Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Þar sem allt
snýst um
gæði
Drifbúnaður, legur, keðjur
og reimar frá SKF.
Smurkerfi frá Lincoln.
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 | 580 5800 | LANDVELAR.IS
LAUSNIR Á LAGER
Samþykkt
ÞÓR HF
thor.is
EK1-261
Ert þú með fjárgæslu í sauðburðinum ?
Eigum tilbúnar myndavélalausnir sem sniðnar eru að þörfum bænda.
Tími sauðburðar er að hefjast, því er fjargæsla í fjárhúsum oft mikil hagræðing.
Myndavélarnar er hægt að nota með snjallsíma, spjaldtölvu eða venjulegri
heimilistölvu.
Myndavélarnar eru hreyfanlegar, rakaheldar og ljósnæmar, þannig að þær virka
vel í lítilli birtu og eru líka með innrauða lýsingu, fyrir algert myrkur.
Lausnirnar eru sniðnar af þínum þörfum og afhentar tilbúnar til uppsetningar .
Heyrðu í okkur í síma 4144400 eða sendu póst á sala@icecom.is
Við finnum lausn sem hentar þér og aðstoðum við uppsetningu.
Á dögunum fóru fram vetrardagar
Akraness þar sem menning var í
hámæli. Boðið var m.a. upp á
flot- þerapíu, erindi um lífríki
borg- firsku ánna, kyrrð og íhugun
í Akraneskirkju og karókíkvöld
svo eitthvað sé nefnt.
Gestir Akraness nutu því heldur
betur örvunar allra skynfæra enda
buðu Vetrardagarnir einnig upp á
nokkurt úrval sýninga áhugaverðra
listamanna. Meðal þeirra var Herdís
Arna Hallgrímsdóttir, grafískur
hönnuður, sem var við nám og störf
á vesturströnd Bandaríkjanna.
Þessi fyrsta sýning Herdísar
hérlendis Fyrst vetur, svo vor,
var málverkasýning innblásin af
komandi vori, blómum framtíðar
og hækkandi sól – eins og hún sjálf
komst að orði. Einkenndi nokkur
hluti verkanna mínímalískan
stíl nútímans og gaman að sjá
færni listamannsins, sérstaklega í
mannamyndum.
Seldist helmingur mynda hennar
á Vetrardögunum og verður gaman
að fylgjast með þessum upprennandi
listamanni. Aðspurð segir Herdís að
hún hafi ákveðið að láta slag standa,
tekið áskorun um að ganga í það
að setja upp sýningu og gekk eftir
að húsnæði var auðfengið og því
ekkert að vanbúnaði. Fannst henni
nauðsynlegt að fagna hækkandi sól
eftir langan vetur og sér fyrir sér að
næsta sýning verði fyrr en síðar.
Hefur Herdís augastað á Vöku-
dögum Akraness sem haldnir eru í
októberlok og ættu þá áhugasamir
aldeilis að fylgjast með, þá ekki síst
þeir sem langar að gefa persónulegt
listaverk í jólagjöf!
/SP
Grafískur mínímalismi Herdísar Örnu:
Með hækkandi sól
Listamaðurinn Herdís Arna ásamt nokkrum verka sinna.
Upplýsingar um völvuleiði
Upphaflega ætlaði Sigurður að
skrifa BA-ritgerð í þjóðfræði um
þessi völvuleiði, veturinn 1997–
1998, en af því varð ekki, aðallega
sökum þess að honum varð ljóst að
hann gæti ekki náð utan um þau öll
á þeim tímapunkti. Lokaverkefnið
varð því annað. Hins vegar skrifaði
hann grein um þau í Lesbók
Morgunblaðsins 1992, sem vakti
athygli enda málið forvitnilegt. Hún
bar yfirskriftina: Sagnir og minjar
um Völvuleiði á Íslandi.
„Mig langaði hér að nota
tækifærið að athuga hvort
lesendur Bændablaðsins viti deili
á einhverjum völvuleiðum og þá
jafnvel hvort einhverjar nýrri sagnir
tengjast þeim, eitthvað undarlegt
sem átt hefði sér stað nærri þeim.
Ekkert slæmt endilega, heldur
eitthvað illskiljanlegt.
Ég veit sjálfur um nokkra slíka
atburði og varð vitni að einum. En
ég má ekki ljóstra of miklu upp á
þessari stundu. Bókin er hins vegar
væntanleg á markað í vetrarbyrjun.“
Sigurður biður fólk sem geti
liðsinnt honum að senda sér
tölvubréf á sae@sae.is eða hafa
samband í síma 899-0278. „Ég tek
fagnandi við öllum upplýsingum,
jafnvel þótt ég kunni að vita af hinu
eða þessu völvuleiðanna. Maður
getur alltaf á sig blómum bætt. Og
góð vísa er aldrei of oft kveðin.“