Úrval - 01.02.1952, Síða 2
Spurt og svarað.
Framhald af 3. kápúsíðu.
sendar til að fá skorið öi-ugglega
úr þrætum okkar á milli.
1. Skín ekki sólin jafnlengi
samanlagt á hverju ári á alla
hluta jarðarinnar, þ. e. er jafnlengi
á lofti við alla breiddarbauga ?
2. Hversvegna eru hráoliumót-
orar dýrari en bensínmótorar af
sömu stærð, þrátt fyrir það að
þeir eru einfaldari að gerð eftir
því sem innflytjendur þeirra segja
í auglýsingum?
3. Hver er ástæðan til þess að
hráolíumótorar eru ekki komnir
meira en orðið er í stað bensín-
mótora, t. d. i bíla og dráttarvél-
ar, þrátt fyrir það að reksturs-
kostnaður hráolíumótora er marg-
falt minni en bensínmótora, og sá
kostnaðarmunur gerir miklu
meira en borga verðmun vélanna ?
4. Er fræðilegur möguleiki
fyrir því að nautgripir tímgist við
hreindýr (sbr. frásögn í „Á hrein-
dýraslóðum"), og sauðnaut og vita
fræðimenn örugg dæmi slíks? Ef
svo er, eru þá ekki slíkir kyn-
blendingar ævinlega ófrjóir?
5. Hvaða landspendýr lifa villt
í Alaska og á Eldlandseyjum ?
6. Hver er meðalhiti á C. hvers
mánaðar við Magellansund ?
Um leið og við sendum Urvali
þessar spurningar, viljum við nota
tækifærið og þakka því þær mörgu
ánægjustundir, sem það hefur
veitt okkur. Það er sameiginleg-
ur dómur okkar, að Úrval sé það
bezta og skemmtilegasta íslenzkt.
tímarit sem við sjáum.
Með fyrirfram þökk fyrir svörin.
Nokkrir lesendur Ur-
vals á Akureyri.
S v a r : 1. Svo má heita.
2. Ef gert er ráð fyrir, að þar
sem í spurn'ingunum er talað um
hráolíumótora, sé átt við diesel-
mótora, er ástæðan fyrir verðmis-
muninum sú, að dieselmótorinn er
miklu margbrotnari og vinnur með
miklu hærri þrýstingi; þarf því
að vera sterkari og sérstaklega
vandlega smíðaður.
3. Ástæðurnar eru þessar: 1.
að ekki eru mörg ár síðan farið
var að smíða mjög litla diesel-
mótora. 2. að dieselmótoramir eru
margbrotnari, sterkbyggðari og
þar af leiðandi dýrari. 3. að þeir
eru þyngri. 4. að það þarf betur
lærða og þjálfaða menn til þess
að hirða og eftirlíta diselmótora en
bensinmótora.
4. Ekki er sennilegt, að tímg-
unarmöguleiki sé milli nautgripa
og hreindýra eða sauðnauta, og
hvergi er þess getið í tiltækileg-
um fræðibókum. Þegar timgun
kemur fyrir milli fjarskyldra teg-
unda, verða kynblendingamir ó-
frjóir.
5. Villt landspendýr í Alaska
eru: Elgir, hreindýr, úlfar, birnir,
refir, otrar, bisamrottur og geitur.
Á Eldlandseyjum: Gúanakó (lama-
dýr), villihundar og smá nagdýr.
6. Kaldasti mánuður er júlí
v2" C, heitasti janúar +11° C.