Bændablaðið - 04.04.2023, Síða 48

Bændablaðið - 04.04.2023, Síða 48
48 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Tökustaðastjórinn Róbert Davíð Garcia sleit barnsskónum með annan fótinn í ávaxtagarði föður- foreldra sinna á Spáni. Í dag sér hann meðal annars um að útvega dýr í kvikmyndir og fá þau til að láta að stjórn. Slíkir hæfileikar kalla oftar en ekki á bæði þolinmæði og útsjónarsemi við bæði menn og dýr. „Sem barn og unglingur fór ég til föður míns og fjölskyldu í spænsku sveitina á sumrin og var þá mikið í að hjálpa afa mínum sem ræktaði ávexti, var svona svolítill kaktusávaxtabóndi. Ætli þar hafi áhugi minn á plöntum og landbúnaði ekki kviknað,“ segir Róbert, sem einnig hafði ánægju af því að stússast í blómum með ömmu sinni. Leiðir hans lágu svo í Land- búnaðarháskólann þar sem hann þreifaði fyrir sér á hinum ýmsu brautum Endaði þó á landgræðslubraut. Í dag er tenging hans við sveitir landsins aðallega í gegnum kvikmyndaiðnaðinn þar sem hann hefur starfað í um það bil 15 ár. Róbert sem starfar að stærstum hluta sem tökustaðastjóri, hefur sl. ár, samhliða því, útvegað þau dýr er þarf við tökur kvikmynda og þátta og séð um að þau hegði sér á þann hátt sem óskað er eftir. „Ég hef alltaf átt auðvelt með að umgangast dýr, enda ógrynni katta, hunda og hesta sem hafa fylgt mér gegnum árin. Það þarf bara að taka ljúflega á þeim, ákveðið auðvitað, en þannig að þau viti hver ræður og að þau eigi að hlýða.“ Kallar þó nokkur hluti starfs hans á samskipti við bændur landsins auk þess sem hann sér til þess að unnið sé í samvinnu við MAST og dýralækna og öll að leyfi séu til staðar, enda mikil ábyrgð sem fylgir því að fá aðgang að dýrum til að nota við tökur. Góð samvinna „Ég held, og er eiginlega alveg sannfærður um, að ég sé búinn að banka upp á á öðrum hverjum sveitabæ sem fyrirfinnst á Íslandi. Vinnan mín felst afskaplega mikið í því að banka upp á á sveitabæjum,“ segir Róbert og glottir. „Það er ótrúlegt, að eftir smáspjall er manni oftast tekið opnum örmum með hlýleika og vinsemd sem ég er þakklátur fyrir, enda heilmikil samskipti sem þurfa að vera við heimamenn þegar kvikmyndir eru teknar upp úti á landsbyggðinni. Starfið mitt felur í sér að vera í samskiptum við þá aðila sem áhuga hafa á að mynda, ég fer í kjölfarið og finn ýmsa valmöguleika sem gætu hentað við tökurnar. Langoftast er þetta úti á landi og því þarf ég að vera í góðum samskiptum við bændur úti um allt land. Passa upp á leyfamál og að allt gangi vel fyrir sig, en ég sé svo einnig um frágang og góða umgengni. Ég hef unnið að flestum stóru verkefnunum sem hafa verið hérlendis á síðustu árum, aðallega sem tökustaðastjóri en einnig oft séð um að útvega og þjálfa þau dýr sem eru í tökunum.“ Róbert minnist þess að við gerð myndarinnar Héraðið, sem fjallar um stöðu bændasamfélagsins gegn alvaldi kaupfélagsins, fékk hann það hlutverk að banka upp á á öllum mjólkurbúum á vesturhelmingi Íslands, þar sem söguþráðurinn kallaði á róbótafjós. „Það er ekki sjálfgefið að fólk vilji hleypa sextíu manna kvikmyndatökuliði í fjósið sitt í mánuð, auk þess að veita alls kyns ráðgjöf og aðstoð. Þetta tók mig um tvær vikur. Ætli ég hafi ekki heimsótt þrjú fjós á dag, þá allt frá Reykjavík til Vestfjarða, en myndin var svo tekin upp að mestu á rjómabúinu Erpsstöðum í Dölum, á Hvammstanga og Blönduósi. Tökustaðastjóri bankar upp á – Tökustaðastjórinn Róbert Garcia á í nánu samstarfi við bændur LÍF & STARF Það má spyrja sig hver sé stjarnan á þessari mynd, Róbert eða öskuþakin kindin sem var í einu aðalhlutverki þáttaraðarinnar Kötlu. Þeir eru reffilegir félagarnir, Róbert og bóndinn Guðlaugur Einarsson á bænum Ysta-Skála undir Eyjafjöllum, en sá síðarnefndi lagði til kindur í þáttaröðina Kötlu. Hundinum Pöndu frá Tjörneshreppi leist vel á Róbert og varð þeim vel til vina. Við tökur á verðlaunamyndinni Dýrinu. Myndir / Aðsendar Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.