt ótal erindi sem eiga mörg hvert erindi við íslenska bændur. Fagþingið, sem er í senn bæði ársfundur félagasamtaka danskra nautgripabænda og fagfundur helsta vísindafólks í greininni, stóð í tvo daga og var skipt upp í 12 málstofur með 67 erindum. Í þessari grein verður gripið niður í nokkur erindi sem voru flutt í málstofunum um umhverfismál, líf kálfa og kúa og holdakúabúskap. 4. Umhverfismál Málstofan um umhverfismál var sú næststærsta á fagþinginu en alls voru flutt 8 erindi tengd þessu efni og raunar fleiri þar sem mörg önnur erindi á fagþinginu tengdust umhverfismálum með einum eða öðrum hætti, enda málefni sem er mikið í umræðunni nú um stundir. Verður hér vikið að tveimur erindanna í þessari málstofu. Leiðir til að draga úr sótspori Fyrra erindið sneri meðal annars að því hvernig Arla Foods, sem er stærsta afurðafélagið í danska mjólkuriðnaðinum, vinnur að því að draga úr sótspori sínu. Félagið hefur ákveðið að verða kolefnishlutlaust á komandi áratugum og var það fyrst alþjóðlegra afurðafélaga í mjólkuriðnaði í heiminum til að marka þá stefnu. Síðan hafa mörg fylgt í kjölfarið. Í erindinu kom fram að neytendur horfa einmitt til afurðafélaganna þegar kemur að sótsporinu og nýleg könnun í Danmörku sýnir m.a. að 80% neytenda gera ráð fyrir því að landbúnaðarafurðir séu framleiddar í sátt við umhverfið og með lágt sótspor. Einnig kom fram að neytendurnir treysta einmitt afurðafélögum betur til þess að ná tökum á þessu en hinu opinbera, þ.e. trúa því að markaðurinn sé betur til þess fallinn að koma með þær lausnir sem neytendur kalli eftir. Í dag eru danskir kúabændur í mjólkurframleiðslu með eitt lægsta sótspor heims á hvert framleitt kíló mjólkur en þrátt fyrir það hefur Arla sett fram markmið um að lækka það enn frekar. Í dag er reiknað meðalsótspor danskrar mjólkur um 1,1 CO2/kg en árið 2030 á það að vera komið niður fyrir 0,88 CO2/kg, sem er lækkun um 30% miðað við árið 2015. Til að ná þessu markmiði fá innleggjendur hjá Arla sérstakt álag á mjólkina í takti við mat á umhverfisálagi viðkomandi bús. Sérstakt skráningarkerfi vegur og metur stöðu hvers bús og því betur sem búin standa, því meira fá þau fyrir mjólkina. Bændunum stendur svo til boða að fá sérstaka ráðgjöf svo þeir geti náð bættum árangri. Ráðgjafarnir, í samstarfi við færasta vísindafólk Danmerkur, hafa sett fram raunhæfa áætlun um hvernig megi ná þessum árangri en þar vega þyngst atriði sem kallast „5 stærstu“ en þar á meðal er fóður- og áburðarnýting og ending kúa. Annað stórt atriði er sótspor aðkeypts fóðurs en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru fleiri atriði sem er horft til, en öll til samans skipta máli svo hægt sé að ná tilsettu markmiði árið 2030. Þá gera ráðgjafarnir ráð fyrir því að ef komi fram raunverulegar aðferðir til þess að draga úr metanlosun nautgripa, þá verði hægt að ná enn hraðari árangri en nú er stefnt að. Fæðubótarefni fyrir kýr? Hitt erindið sem hér verður fjallað um sneri að rannsókn á fæðubótarefni fyrir kýr en undanfarin ár hefur miklu púðri verið varið í rannsóknir á efnum sem mögulega draga úr metanlosun nautgripa við jórtrun. Svo virðist sem eitt efni standi mögulega öðrum framar, en það er efni sem kallast BOVAER® og inniheldur 3NOP (3 nítróoxyprópanól) en það er efni sem hindrar lokastig metanmyndunar í jórturdýrum. Þetta kom fram í erindi sem greindi frá tilraunaniðurstöðum með þetta efni en gerð hefur verið ítarleg rannsókn á þessu, á alls um 20 þúsund mjólkurkúm. Niðurstöðurnar sýna að þegar kúnum er gefin sérstök blanda af þessum efnum og fleirum þá minnkar metanlosun kúnna um 30-44%! Einungis þarf um 60 mg af þessu efni í hvert þurrefniskíló svo magnið er óverulegt og hefur fæðubótarefnið hvorki áhrif á nyt né mjólkurgæði. Enn er þó verið að rannsaka langtímaáhrif fóðrunar með efninu en ef að líkum lætur verður það markaðssett síðar á þessu ári eða í byrjun þess næsta. Þess má geta að ýmis önnur efni eru í prófun nú í Danmörku og líklega það áhugaverðasta