Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
forgangs. Það er bara hvati til að
auka innflutning og gagnvart honum
höfum við oft og tíðum ekki mikla
möguleika. Gildir þá einu um hvaða
framleiðslu er um að ræða.“
Innflutningur á kjúklingakjöti
hófst árið 2011 og hefur aukist
jafnt og þétt síðan. Á meðan hefur
innlend framleiðsla dregist lítillega
saman. Jón Magnús segir að þó að
íslenska framleiðslan geti átt erfitt
uppdráttar í verðsamkeppni við
ódýra erlenda vöru geti hún hæglega
tekið þátt í samkeppni um gæði og
ferskleika. Hann gagnrýnir þau rök
að aðhalds og samkeppni sé þörf og
því sé innflutningur nauðsynlegur.
Mikil samkeppni sé á milli þeirra
þriggja fyrirtækja sem slátra og selja
kjúklingakjöt.
„Þessi endalausi áróður og
virðingarleysi við kjúklingabændur
og aðra bændur, um að við önnum
ekki eftirspurn og að við séum
ekki færir um hitt og þetta, er mér
þyrnir í augum. Þetta tal er borið
uppi af ákveðnum aðilum. Þeirra
hagsmunir eru að flytja inn og selja
innfluttar landbúnaðarvörur. Við
höfum verið að framleiða sama
magn af kjúklingum undanfarin ár
en öll neysluaukningin hefur verið
borin uppi af innfluttu kjöti. Allur
innflutningur á vörum sem hægt er
að framleiða hér rýrir hagkvæmni
innlendu framleiðslunnar.“
Ekkert fer til spillis
Í skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins
Environice, „Kolefnisspor íslenskra
kjúklinga og leiðir til að minnka
það“, er fullyrt að kolefnisspor
íslenskra kjúklinga sé minna en flestra
annarra dýrategunda til manneldis.
Einnig að kolefnisspor íslenskrar
kjúklingaframleiðslu sé langt fyrir
neðan heimsmeðaltal.
„Ástæðurnar eru fyrst og
fremst notkun á grænni orku við
framleiðsluna. Framleiðsluhúsin
þurfa að vera vel upp hituð. Heitt
vatn er notað við upphitun þeirra,“
segir Jón Magnús. Þá nefnir hann
nýlega breytingu við urðun úrgangs
úr framleiðslunni sem bætir enn stöðu
innanlandsframleiðslunnar varðandi
kolefnisspor. „Fyrirferðarmikill
losunarþáttur var urðun á úrgangi úr
sláturhúsum og útungunarstöðvum.
Nú hefur urðun verið hætt og
allur úrgangur fer í Orkugerðina í
Hraungerðishreppi, þar sem unnið
er úr hráefninu mjöl sem notað er til
áburðar og landgræðslu.
Sama gerist með skítinn sem er
afar kraftmikill áburður. Hann er
allur notaður í uppgræðslu á tún, í
grasnytjar eða garðyrkju. Þannig
getum við sagt með hreinni samvisku
að allur úrgangur, eða hráefni, sem
ekki er notaður til manneldis í
kjúklingarækt, fer beint í að auðga
íslenska náttúru.“
Bent hefur verið á að íslensk
kjúklingarækt sé ósjálfbær því hún sé
alveg háð innfluttu fóðri. Jón Magnús
bendir á að þegar búið sé að renna
fóðrinu í gegnum kjúklinginn þá verði
til áburður, í formi kjúklingaskíts, sem
sparar innkaup á þúsundum tonna af
tilbúnum áburði. Hann reiknar með
að rúm eitt kíló af skít verði til frá
hverjum kjúklingi á eldistímanum.
Umfang landsframleiðslunnar telji
um 6 milljón fugla á ári. Það geri um
6 milljónir kílóa af áburði sem nýtist
til hérlendis.
Jón Magnús segir matvæla-
framleiðslu á Íslandi vera í háum
gæðaflokki en sökum legu landsins
og stærðar markaðarins sé hún
oft dýrari en innflutt vara. „Afar
áríðandi er því að skapa innlendri
matvælaframleiðslu þau skilyrði að
geta keppt við innflutta vöru. Það
er bæði pólitísk og samfélagsleg
ákvörðun sem brýnt er að taka. Sé
það gert mun íslensk framleiðsla,
framleidd við þau frábæru skilyrði
sem hér eru eiga alla framtíð fyrir sér.“
Egg sem ekki nýtast í eldi eru afar vinsæl vara í heimaversluninni. Viðskiptavinir bíða alla jafna í röð fyrir utan við
opnunartíma.
Litið inn í stofnfuglaeldi. Öll alifuglarækt á Íslandi fer fram án sýklalyfja og
undir ströngu eftirliti. Tvö lönd skara fram úr þegar kemur að vaxtarhraða
kjúklinga, Ísland og Nýja-Sjáland. Ástæðan er lág sjúkdómastaða.
20% afsláttur af öllum
innréttingum til páska.
Við aðstoðum þig við hönnun á þinni
drauma innréttingu.
Á miðvikudögum og fimmtudögum er opið í heimaverslun Reykjabúsins. Þar fæst bæði ferskt og
frosið kjöt og ýmsar fágætar vörur, bæði unnar og óunnar.
Eggin úr útungunarhænum eru flokkaðar, hreinsaðar og færðar til geymslu og síðar til útungunar
og eldis. Umfang íslenskrar kjúklingaframleiðslu er um 6 milljón fuglar.
Kjúklingaeldi Framleiðandi
Sanderði Ísfugl
Fagrabrekka Ísfugl
Rauðilækur Ísfugl
Heiðarbær Ísfugl
Heiðabær 2 Ísfugl
Hjalli Ísfugl
Hjallakrókur Ísfugl
Tannstaðabakki Reykjagarður
Hlíðartunga Reykjagarður
Vatnsendi Reykjagarður
Ásmundarstaðir Reykjagarður
Hellnatún Reykjagarður
Helluvað 6 Reykjagarður
Jarlsstaðir Reykjagarður
Staðarbú Reykjagarður
Einholt Reykjagarður
Melavellir Matfugl
Eskiholt Matfugl
Holt Matfugl
Móar Matfugl
Fell Matfugl
Hurðarbak Matfugl
Miðfell Matfugl
Kalkúnaeldi Framleiðandi
Helludalur Ísfugl
Bakki Ísfugl
Auðsholt Ísfugl
Lambhagi Ísfugl
Stofnfuglaeldi Framleiðandi
Múlakot Ísfugl
Suður-Reykir Ísfugl
Þórustaðir Matfugl
Ásgautsstaðir Matfugl
Árver Matfugl
Ásmundarstaðir Reykjagarður
Þrándarlundur Reykjagarður
Svartagil Reykjagarður
Hvanneyri Stofnungi
Íslensk alifuglaframleiðsla
Heimild: Kortasjá MAST.