Bændablaðið - 04.04.2023, Síða 46
46 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Séra Sigurður Ægisson, sóknar-
prestur á Siglufirði, er að vinna
að bók um völvur og völvuleiði á
Íslandi. „Völvur voru konur sem
tengdust norrænum átrúnaði eða
svokallaðri ásatrú, sem er rangnefni,
því Vanir komu líka við sögu. Fólk
sem vildi fræðast um komandi
tíma gekk meðal annars til slíkra
kvenna. Þær voru fjölkunnugar og
sögðu fyrir örlög manna og óorðna
hluti. Af fornum heimildum má
ráða að völvur hafi á 8., 9. og 10.
öld verið algengar á Norðurlöndum
og Grænlandi, en tekið að fækka
upp úr því, við tilkomu hins nýja
siðar, kristinnar trúar. Ég hef samt
efasemdir um að slíkt hafi gerst hér
fyrr en löngu síðar,“ segir Sigurður.
Rannsóknir á völvum
Fornleifafræðingar hafa verið að
rannsaka völvur mikið erlendis,
endurmeta eldri, þekkt kuml og grafa
upp ný, þannig að mikil gróska er í
þessum fræðum og verður eflaust
lengi áfram.
„Þetta hófst upp úr 1995,“ segir
Sigurður,“ ef ég man rétt. Þeim
finnst líklegt að sumar þessara
dysja séu í raun og veru völvuleiði,
grafir þessara fornu sjáenda og í
sumum tilvikum seiðkvenna, sem
lesa má um í fornritum okkar. Þetta
er mjög spennandi.
Völvur hafa bersýnilega verið
mjög virtar áður fyrr og ríkulega
búnar, enda þáðu þær laun fyrir
þjónustu sína í perlum og slíku.
Lýsingin á Þorbjörgu lítilvölvu, í
Eiríks sögu rauða, styður þetta. Þetta
á að gerast í kringum árið 1000 en er
sennilega skráð um 1300. Þar segir
meðal annars:
„Í þennan tíma var hallæri mikið
á Grænlandi; höfðu menn fengið lítið
þeir sem í veiðiferðir höfðu farið, en
sumir eigi aftur komnir.
Sú kona var þar í byggð er Þorbjörg
hét. Hún var spákona; hún var kölluð
lítilvölva. Hún hafði átt sér níu systur
og voru allar spákonur og var hún
ein eftir á lífi.
Það var háttur Þorbjargar á
vetrum að hún fór á veislur og
buðu menn henni heim, mest þeir
er forvitni var á um forlög sín eða
árferð. Og með því Þorkell var þar
mestur bóndi þá þótti til hans koma
að vita hvenær létta mundi óárani
þessu sem yfir stóð. Þorkell býður
spákonu þangað og er henni búinn
góð viðtaka sem siður var til þá er við
þess háttar konu skyldi taka. Búið var
henni hásæti og lagt undir hægindi.
Þar skyldi í vera hænsafiðri.
En er hún kom um kveldið og sá
maður er í móti henni var sendur þá
var hún svo búin að hún hafði yfir
sér tyglamöttul bláan og var settur
steinum allt í skaut ofan. Hún hafði
á hálsi sér glertölur. Hún hafði á
höfði lambskinnskofra svartan og
við innan kattskinn hvítt. Staf hafði
hún í hendi og var á hnappur. Hann
var búinn messingu og settur steinum
ofan um hnappinn. Hún hafði um
sig hnjóskulinda og var þar á
skjóðupungur mikill. Varðveitti hún
þar í töfur þau er hún þurfti til fróðleiks
að hafa. Hún hafði kálfskinnsskó loðna
á fótum og í þvengi langa og sterklega,
látúnshnappar miklir á endunum. Hún
hafði á höndum sér kattskinnsglófa og
voru hvítir innan og loðnir.“
Þess má geta, að samkvæmt Grágás
var kattarskinn margfalt verðmeira en
refaskinn. Það segir ýmislegt.
Völvuleiði á Íslandi
Sigurður segist hafa frá árinu 1985
verið að safna upplýsingum um
völvuleiði á Íslandi. Oft er þar um
að ræða hóla, steina, þúfur í túni eða
óreglulegar þústir.
„Völvuleiðin eru mörg eystra og
með suðausturströndinni en fækkar
eftir því sem norðar og vestar dregur.
Alls hef ég fundið í örnefnaskrám,
bókum og í öðrum heimildum 63
völvuleiði á um 50 stöðum. Um flest
þessara völvuleiða er lítið vitað, en
örfáum fylgja þó sagnir, munnlegar
eða ritaðar.
Þar kemur stundum fram, að
sá, sem hressi við leiðið ef það er
farið að láta á sjá, eða haldi því við,
fái einhvern glaðning eða happ í
staðinn. Kunnasta frásögnin af slíku
er líklega frá Kálfafellsstað frá því
skömmu fyrir 1900, í tíð séra Péturs
Jónssonar, þegar mikið tré rak á
fjörur landareignarinnar og úr því
var reist timburhús á Kálfafellsstað,
14 álna langt og 7 álna breitt, einlyft
með porti. Það stóð fram yfir 1950.
Mörg völvuleiðanna eru því
miður týnd, og það fyrir ekkert svo
löngu, mörg hurfu á 20. öld, sum
í ógáti, önnur við ábúendaskipti
og einnig vegna þess að land var
brotið til ræktunar, og vitneskja
um mörg önnur er að glatast, nema
þá hin allra kunnustu, svo sem á
Hólmahálsi í Reyðarfirði, í Einholti
á Mýrum, í Norður-Vík í Mýrdal
og á Felli og einhver fáein í viðbót,
þar á meðal í Leyningshólum inni
í Eyjafirði.
Tíminn er með öðrum orðum að
hlaupa frá okkur hvað þetta varðar.
Þetta er að glatast. Það má ekki
gerast. Þetta eru menningarminjar.
VELFERÐARMOTTUR
Á STEINBITA
Við bjóðum nú sérsniðnar gúmmímottur í ýmsum gerðum fyrir allar gerðir gripahúsa.
Flestir eru sammála að steypt undirlag er ekki náttúrulegt fyrir kýr og getur valdið því
að þeim líði illa og framleiði þar af leiðandi minna magn af mjólk.
Motturnar eru sérskornar fyrir hvert verkefni fyrir sig og fer því nánast ekkert til spillis
auk þess sem fljótlegt er að leggja þær á gólfið.
Hafðu samband: bondi@byko.is
MENNING
Rúnasteinn á völvuleiðinu í Leyningshólum í Eyjafirði. Mynd / Sigurður Ægisson.
Menningarminjar:
Völvur og völvuleiði
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Séra Sigurður Ægisson við völvuleiði að Reykjum í Mjóafirði, í forgrunni. Mynd / Halldór Halldórsson
Í Eddukvæðum er talað um völvur, kynngimagnaðar konur sem taldar
voru búa yfir margs konar vitneskju. Þekktust er umfjöllum um þær
í Völuspá og Baldurs draumum, auk þess sem þeirra er getið víða í
Íslendingasögunum. Völvur voru taldar geta séð ókomna atburði og
örlög manna.