Úrval - 01.02.1952, Side 70

Úrval - 01.02.1952, Side 70
68 ÚRVAL f jöl og Finninn leggur út árarn- ar og rær út á vatnið. Með einhverjum undarlegum hætti tekst okkur að gera okk- ur skiljanlega. Kann talar að- eins finnsku, og auk þess fékk hann kúlu í höfuðið í stríðinu og heyrir ekki til mín, jafnvel þó að hann gæti skilið mig. En þó segir hann mér brot úr ævi- sögu sinni og ég segi honum frá ýmsu, sem á daga mína hef- ur drifið. Brátt verður Ijóst, hvert ferðinni er heitið. Þrír kofar standa með dálitlu milli- bili í skógarrjóði niður við vatn- ið. Gömul kona stendur í fjör- unni og horfir í áttina til okkar. Smámsaman nálgumst við land og báturinn tekur niðri. Ég þakka Finnanum, en geri um leið þá skyssu, að bjóða honum borgun. Hann neitar að taka við borguninni og heldur heim á leið. Ég stend einn í skógarrjóðr- inu; þar er bjálkahús fyrir miðju og minni byggingar um- hverfis. Húsið þarna niðri í fjöruborðinu hlýtur að vera sau'na — baðstofan. Annað hús, sem stendur á stólpum, er birgðaskemman. Tvö eða þrjú refaskinn hafa verið hengd til þerris; og meðfram einum kof- anum hafa gedduhausar verið þræddir upp á snúru. Ég geng til gömlu konunnar í fjörunni; andlit hennar er ellilegt og mjög hrukkótt, en þó glaðlegt eins og bamsandlit. Hún er lítið stærri en stór brúða. Þegar ég tala, svarar hún ekki, lítur ekki á mig. Þetta er engin ókurteisi af hennar hálfu, hún hefur bara tekið það í sig, að láta sem hún. hafi ekki orðið mín vör. Ég fer að virða fyrir mér gedduhaus- ana, sex kindur, sem þama eru og lítinn, gulan hund. Brátt heyri ég mannamál, og fyrir hús- hornið koma tveir kunningjar mínir, sem ég er kominn til að hitta. Þeir segja mér, að þrjár Scolt- Lappaf jölskyldur eigi þessi þrjú hús. Seoltlappar búa nú norðar í landinu og einungis ein af þess- um f jölskyldum hefur vetursetu hér. Bóndinn vinnur við vega- gerð handan við landamærin i einum þeirra vinnuflokka, er Finnar leggja Rússum til sem greiðslu upp í stríðsskaða- bæturnar. Hann kemur heim um helgar, og tekst með hjálp vinnulaunanna að lifa lappa- lífi, eins og það hefur tíðk- ast um aldir — af fiskiveiðum og hreindýrarækt; og af dýra- veiðum á vetmm, þegar hægt er að rekja för villidýra í snjón- um. Seinna göngum við um skóg- inn. Vott laufið hrynur af trján- um og ofþroskuð ber merjast undir fótum okkar. ,,Iílustaðu,“ segir maðurinn, sem með mér er, „þetta hlýtur að vera hrein- dýr.“ „Hvað?“ „Þetta er bjölluhljóð. Kýr og kindur eru líka með bjöllur, en allur búpeningurinn er kom-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.