Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 32
32 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022
Heilsulæsi
á Íslandi
– hvar erum
við stödd?
BRYNJA INGADÓTTIR
Landspítala, Háskóla Íslands
NANNA FRIÐRIKSDÓTTIR
Landspítala, Háskóla Íslands
JÓHANNA Ó. EIRÍKSDÓTTIR
Landspítala
HILDUR EINARSDÓTTIR
Landspítala
JÓNÍNA SIGURGEIRSDÓTTIR
Reykjalundi
KATRÍN BLÖNDAL
Landspítala
MARGRÉT HRÖNN SVAVARSDÓTTIR
Háskólanum á Akureyri
BJÖRK BRAGADÓTTIR
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Höfundar
Heilsulæsi hefur fram til þessa verið lýst sem hæfni
einstaklinga til að afla sér upplýsinga, skilja þær og nýta til
eflingar á eigin heilsu. Hugtakið hefur hlotið aukna athygli
á Íslandi á undanförnum árum og verið í deiglunni erlendis í
nokkra áratugi.
Í Evrópu var stofnaður samstarfshópur árið 2010 sem
hefur það að markmiði að efla heilsulæsi í álfunni með
þekkingarþróun og miðlun bæði innan og milli landa ( https://
www.healthliteracyeurope.net/hls-eu). Meðal annars hefur
hópurinn þróað mælitæki, Evrópska heilsulæsislistann
(the European Health Literacy Survey Questionnaire –
HLS-EU-Q) til að meta heilsulæsi og hafa rannsóknir hans
meðal almennings sýnt að nærri helmingur þátttakenda
(47%) hafði takmarkað eða ófullnægjandi heilsulæsi þótt
tíðnin væri breytileg á milli landa (Sörensen o.fl. 2015). Með
tímanum, hefur athyglin í auknum mæli beinst frá heilsulæsi
einstaklinga (e. Personal health literacy) að svokölluðu
heilsulæsi stofnana (e. Organisational health literacy) sem
lýsir því hvernig stofnanir og starfsmenn þeirra auðvelda
einstaklingum/notendum að finna, skilja og nýta sér til gagns
upplýsingar og þjónustu t.d. varðandi upplýstar ákvarðanir
um eigin heilsu og annarra. Áherslan á heilsulæsar stofnanir
endurspeglast til dæmis vel í bandarísku heilbrigðisstefnunni
Healthy People 2030 (https://health.gov/healthypeople).
En hvað vitum við um heilsulæsi á Íslandi? Við óformlega leit
á vefnum og í Skemmunni fundust nokkrar fræðigreinar svo
og lokaverkefni háskólanemenda um heilsulæsi eða þar sem
hugtakið heilsulæsi kemur fram, bæði innan hjúkrunarfræði,
upplýsingafræði og menntavísinda. Yfirlit um þessi verk má sjá
í lista á blaðsíðu 31, en vera má að það sé ekki tæmandi.
Nokkrar íslenskar rannsóknir hafa verið gerðar á heilsulæsi
innan heilbrigðisvísinda. Sonja Stellý Gústafsdóttir, lektor
við Háskólann á Akureyri, og samstarfsfólk hennar hefur
unnið að rannsóknum á heilsulæsi, þar með talið að meta
heilsulæsi hjá eldri borgurum á Norðurlandi og þýtt og
kannað próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu 16 atriða
Heilsulæsi á Íslandi