Úrval - 01.10.1954, Side 9

Úrval - 01.10.1954, Side 9
ÞINGVEIZLURÆÐA 7 mennina í samfélaginu og sömu- leiðis fyrir karlmennina að geta ekki virt konurnar. 1 einni af sögum sínum lýsir Aldous Huxley ófrjóu og sárs- aukablöndnu sambandi með orð- unum: „The love of the paral- lels“, — hin vonlausa ást með tveimur beinum línum, sem fylgjast að, en skerast hvergi. Víxláhrif og innblástur, — látum það vera svo. En hvar liggja dýpst rætur þessa eðlis- munar kynjanna tveggja, sem mesta þýðingu hafa fyrir sam- stillingu þeirra og vekja sterk- astan innblástur? I tímans rás hefur hvort kyn- ið um sig dásamað og lofsungið hitt eða fordæmt það og hamast gegn því, — og bæði með jafn- miklurn sannfæringarkrafti og málsnilld. Konan er göfugri en karlmaðurinn, verri en karlmað- urinn. Evald samræmir sjónar- mið beggja, er hann lýsir því yfir, að karlmaður geti aldrei náð jafn hátt né sokkið jafn djúpt og kona, — hún sé heimskari en karlmaðurinn, hún sé slóttugri — eða vitrari — en hann. Hún er tryggari, svikulli. I þjóðvísunum er það ýmist tryggð ungra karla eða kvenna, sem reynist eins og feyskin brú. Og Sören Kirkegaard segir, að það gæti verið nógu skemmti- legt að láta einhvern bók- menntasögu klakaklár reikna út, hvort konur hafi oftar svik- ið karla eða karlar konur í skáldskap allra tíma. Konan er veikari, og hún er sterkari. Hún stendur hinum miklu öndum fjær. Hún er nær englinum. jHver og einn verður enn í dag að dæma fyrir sjálfan sig. Það hefur ekki tekizt að komast að öruggri niðurstöðu. Ef ég á að skírgreina frá mínu persónu- lega sjónarmiði þetta djúpa á- hrifavald, sem er annað hjá körlum en konum, þá lýsi ég skoðun minni bezt með þ^aaum orðum: „Aðalatriðið fyrir karlmann- inn, meginkjarni tilveru hans er bundinn við það, sem hann hef- ur starfað og komið í fram- kvæmd um ævina. Fyrir konuna er aðalatriðið, hvað hún er.“ Ef maður er spurður um for- eldra hans, segir hann venjulega frá því, sem faðir hans hefur afrekað í veröldinni: „Faðir minn reisti brúna yfir Stóra- belti, faðir minn skrifaði þessa eða hina bókina, faðir minn stofnaði eitt eða annað stórfyr- irtæki. Ef hann er hinsvegar spurður um móður sína, svarar hann: „Mamma var yndisleg". Og enda þótt við látum þetta nú fremur gilda um mína eigin kynslóð en þá yngstu, þá held ég samt, að sá, sem hefur átt að móður yfirlækni eða dóms- málaráðherra, byrji ekki að lýsa henni í samræmi við þá stað- reynd, heldur segi okkur, að móðir hans hafi verið einstök að gáfum, réttlætistilfinningu, andrík eða indæl manneskja. Þetta þýðir þá, að maðurinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.