Úrval - 01.02.1952, Side 92

Úrval - 01.02.1952, Side 92
:90 TJRVAL ég af stað til Carville sjúkra- hússins, þar sem ég átti að vera í sóttkví og fá lækningu. Ég hafði aldrei heyrt getið um Car- ville, og nafnið eitt fyllti mig hryllingi, en þó vildi ég komast burt frá þeim sem ég unni, svo ég smitaði þá ekki. Aðeins einn vinur okkar, auk Róberts og fjölskyldunnar, vissi um ástæðuna fyrir brottför minni, og það var tekið af hon- um þagnarheit. — Öðrum var sagt, að ég yrði að fara burt mér til hvíldar og hressingar, þar eð hætta væri á að ég veikt- ist af berklum að öðrum kosti. Það var látið heita svo, að ég myndi dvelja hjá frænku minni í öðru fylki, og hún lofaði að senda mér þau bréf, sem kynnu að berast. Þetta var upphaf hinnar miklu og margvíslegu leyndar- ráðstafana, sem ég varð að búa við um mörg ár. Það var langur akstur til Carville, og snertingin við hand- legg Róberts, þegar vagninn hossaðist á holóttum veginum, var mér til mikillar huggunnar. Mér hafði löngum verið kær þessi vegur og útsýnið frá hon- um, en þennan dag sáu augu mín ekkert. Ég starði aðeins framundan mér og beið þess kvíðafull að ég kæmist á leið- arenda, þar sem útskúfunin beið mín. Við ókum fyrir bugðu á veg- inum, og allt í einu blasti holds- veikraspítalinn við augum — reisuleg, gamaldags bygging, umkringd háum eikartrjám. Umhverfis aðalbygginguna stóðu lítil timburhús á víð og dreif og tvær kapellur, en allt landssvæðið var girt með hárri girðingu og efst á henni voru gaddavírsstrengir. Þetta var Carville, hinn litli og einangr- aði heimur á bakka Missisippi- fijótsins. Systir Katrín tók á móti mér í aðalbyggingunni. Hún faðm- aði mig að sér og kyssti mig innilega. Síðan stakk hún upp á því að við færum út í kapell- una, og þar heyrði ég hana biðja fyrir bata mínum. Við báðum með henni í hljóði. Við fórum með farangur minn inn í lítið íburðarlaust herbergi í einu af smáhýsunum, þar sem ég átti að dvelja. Þar kvaddi ég mömmu og Róbert. Ég lofaði þeim, að ég skyldi vera þæg, gera allt, sem ég ætti að gera og láta mér batna svo að ég gæti komið heim. „Þetta verð- ur ekki langur tími,“ sögðum við. Ég fór út á hlaðið, þegar þau óku burt, og augu mín fylltust tárum. Svo fór ég að virða hús- ið fyrir mér. Hvert hús var ætl- að fyrir tólf sjúklinga og ég sá, að nokkrar konur höfðu_ safn- ast saman á tröppunum. Ég fór að horfa á þessar væntanlegu sambýliskonur mínar, og í fyrsta skipti tók ég eftir af- skræmingu í útliti þeirra, það bar að vísu ekki mikið á sjúk-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.