er duft sem unnið er úr rauðu þangi sem heitir Asparagopsis taxiformis. Fyrstu tilraunir Dana, sem gerðar hafa verið á kjötframleiðslugripum, lofa hreint ótrúlega góðu og nú er því beðið með eftirvæntingu tilraunar með mjólkurkýr en hún hefst í þessum mánuði. Þetta efni hefur verið prófað víða um heim með góðum árangri en langtímaáhrifin liggja ekki fyrir, s.s. hvort þangið hafi áhrif á bragðgæði mjólkurvara. Tilraunir sýna að fæðubótarefni fyrir kýr, sem unnið er úr þangtegund sem heitir Asparagopsis taxiformis, getur snardregið úr metanlosun nautgripa í framtíðinni en tilraunir með efnið fara nú fram í Danmörku. Óhætt er að mæla með því fyrir áhugasama að kynna sér önnur erindi þessarar málstofu. 5. Líf kálfa og kúa Þessi málstofa, sem er með nokkuð óvenjulegu nafni, var sú stærsta á fagþinginu en um eins konar safnkistu erinda var að ræða. Þau voru því mjög ólík en nokkur þeirra sneru að aðbúnaðarmálum, eitt að kynbótum, annað að frjósemi o.s.frv. Verður hér gripið niður í tvö þeirra. Lengra bil á milli burða Nánast um allan heim er bil milli burða hjá kúm í kringum 1 ár en það þekkist þó vel að hafa lengra bil á milli burða og sneri einmitt eitt erindið að rannsókn á því sem vísindafólk á vegum háskólans í Aarhus framkvæmdu á 48 kúabúum þar sem kýr voru ekki sæddar fyrr en að lágmarki 100 dögum frá burði. Kostir þess að hafa lengra á milli burða eru að þá eru hlutfallslega færri geldstöðudagar miðað við framleiðsludaga og færri burðir sem margir leggja að jöfnu við aukna endingu kúa. Þá þýðir það um leið að þörfin fyrir kvígur minnkar vegna lægri endurnýjunarþarfar. Gallinn er aftur á móti að það dregur nokkuð úr nytinni þegar líður á mjaltaskeiðið, það verður meiri truflun í hjörðinni vegna yxnis og þá er kúnum hætt við að fitna. Niðurstöður rannsóknarinnar, þar sem bornar voru saman upplýsingar frá búum með langt bil á milli burða og öðrum með styttra bil, sýndu að kýr sem eru sæddar lengra frá burði halda betur, sem kemur væntanlega ekki mörgum kúabændum á óvart. Þá var ekki munur á frumutölu eða 305 daga nyt kúa svo ljóst er að júgurvefurinn jafnar sig jafn vel í kúm sem eru með langt mjaltaskeið og hjá þeim sem eru með styttra mjaltaskeið. En það sem kom á óvart var að endurnýjunarhlutfall þessara kúa var ekki lægra en samanburðarkúa. Þ.e. bændurnir á búum með lengra bil á milli burða sendu álíka margar kýr í slátrun og hinir sem ekki voru með þessa framleiðsluaðferð. Skýringin var sú að heilsufar sumra kúa var ekki nógu gott og var á það bent í niðurstöðum rannsóknarinnar að munur innan hjarðar skipti í raun meira máli en milli hjarða. Með öðrum orðum þá þyrfti að finna leið til þess að geta fundið heppilegar kýr fyrir langt mjaltaskeið og sæða þær þá síðar en aðrar sem síður eru til þess fallnar. Munur á broddi á milli búa Síðara erindið sem hér verður fjallað um sneri að einkar áhugaverðri rannsókn á broddmjólkurgæðum í dönskum fjósum. Gæði brodd- mjólkur, mæld sem magn mótefna með svokölluðum Brix mæli, skipta verulegu máli fyrir kálfinn, þrif hans og vöxt og því betri sem gæðin eru því betur þrífst kálfurinn. Þar að auki er mikill munur á því hve mikið þarf að gefa kálfum af broddmjólk, Snorri Sigurðsson snorri.sigurdsson@outlook.com Á FAGLEGUM NÓTUM Fagþing dönsku nautgriparæktarinnar 2023 – Annar hluti Samkvæmt ráðgjöfum Arla þarf að taka á mörgum þáttum til þess að ná árangri í baráttunni við sótspor mjólkurframleiðslunnar og hefur verið sett upp raunhæf áætlun þar sem hver þáttur hefur fengið vægi fram til ársins 2030. Mæld meðal broddmjólkurgæði í 37 dönskum fjósum. Mynd. Meyer og Kristiansen Með rétt stýrðri beit getur fengist einstakur líffræðilegur fjölbreytileiki sem hvorki kemur án beitar né við mikla beit. Tilraunir sýna að fæðubótarefni fyrir kýr, sem unnið er úr þangtegund sem heitir Asparagopsis taxiformis, getur snardregið úr metanlosun nautgripa í framtíðinni en tilraunir með efnið fara nú fram í Danmörku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.