Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 69
69Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Vönduð og fagleg lögmannsþjónusta
með starfsstöðvar bæði í Reykjavík og á Hvolsvelli.
Helstu réttarsvið: Félagaréttur, eignaréttur, samningaréttur,
orkuréttur, erfðaréttur, gjaldþrotaréttur stjórnsýsluréttur o.fl.
Yfir 30 ára reynsla af lögmannsstörfum.
Helgi Jóhannesson, lögmaður helgi@lr.is Sími 849-0000
Borgartúni 25, Reykjavík Austurvegi 4, Hvolsvelli Sími 515-7400
LÖGMANNSÞJÓNUSTA
Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík - s. 787 9933
vpallar@vpallar.is - www.vpallar is
NÝ VERSLUN VAGNHÖFÐA 7
TIMBUR EININGAHÚS
Sími: 893 3022 einingar@einingar.is
www.einingar.is
VARAHLUTIR OG BÍLAVÖRUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á
www.bilanaust.is
Kaflaskipti í kornrækt
Bleikir akrar, aðgerðaráætlun um aukna kornrækt
var kynnt nýlega. Skýrslan var unnin af sérfræðingum
við Landbúnaðarháskóla Íslands að beiðni míns
ráðuneytis. Skýrslan markar ákveðin kaflaskil í
landbúnaðarmálum.
Í skýrslunni eru tillögur um
aðgerðir til þess að skapa skilyrði
fyrir því að kornrækt geti vaxið og
dafnað. Ég lagði áherslu á kornrækt
við vinnslu fjármálaáætlunar og því
er gert ráð fyrir tveimur milljörðum
króna verði varið til þess að efla
kornrækt á tímabilinu 2024-2028.
Nú þegar fast land er komið undir
fjármögnun þessara aðgerða er
verkefnið að forgangsraða þeim og raða upp á tímaás
Áform um að efla kornrækt á Íslandi eru engin
nýlunda. Munurinn þá og nú er sá að það er pólitískur
vilji í matvælaráðuneytinu til þess að fylgja málinu
eftir og að mér virðist ríkja þverpólitísk samstaða um
mikilvægi þess að efla kornrækt. Þá hafa athuganir leitt í
ljós að þvert á það sem oft hefur verið haldið fram þá geti
kornrækt vel verið samkeppnishæf á jafningagrundvelli
við önnur lönd. Hér eigum við gnógt af ræktarlandi,
jarðvegur sé frjósamur og landleiga því lág ásamt því
sem þörf fyrir plöntuvarnarefni sé minni en annarsstaðar.
Sókn er besta vörnin
Frá því í lok áttunda áratugarins hefur umræða um
landbúnaðarmál á hinum pólitíska vettvangi snúist um
vörn, um að draga úr framleiðslu og hagræðingu. Um
það að stilla upp falskri tvíhyggju sem snýst um það að
standa annaðhvort með neytendum eða með bændum.
Slíkri tvíhyggju hef ég hafnað þar sem að neytendur
og bændur geta ekki án hvors annars verið. Hagsmunir
dreifbýlis og þéttbýlis eru samofnir. Þannig er stærsta
hagsmunamál landbúnaðar í dag hið sama og annarra
íbúa landsins, að kveða niður verðbólgudrauginn þannig
að vextir fari lækkandi.
Í bakgrunninum hafa orðið straumhvörf í umræðu
um landbúnaðarmál síðustu ár. Áskoranirnar næstu
áratugi eru ekki of mikil framleiðsla. Heldur hvernig
við fæðum mannkyn á sama tíma og draga þarf úr allri
aðfanganotkun vegna umhverfis og loftslagsmála. Eins
og bændur þekkja vel hefur raunverð á kornvöru farið
hækkandi síðustu ár og steininn tók við innrás Rússa í
Úkraínu fyrir ári. Þá hefur verið vaxandi umræða um
mikilvægi loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni
einnig verið í forgrunni. Þannig er staðan víðast hvar
í heiminum sú að ræktarland er uppurið, ólíkt því sem
hér þekkist. Í fyrrnefndri skýrslu eru færð rök fyrir því
að hugsanlega megi slá tvær flugur í einu höggi með
aukinni kornrækt, binda kolefni í rýrum jarðvegi og
framleiða matvæli. Því eru forsendur fyrir því að snúa
þessari umræðu við loksins. Að sækja fram völlinn,
um fjárfestingar í framförum en ekki varnarbaráttu.
Það er framfaramál auk þess að vera mikilvægt m.t.t.
fæðuöryggis.
Það er til mikils að vinna að byggja nýja stoð í
landbúnaðinum. Byltingarkennd tækni í kynbótum
plantna mun verða nýtt til þess að hraða erfðaframförum.
Fyrstu kynbótalínur með nýrri tækni koma til prófana
næsta sumar á Íslandi. Það mun þó taka tíma og
þolinmæði að byggja upp þá innviði sem þarf. Enda hafa
Íslendingar margoft brennt sig á því að ætla að byggja
atvinnugreinar upp með of miklu kappi. Þannig verður
hugsað til þess við útfærslu að stuðningurinn muni ekki
eigngerast eða á endanum verða til þess að upprunalegi
tilgangur hans glatist, að hvetja til framfara.
Samlög bænda forsenda
Grundvallarforsenda þess að kornræktin taki að vaxa eru
bændur. Áform stjórnvalda plægja enga akra ein og sér.
Frumkvöðlar í kornrækt hafa þegar sýnt að korn þrífst
vel hér á landi og með því að tileinka sér bestu aðferðir
er áhættan lágmörkuð. En samtakamátturinn þarf að
koma til þar sem að lykil millilið vantar í virðiskeðju
kornræktar á Íslandi – samlögin. Það væri lítill bragur
á mjólkurframleiðslu á Íslandi ef að bændur þyrftu að
skilja rjómann , strokka smjörið og aka því til kaupstaðar
eins og fyrir öld síðan. Uppbygging framleiðendafélaga
um frumvinnslu var forsenda. Þetta skortir í kornrækt
og því er lögð áhersla á það í skýrslunni að stuðla að
fjárfestingum í þessum innviðum. Þess vegna verður
lögð rík áhersla á að styðja metnaðarfull verkefni með
fjárfestingarstuðningi. En til að það sé raunhæft er
nauðsynlegt að bændur sem hafa trú á kornrækt taki
sig saman og ræði með hvaða hætti skynsamlegast er
að byggja upp samlög.
Mestu framfaratímabil í íslenskum landbúnaði hafa
verið vegna þess að fjárfest var í framförum. Það hefur
löngum reynst torsótt að fjárfesting í landbúnaði sé
næg þar sem að þörf er fyrir þolinmótt fjármagn. Það
gildir ekki einvörðungu á Íslandi heldur er um það rætt
á flestum þeim alþjóðlegu fundum um landbúnaðarmál
sem ég hef sótt. Að fjárfesting í landbúnaði sé ónóg til
þess að við náum markmiðum í loftslagsmálum og til
þess að tryggja að það verði nóg til fyrir ört vaxandi
mannkyn.
Vegna þessa er fjárfestingarstuðningur við
framleiðsluinnviði kornræktar mikilvægur þáttur til
þess að láta hjólin byrja að snúast. Með því að stíga
nauðsynleg skref núna mörkum við upphafið af nýjum
tíma þar sem að nokkrum árum liðnum það verða bleikir
akrar í bland við slegin tún víðar um landið.
Svandís Svavarsdóttir,
matvælaráðherra.
Svandís
Svavarsdóttir
AF VETTVANGI STJÓRNARRÁÐSINS