Úrval - 01.02.1952, Síða 32

Úrval - 01.02.1952, Síða 32
30 ÚRVAL drekka þessa skál, en hann lá í tjaldi sínu. Þegar röoin kom að honum, urðu félagar hans að bera flöskuna að vörum hans. Næsta morgun var komin hellirigning. Monsúninn var kominn — og snjóflóðin voru tekin að geysast niður hvítar hlíðar Annapurna. Sama dag héldu þeir af stað áleiðis til byggða. Að baki þeim var f jall- ið, en framundan mánaðar svað- ilför. Það varð að bera þá Her- zog og Lachenal hvert fótmál leiðarinnar — yfir bratta hálsa, vatnsmiklar ár og gegnum ill- færan frumskóginn. 1 stað helkuldans var nú kom- inn steikjandi hiti. Megnan ó- daun lagði af sárum sjúkling- anna, og þjáningar þeirra voru svo miklar, að Oudot varð stöð- ugt að gefa þeim morfín. Það rigndi án afláts og gufumökk lagði upp úr heitri og rakri jörð- inni. Á hverjum degi varð Oudot að halda áfram hinum hryllilegu aðgerðum sínum á þeim Herzog og Lachenal, því að það var nú orðið augljóst, að það varð að taka tærnar af þeim báðum — og auk þess finguma af Herzog — til þess að skemmdirnar breiddust ekki út. I annarri viku júlí náðu þeir loks til byggða. Maurice Herzog var ekki enn búinn að ná sér, þegar ég heim- sótti hann í Chamonix í Frönsku Ölpunum. Einn af gestunum spurði hann hinnar óhjákvæmi- leg spurningar: Borgaði þetta sig?“ Herzog svaraði aðeins með því að brosa. Þetta var óþörf spurn- ing. í augum hans og félaga hans borgaði þetta sig auðvitað. Þetta er saga hugaðra manna. Sumir kunna að álíta, að það sé líka saga fífldjarfra manna. En þrátt fyrir það sýnir hún okkur, að meðal okkar eru ennþá til menn, sem em reiðu- búir til að heyja harða baráttu og þjást mikið til að ná erfiðu marki; menn, sem eru þeirrar skoðunar, að öryggi sé ekki eina takmarkið í lífinu; menn, sem keppa eftir öðram sigrum en að sigra meðbræður sína. oo co I samkvæmi. Maður nokkur kom 1 seinna lagi í samkvæmi og voru gest- imir setztir til borðs. Hann sá autt sæti, sem honum var ætlað nálægt borðenda húsbóndans, andspænis fatinu, sem gæsin var á, og var húsbóndinn að skera hana. „Jæja," sagði hann um leið og hann settist, „ég á þá að sitja hjá gæsinni." Hann hafði varla sleppt orðinu þegar hann tók eftir að kona sat á stólnum til vinstri handar honum. Það kom fát á hann, og hann bætti við óðamála: „Ég á auðvitað við þá steiktu." — Catholic Fireside.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.