Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 50

Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Auk þess að gera rannsóknir á bergkvikunni stendur til að byggja upp alþjóðlega rannsóknarmiðstöð í jarðhitafræðum með aðstöðu fyrir vísindamenn við Kröflu, fræðslumiðstöð og efla samstarf við skóla og íbúa nærumhverfisins. Fjallið Krafla og umhverfi þess flokkast sem megineldstöð sem þýðir að þar gjósi reglulega úr kvikuhólfi eða hólfum undir svæðinu. Síðustu gos við Kröflu urðu á árunum 1975 til 1984 en talið er að gosskeið sem enn stendur yfir hafi byrjað fyrir um 3000 árum. Krafla Magna Testbed Hjalti Páll Ingólfsson, framkvæmda- stjóri GEORG, rannsóknaklasa í jarðhita, sem rekur verkefnisstofu fyrir verkefnið. GEORG er samstarfsvettvangur 24 fyrirtækja og stofnana, bæði innlendra og erlendra. „Verkefnið er gríðarlega metnaðarfullt og kostnaðarsamt og í dag er gert ráð fyrir að það muni kosta rúmlega 120 milljón dollara þegar allt er talið. Því þurfa margir að koma að verkefninu til að fjármagna það og ein besta samlíking við umfang þess er að það sé svipað og þegar ákveðið var að senda Hubble sjónaukann á sporbaug um jörðu á sínum tíma.“ Hjalti segir að stefnt sé að því að rannsóknarniðurstöður sem fáist vegna verkefnisins verði almennt opnar og því eigi vísindamenn um allan heim að geta notfært sér þær í sínum rannsóknum. „Eins er stefnt að því að rannsóknarinnviðirnir sem byggðir verða upp í Kröflu verði gerðir aðgengilegir vísindasamfélaginu í gegnum ákveðið umsóknaferli. Þannig verði rannsóknahópum gert kleift að koma hingað norður og nýta innviðina og gera rannsóknir sem samræmast vísindastefnu KMT.“ Einstakar rannsóknir „Rannsóknirnar sem stefnt er að við Kröflu eru einstakar á heimsvísu,“ segir dr. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands, „það sem meira er, þá er svæðið eina svæðið í heimi þar sem hægt er að framkvæma þær. Ástæðan fyrir því er að Landsvirkjun boraði ofan í kvikuhólf árið 2009 á rétt tæplega tveggja kílómetra dýpi. Kvikuhólfið var talsvert grynnra undir yfirborðinu en búist hafði verið við og í dag eini jaðar kvikuhólfs í heiminum sem er hægt að staðsetja með mikilli nákvæmni þar sem góðar aðstæður eru til frekari rannsókna. Við stefnum að því að bora tvær rannsóknarholur niður að mörkum jarðhita og bráðinnar bergkviku og koma þar fyrir mælitækjum. Önnur þeirra mun ná niður í efsta lag kvikunnar og meðal annars mæla hitastig þar og upp í rætur jarðhitakerfisins. Búist er við að hitinn sé allt að 900º á Celsíus og kvikan fljótandi. Í seinni holunni verða gerðar rannsóknir til að greina betur möguleika á beinni nýtingu varmans sem í kvikunni er og þeim tæknilegu áskorunum sem því fylgja.“ Gamall draumur Dr. John Eichelberger, prófessor í eldfjallafræði við háskólann í Fairbanks í Alaska, segir að hann hafi lengi dreymt um að bora ofan Krafla: Borað í bergkvikuna Vordís Eiríksdóttir, jarðeðlisfræðingur og forstöðumaður jarðvamareksturs hjá Landsvirkjun. Krafla er virkt eldstöðvakerfi skammt frá Mývatni og þar stendur ein elsta gufuaflsvirkjun landsins. Kerfið er um eitt hundrað kílómetra langt og tíu kílómetra breitt og eitt mest rannsakaða eldfjallasvæði í heimi. Verkefnið Krafla Magma Testbed (KMT) felst í að bora ofan í bergkvikuna við Kröflu og koma þar fyrir mælitækjum til að öðlast aukna þekkingu á tengslum jarðhita og bergkviku og kanna möguleika á nýtingu þess mikla varma sem í kvikunni felst. Verkefnið er gríðarlega umfangsmikið og fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Stjórn og aðstandendur Krafla Magma Testbed verkefnisins. Anette Mortensen, Landsvirkjun, John Ludden, formaður stjórnar KMT verkefnisins, Bjarni Pálsson, Landsvirkjun, Hjalti Páll Ingólfsson, framkvæmdastjóri GEORG, John Eichelberger, háskólanum í Fairbanks, Alaska, Paolo Papale, INGV Ítalíu, Amel Barich, GEORG, Björn Þór Guðmundsson, GEORG, Freysteinn Sigmundsson, Háskóla Íslands, Vordís Eiríksdóttir, Landsvirkjun, Yan Lavallee, Ludwig Maximilian háskólanum í München og Jónas Ketilsson, Landsvirkjun. Myndir / VH Víti er sprengigígur á Kröflusvæðinu sem varð til við gufusprengingar eftir að bergkvika braut sér leið inn í jarðhitakerfið í upphafi Mývatnselda 1724-1729. Gert er ráð fyrir að boraðar verði tvær holur við Kröflu sem tengjast rannsóknum á mörkum jarðhita og bráðinnar bergkvikunnar. Önnur nær ofan í bergkvikuna. Mynd / GEORG. Hjalti Páll Ingólfsson, framkvæmda- stjóri GEORG, rannsóknaklasa í jarðhita. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlis- fræðingur við Háskóla Íslands. John Eichelberger, prófessor við háskólann í Fairbanks í Alaska. Dr. Bjarni Pálsson, forstöðumaður þróunar jarðvarma hjá Landsvirkjun. Í DEIGLUNNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.