Bændablaðið - 04.04.2023, Síða 50
50 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Auk þess að gera rannsóknir á
bergkvikunni stendur til að byggja
upp alþjóðlega rannsóknarmiðstöð
í jarðhitafræðum með aðstöðu
fyrir vísindamenn við Kröflu,
fræðslumiðstöð og efla samstarf
við skóla og íbúa nærumhverfisins.
Fjallið Krafla og umhverfi þess
flokkast sem megineldstöð sem þýðir
að þar gjósi reglulega úr kvikuhólfi
eða hólfum undir svæðinu. Síðustu
gos við Kröflu urðu á árunum 1975
til 1984 en talið er að gosskeið sem
enn stendur yfir hafi byrjað fyrir um
3000 árum.
Krafla Magna Testbed
Hjalti Páll Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri GEORG, rannsóknaklasa í
jarðhita, sem rekur verkefnisstofu
fyrir verkefnið. GEORG er
samstarfsvettvangur 24 fyrirtækja
og stofnana, bæði innlendra og
erlendra.
„Verkefnið er gríðarlega
metnaðarfullt og kostnaðarsamt og í
dag er gert ráð fyrir að það muni
kosta rúmlega 120 milljón dollara
þegar allt er talið. Því þurfa margir að
koma að verkefninu til að fjármagna
það og ein besta samlíking við
umfang þess er að það sé svipað og
þegar ákveðið var að senda Hubble
sjónaukann á sporbaug um jörðu á
sínum tíma.“
Hjalti segir að stefnt sé að því
að rannsóknarniðurstöður sem fáist
vegna verkefnisins verði almennt
opnar og því eigi vísindamenn um
allan heim að geta notfært sér þær í
sínum rannsóknum.
„Eins er stefnt að því að
rannsóknarinnviðirnir sem byggðir
verða upp í Kröflu verði gerðir
aðgengilegir vísindasamfélaginu
í gegnum ákveðið umsóknaferli.
Þannig verði rannsóknahópum gert
kleift að koma hingað norður og nýta
innviðina og gera rannsóknir sem
samræmast vísindastefnu KMT.“
Einstakar rannsóknir
„Rannsóknirnar sem stefnt er að við
Kröflu eru einstakar á heimsvísu,“
segir dr. Freysteinn Sigmundsson,
jarðeðlisfræðingur við Háskóla
Íslands, „það sem meira er, þá er
svæðið eina svæðið í heimi þar
sem hægt er að framkvæma þær.
Ástæðan fyrir því er að Landsvirkjun
boraði ofan í kvikuhólf árið 2009
á rétt tæplega tveggja kílómetra
dýpi. Kvikuhólfið var talsvert
grynnra undir yfirborðinu en búist
hafði verið við og í dag eini jaðar
kvikuhólfs í heiminum sem er hægt
að staðsetja með mikilli nákvæmni
þar sem góðar aðstæður eru til
frekari rannsókna. Við stefnum að
því að bora tvær rannsóknarholur
niður að mörkum jarðhita og
bráðinnar bergkviku og koma þar
fyrir mælitækjum. Önnur þeirra mun
ná niður í efsta lag kvikunnar og
meðal annars mæla hitastig þar og
upp í rætur jarðhitakerfisins. Búist
er við að hitinn sé allt að 900º á
Celsíus og kvikan fljótandi. Í seinni
holunni verða gerðar rannsóknir til
að greina betur möguleika á beinni
nýtingu varmans sem í kvikunni er
og þeim tæknilegu áskorunum sem
því fylgja.“
Gamall draumur
Dr. John Eichelberger, prófessor
í eldfjallafræði við háskólann í
Fairbanks í Alaska, segir að hann
hafi lengi dreymt um að bora ofan
Krafla:
Borað í bergkvikuna
Vordís Eiríksdóttir, jarðeðlisfræðingur
og forstöðumaður jarðvamareksturs
hjá Landsvirkjun.
Krafla er virkt eldstöðvakerfi skammt frá Mývatni og þar stendur ein
elsta gufuaflsvirkjun landsins. Kerfið er um eitt hundrað kílómetra langt
og tíu kílómetra breitt og eitt mest rannsakaða eldfjallasvæði í heimi.
Verkefnið Krafla Magma Testbed (KMT) felst í að bora ofan í bergkvikuna
við Kröflu og koma þar fyrir mælitækjum til að öðlast aukna þekkingu
á tengslum jarðhita og bergkviku og kanna möguleika á nýtingu þess
mikla varma sem í kvikunni felst. Verkefnið er gríðarlega umfangsmikið
og fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Stjórn og aðstandendur Krafla Magma Testbed verkefnisins. Anette Mortensen, Landsvirkjun, John Ludden,
formaður stjórnar KMT verkefnisins, Bjarni Pálsson, Landsvirkjun, Hjalti Páll Ingólfsson, framkvæmdastjóri GEORG,
John Eichelberger, háskólanum í Fairbanks, Alaska, Paolo Papale, INGV Ítalíu, Amel Barich, GEORG, Björn Þór
Guðmundsson, GEORG, Freysteinn Sigmundsson, Háskóla Íslands, Vordís Eiríksdóttir, Landsvirkjun, Yan Lavallee,
Ludwig Maximilian háskólanum í München og Jónas Ketilsson, Landsvirkjun. Myndir / VH
Víti er sprengigígur á Kröflusvæðinu sem varð til við gufusprengingar eftir að bergkvika braut sér leið inn í jarðhitakerfið í upphafi Mývatnselda 1724-1729.
Gert er ráð fyrir að boraðar verði
tvær holur við Kröflu sem tengjast
rannsóknum á mörkum jarðhita og
bráðinnar bergkvikunnar. Önnur nær
ofan í bergkvikuna. Mynd / GEORG.
Hjalti Páll Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri GEORG, rannsóknaklasa í
jarðhita.
Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlis-
fræðingur við Háskóla Íslands.
John Eichelberger, prófessor við
háskólann í Fairbanks í Alaska.
Dr. Bjarni Pálsson, forstöðumaður
þróunar jarðvarma hjá Landsvirkjun.
Í DEIGLUNNI