Úrval - 01.02.1952, Page 83
I eftirfarandi grein er leitast við að varpa
ljósi á helztu vandamálin sem unglings-
stúlkan mætir á þroskaferli sínum.
Unglingsstúlkan
í Ijósi nútímasálfrœðinnar.
Grein úr „Verden Idag“.
RÉTTU nafni hét hún Madel-
eine Reinerie, en hún var
öllum kunn undir nafninu Pirou-
ette. Og hún var eitthvert ynd-
islegasta barn sem hægt var að
hugsa sér — barmafull af lífs-
gleði og kæti. Hún var líka
fræg: á hverjum fimmtudegi
kom hún fram í æskulýðsþætt-
inum í útvarpinu í Grenoble, og
öll frönsk skólabörn þekktu fall-
egu röddina hennar.
En kvöld eitt var tilkynnt í
útvarpinu að Pirouette væri dá-
in, að hún hefði fyrirfarið sér.
Pirouette hafði drekkt sér í
Iséreánni. Fullorðna fólkið, sem
heyrði fréttina, varð þögult og
hugsandi. Það fann til sektarvit-
undar, því að þegar barn sviftir
sig lífi er það alltaf einhver sem
á sökina. En þetta virtist óskilj-
anlegt.
Móðir Pirouette hafði aðeins
lifað fyrir litlu stúlkuna sína.
Manninn hafði hún misst þegar
Pirouette vár smábarn og síðan
hafði hún helgað henni allt líf
sitt. Ekkert loforð, engin fórn
var of stór. Frá morgni til
kvölds vann hún við afgreiðslu
í stórri verzlun. Á kvöldin vann
hún í fatageymslu í stóru leik-
húsi. Eina hugsun hennar var
að afla fjár til að geta kostað
uppeldi og menntun Pirouette.
Því að Pirouette var söngvin og
vildi komast í tónlistarskólann.
Pirouette fékk ósk sína upp-
fyllta og hún stundaði námið af
miklu kappi og var alltaf efst.
Og tólf ára gömul fékk hún at-
vinnu við útvarpið.
Hinn 9. júní — daginn áður
en hún kom síðast fram í út-
varpinu — var mikill sigurdagur
fyrir hana. Hún hafði fengið
stórt hlutverk í útvarpsleikriti.
Um kvöldið kom hún heim í sjö-
unda himni og full tilhlökkunar
að segja mömmu sinni gleðitíð-
indin.
En hún fékk ekki tækifæri til
að leysa frá skjóðunni. Heima í
stofunni hjá mömmu var Mons-
ieur Louis, stór, hávær maður
sem reykti pípu og sem henni
geðjaðist ekki að. Hann gerði sig
heimakominn og svo gisti hann
um nóttina. Daginn eftir fór
Pirouette úr skólanum rakleitt
niður að Iséreánni. Hún lagði