Úrval - 01.02.1952, Síða 26
24
ÚRVAL
að vinna að því að gefa konunni
sinni mjög óvenjulega gjöf. Ég
mætti honum fyrir skömmu þar
sem hann var að koma út úr
dansskóla og spurði hann hvað
hann væri að gera þar. „Kon-
an mín er lengi búin að kvarta
yfir því að ég dansi illa. Nú er
ég að læra að dansa og fram-
farir mínar í danslistinni eiga
að vera næsta afmælisgjöf mín
til hennar."
Gömul kona, sem átti heima
úti á landi, grét af gleði þegar
sonur hennar, sem býr í New
York gaf henni í afmælisgjöf
síma og loforð um að tala við
hana um hverja helgi upp frá
því.
Blóm eru venjulega það
fyrsta sem okkur dettur í hug
þegar við viljum gefa sjúkum
vinum okkar gjafir. En getum
við ekki verið svolítið hug-
myndaríkari ? Sjúklingur á
spítala fékk frá vini sínum
blómsturpott fullan af mold. En
ofan á moldinni lá fræpakki og
á hann skrifað: „Það er meira
gaman fyrir þig að rækta blóm-
in sjálfur!“
Allar gjafir, sem fela í sér
hluta af gefandanum bera þess
vitni, að hann hafi í raun og
veru lagt sig í lima til að gleðja
okkur.
Hermaður, sem gegndi her-
þjónustu úti á landi fjarri heim-
ili sínu, segir eftirfarandi sögu:
„Ég eignaðist þama góðan vin
þar sem var fjárhirðir einn, er
bjó skammt frá herbúðunum.
Hann var ekki auðugur af fé,
en dag einn þegar mér féllu ljót
orð af vörum út af því að ég
hafði ekki getað fengið lánaða
neinsstaðar 20 dollara, sem mig
vanhagaði um, rétti hann mér
umsvifalaust 20 dollara og lét
fylgja, að þetta væri gjöf en
ekki lán. Hann skýrði þetta
þannig: „Ef ég lána þér þessa
peninga og þú getur af ein-
hverjum ástæðum ekki endur-
greitt þá, mun mér alltaf finn-
ast, að þú hafir brugðist mér.
En ef þú tekur við þeim sem
gjöf, verðum við báðir ánægð-
ir. Þegar þú eignast peninga og
finnur hjá þér löngun til að
gefa rnér 20 dollara, þá verðum
við báðir ánægðir á ný.“
Við höfum ekki oft tækifærí
til að gefa rausnarlegar gjafir
eða stórgjafir eins og það er
kallað, en á hverjum degi veit-
ist okkur eitt eða fleiri tæki-
færi til að gefa eitthvað af sjálf-
um okkur þeim sem þess þarfn-
ast. Það er kannski ekki annað
en vingjarnlegt orð eða bréf
skrifað í réttum anda og á rétt-
um tíma. Það sem máli skiptir
er, að sérhver gjöf okkar beri
í sér hluta af okkur sjálfum.
Oö PG