Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Má geta þess, að vél þessi er
sú 146. sem verksmiðjan byggir,
og sú fyrsta, sem seld er úr landi
en pantanir á þessum vélum liggja
fyrir í tugþúsunda tali.
Dagana fram til sunnudags
verður það af merkjunum, sem
enn er óselt, selt á götunum og á
skrifstofu S.Í.B.S.“
Margar greinar voru um flugvélina
í dagblöðunum í upphafi árs 1947
og af heimildum að dæma má ætla
að SÍBS hafi náð að vekja mikinn
áhuga á þátttöku í happdrættinu.
Hún var höfð til sýnis, ýmist í
Reykjavíkurhöfn eða á flugi yfir
bæinn. Einnig mun henni hafa verið
flogið til Vestmannaeyja.
„Bæjarbúum verður gefinn
kostur á að sjá vélina fram að helgi,
ef veður leyfir, því hún mun öðru
hvoru fljúga yfir bæinn til að sýna
sig og varpa niður flugmiðum,“
segir í Tímanum 29. janúar, en
flugmiðarnir giltu sem farmiði í
hringflug yfir bæinn.
4 ára drengur tók við flugvél
Dregið var um flugvélina að
kvöldi 1. febrúar 1947 og voru
vinningshafarnir Björn Björgvins-
son, 4 ára gamall, og óskírð systir
hans á fyrsta ári, sem síðar fékk
nafnið Guðbjörg. Í Morgunblaðinu
4. febrúar 1947 segir:
„Í gærmorgun var Birni afhent
flugvjelin. Sú athöfn fór fram suður á
Reykjavíkurflugvelli [...]. Miðstjórn
SÍBS var viðstödd athöfnina. Björn
litli kom suður eftir með föður
sínum. Drengurinn gekk fyrir forseta
SÍBS, Maríus Helgason og afhenti
honum happdrættismerkið, nr.
21900, en Maríus sagði drengnum
að flugvjelin væri hjer með hans
eign og systur hans.
Síðan gekk Björn fyrir alla
meðlimi miðstjórnarinnar og
þakkaði þeim með handabandi.
Síðan var þeim feðgum flogið hjer
yfir bæinn og nágrenni hans og þótti
drengnum það hin besta skemtun.“
Í samtali við Þjóðviljann af
þessu tilefni sagði Björn: „Ég var
hræddur. Vélin renndi sér niður
bratta brekku, niður í sand.“
Seld til nýs flugfélags
Tveimur vikum eftir að systkinin
eignuðust flugvélina var hún seld,
en kaupandinn var hið nýstofnaða
Flugfélag Vængir hf. í Reykjavík,
sem var þá eitt af þremur flugfélögum
sem störfuðu á landinu.
Á bak við það stóðu Níels Níelsson
formaður, Karl Sæmundsson og
Sigurgeir Sigurdórsson. Í Vísi 12.
apríl segir að hún muni verða notuð
í hringflug í nágrenni Reykjavíkur
og í leiguflug til lengri og skemmri
ferða. Þar segir líka að hún sé
hentug í veiðiferðir til veiðivatna,
ferðalög um óbyggðir landsins og
sumarleyfisferðir.
„Að undanförnu hefir vélinni
verið flogið í allmargar ferðir til
Heklu með farþega og hefir gefizt
ágætlega,“ segir í greininni, en
skömmu áður hafði eldfjallið byrjað
að gjósa.
Á sama stað er skrifað: „Er þess
að vænta, að félagið eigi langa og
gifturíka framtíð fyrir höndum,
því að samgöngur í lofti aukast nú
hröðum skrefum [...].“ Raunin var
sú að eftir skamman feril fataðist
Vængjum hf. flugið.
Sumarið 1948 hóf flugfélagið
áætlunarflug milli Akraness og
Reykjavíkur, en hún þótti henta vel
til þess þar sem enginn flugvöllur
var á Akranesi. Flugvélin lenti þá
á Krossvíkinni og var síðan ekið
upp á Langasand. Flugfélagið
fékk jarðýtu til að hreinsa
lendingarsvæðið og var samið
við bæjarstjórn Akraness að gætt
yrði þess að svæðið yrði ekki fyrir
ágangi fólks. Langisandur fékk
viðurkenningu flugmálastjórnar
sem flugvöllur.
Ferðirnar voru venjulega tvisvar
til þrisvar á hverjum degi yfir
sumartímann og voru brottfarar-
tímarnir breytilegir þar sem þeir
réðust af flóði og fjöru. Flugið
frá Reykjavík til Akraness tók
tíu til fimmtán mínútur og var
fargjaldið 35 krónur hvora leið
sumarið 1948, sem samsvarar
3.335 krónum á verðlagi dagsins í
dag, samkvæmt verðlagsreiknivél
Hagstofu Íslands.
Flugfélagið fjölgaði áfanga-
stöðum og fékk aðra litla flugvél
til umráða, sem gat þó einungis lent
á landi. Í Vísi 18. febrúar 1949 er
þess getið að Flugfélagið Vængir
hafi flutt 380 farþega árið 1947 og
3.206 farþega árið 1948.
Á sama stað kemur fram að
starfsemin hafi legið niðri það sem
liðið var af ári vegna illviðra.
Sökk á hestamannamóti
Sunnudaginn 9. júlí 1950 var
mikill mannfjöldi á Þingvöllum
í tengslum við fyrsta Landsmót
hestamanna og bauð Flugfélagið
Vængir upp á hringflug um
Þingvallavatn og nágrenni. Að
kvöldi þess dags hlekktist Sea Bee
flugvélinni á í vatninu og sökk.
