Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Tökustaðastjórinn Róbert Davíð
Garcia sleit barnsskónum með
annan fótinn í ávaxtagarði föður-
foreldra sinna á Spáni. Í dag
sér hann meðal annars um að
útvega dýr í kvikmyndir og fá
þau til að láta að stjórn. Slíkir
hæfileikar kalla oftar en ekki á
bæði þolinmæði og útsjónarsemi
við bæði menn og dýr.
„Sem barn og unglingur fór
ég til föður míns og fjölskyldu í
spænsku sveitina á sumrin og var
þá mikið í að hjálpa afa mínum sem
ræktaði ávexti, var svona svolítill
kaktusávaxtabóndi. Ætli þar hafi
áhugi minn á plöntum og landbúnaði
ekki kviknað,“ segir Róbert, sem
einnig hafði ánægju af því að
stússast í blómum með ömmu sinni.
Leiðir hans lágu svo í Land-
búnaðarháskólann þar sem
hann þreifaði fyrir sér á hinum
ýmsu brautum Endaði þó á
landgræðslubraut. Í dag er tenging
hans við sveitir landsins aðallega
í gegnum kvikmyndaiðnaðinn þar
sem hann hefur starfað í um það
bil 15 ár. Róbert sem starfar að
stærstum hluta sem tökustaðastjóri,
hefur sl. ár, samhliða því, útvegað
þau dýr er þarf við tökur kvikmynda
og þátta og séð um að þau hegði sér
á þann hátt sem óskað er eftir.
„Ég hef alltaf átt auðvelt með að
umgangast dýr, enda ógrynni katta,
hunda og hesta sem hafa fylgt mér
gegnum árin. Það þarf bara að taka
ljúflega á þeim, ákveðið auðvitað,
en þannig að þau viti hver ræður
og að þau eigi að hlýða.“
Kallar þó nokkur hluti starfs
hans á samskipti við bændur
landsins auk þess sem hann sér til
þess að unnið sé í samvinnu við
MAST og dýralækna og öll að leyfi
séu til staðar, enda mikil ábyrgð
sem fylgir því að fá aðgang að
dýrum til að nota við tökur.
Góð samvinna
„Ég held, og er eiginlega alveg
sannfærður um, að ég sé búinn
að banka upp á á öðrum hverjum
sveitabæ sem fyrirfinnst á Íslandi.
Vinnan mín felst afskaplega mikið í
því að banka upp á á sveitabæjum,“
segir Róbert og glottir.
„Það er ótrúlegt, að eftir
smáspjall er manni oftast tekið
opnum örmum með hlýleika og
vinsemd sem ég er þakklátur fyrir,
enda heilmikil samskipti sem þurfa
að vera við heimamenn þegar
kvikmyndir eru teknar upp úti á
landsbyggðinni. Starfið mitt felur í
sér að vera í samskiptum við þá aðila
sem áhuga hafa á að mynda, ég fer í
kjölfarið og finn ýmsa valmöguleika
sem gætu hentað við tökurnar.
Langoftast er þetta úti á landi og því
þarf ég að vera í góðum samskiptum
við bændur úti um allt land. Passa
upp á leyfamál og að allt gangi vel
fyrir sig, en ég sé svo einnig um
frágang og góða umgengni. Ég hef
unnið að flestum stóru verkefnunum
sem hafa verið hérlendis á síðustu
árum, aðallega sem tökustaðastjóri
en einnig oft séð um að útvega og
þjálfa þau dýr sem eru í tökunum.“
Róbert minnist þess að við gerð
myndarinnar Héraðið, sem fjallar
um stöðu bændasamfélagsins gegn
alvaldi kaupfélagsins, fékk hann
það hlutverk að banka upp á á öllum
mjólkurbúum á vesturhelmingi
Íslands, þar sem söguþráðurinn
kallaði á róbótafjós.
„Það er ekki sjálfgefið að
fólk vilji hleypa sextíu manna
kvikmyndatökuliði í fjósið sitt í
mánuð, auk þess að veita alls kyns
ráðgjöf og aðstoð. Þetta tók mig
um tvær vikur. Ætli ég hafi ekki
heimsótt þrjú fjós á dag, þá allt
frá Reykjavík til Vestfjarða, en
myndin var svo tekin upp að mestu
á rjómabúinu Erpsstöðum í Dölum, á
Hvammstanga og Blönduósi.
Tökustaðastjóri bankar upp á
– Tökustaðastjórinn Róbert Garcia á í nánu samstarfi við bændur
LÍF & STARF
Það má spyrja sig hver sé stjarnan á þessari mynd, Róbert eða öskuþakin
kindin sem var í einu aðalhlutverki þáttaraðarinnar Kötlu.
Þeir eru reffilegir félagarnir, Róbert og bóndinn Guðlaugur Einarsson á
bænum Ysta-Skála undir Eyjafjöllum, en sá síðarnefndi lagði til kindur í
þáttaröðina Kötlu.
Hundinum Pöndu frá Tjörneshreppi leist vel á Róbert og varð þeim vel til vina.
Við tökur á verðlaunamyndinni Dýrinu. Myndir / Aðsendar
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is