„Slysið bar að með þeim hætti
að flugvélin [...] var nýlent á
víkinni utanvert við Valhöll, en
rakst á blindsker eða hraunnibbu
í vatninu þegar hún var að
keyra eftir því áleiðis í land. Við
áreksturinn, sem var allharður
kom gat á botn flugvélarinnar
og tók hún þá að hallast á vinstri
vænginn og seig síðan niður
í vatnið á örfáum mínútum. Í
flugvélinni voru þrír farþegar auk
flugmanns [...]. Tveir farþeganna
og flugmaðurinn komust skjótlega
út og voru björgunarhringar handa
þeim í vélinni. Þriðji farþeginn
sökk með vélinni en fyrir harðfylgi
og dugnað flugmanns tókst að ná
farþeganum út og koma honum á
vænginn, sem þá var enn fyrir ofan
vatnsborðið,“ segir í Vísi 10. júlí
árið 1950.
Farþegar vélarinnar voru ungir
piltar og var þeim, ásamt flug-
manninum, bjargað eftir að hafa
verið í tuttugu mínútur í vatninu
og hlutu þeir aðhlynningu í Valhöll.
Umhverfis blindskerið var
nokkuð dýpi og snérist flugvélin á
hvolf í vatninu. Daginn eftir hófust
björgunartilraunir, sem stóðu yfir
í nokkra daga. Með vinnu kafara
tókst að koma flugvélinni á réttan
kjöl og var hjólum komið fyrir svo
unnt væri að draga hana á land
eftir botninum. Þann 14. júlí var
flugvélin komin á þurrt og reyndist
lítið skemmd.
Lítið er um heimildir um starf-
semi Flugfélagsins Vængja eftir
þetta, en þann 14. desember 1950
var haldið nauðungaruppboð á
báðum flugvélum flugfélagsins
og keypti Björn Pálsson þær og
hugðist gera Sea Bee vélina upp.
Í ágúst 1955 var stofnað nýtt
flugfélag undir sama nafni, en á
bak við það stóð annað fólk en hjá
forveranum.
Brann og endaði sem vinnuskúr
Þann 18. apríl 1951 kom upp
bruni á flugvélaverkstæði við
flugskýli félags einkaflugmanna
á Reykjavíkurflugvelli.
Verkstæðið var skúr áfastur
flugskýlinu, byggður úr timbri og
klæddur að innan með trétexi, og
varð alelda á svipstundu þar sem
loftið var mengað bensíngufu.
Þarna inni voru vængir Sea Bee
flugvélarinnar. Í sjálfu flugskýlinu
voru fimmtán flugvélar, ásamt
skrokkum flugvélanna hans
Björns, sem tókst að bjarga. Sea
Bee flugvélin var í kjölfarið talin
ónýt, því þó tekist hafi að bjarga
skrokknum, þá eyðilagðist svo
mikið henni tilheyrandi að tjónið
var talið óbætanlegt.
Flugvélin var afskráð árið 1952
og endaði flugvélaskrokkurinn
sem vinnuskúr við húsbyggingu í
Kópavogi.
LÍF&STARF
Nokkrum mánuðum eftir að flugvélin sökk var uppboð á eignum Vængja hf.
Mynd / timarit.is
Republic See Bee flugvél frá árinu 1947, sambærileg þeirri sem systkinin áttu, sem var einnig silfurgrá að lit. Mynd / Daderot – Wikimedia Commons
SÍBS seldi tölusett merki Berkla-
varnardagsins, sem er fyrsti sunnu-
dagurinn í október. Mynd / timarit.is
Ballettkennari og fyrrum eigandi flugvélar
Guðbjörg Björgvinsdóttir er annað þeirra systkina sem
unnu flugvélina í febrúar árið 1947. Þá var hún rúmlega tveggja
mánaða gömul og bróðir hennar fjögurra ára. „Það eru ekki
margir sem hafa unnið flugvél í happdrætti,“ segir Guðbjörg og
bætir við að fólk taki gjarnan andköf þegar hún segist vera fyrrum
eigandi flugvélar. „Það er gaman fyrir mig að rifja þetta upp og
leita eftir því sem ég vissi ekki,“ segir Guðbjörg, en það var lítið
rætt um happdrættisvinninginn í hennar ungdómi.
Sjálf man hún ekki eftir flugvélinni, en hún var heima á meðan
pabbi hennar og Björn bróðir tóku við henni á Reykjavíkurflugvelli.
Björn mundi ágætlega eftir athöfninni og flugferðinni sem fylgdi í
kjölfarið, en hann lést árið 2017. Hann vann sem bankamaður og
var síðustu árin starfsmaður hjá Seðlabankanum.
„Vinningurinn kom á miða sem pabbi og mamma höfðu
keypt og gefið okkur systkinunum. Ég man vel eftir þessum
merkjum, þau voru kringlótt og það var járn á þeim þannig að
maður gat smellt þeim á jakkaboðunginn.
Það er svo greypt í hugann á mér, því þetta var selt í mörg ár
á eftir. Ég hef verið að sýna barnabörnunum þetta – þau vissu
náttúrlega ekkert að amma hafi átt flugvél. Þetta er skemmtileg
saga og ótrúlegt að maður skuli hafa lent í því að eignast þetta,“
segir hin 76 ára Guðbjörg.
Hún rak ballettskóla á Seltjarnarnesi í 37 ár. „Ég byrjaði að kenna innan við tvítugt og það var lifibrauðið mitt alla tíð.
Það eru fleiri þúsund börn sem maður er búinn að kenna í gegnum árin,“ en Guðbjörg lét af störfum fyrir þremur árum.