Úrval - 01.10.1954, Síða 37
GETUR LJÓSMYND VERIÐ LISTAVERK ?
35
línanna gera fletina lifandi (eins
og t. d. í forgrunninum til
hægri). Það er óskemmtilegt að
þurfa að skrifa svona um sitt
eigið verk, en hjá því verður
ekki komizt. Um ljósmynd Ros-
enbergs vil ég að sjálfsögðu ekk-
ert segja. Ég hef séð margar
ljómandi fallegar og smekkleg-
ar myndir eftir hann.
Og nú skulum við hugsa okk-
ur að við ætlum að gera tilraun.
Við gerum ráð fyrir að þú farir
með Rosenberg upp í Ráðhús-
turninn og hafir meðferðis
samskonar myndavél og hann.
Þegar hann er búinn að taka
mynd sína af mótífinu, tekur þú
þér sömu stöðu og hann og bein-
ir myndavél þinni á nákvæm-
lega sama mótíf. Þú hefur jafn-
stórt ljósop og tekur myndina á
jafnlöngum tíma og hann — þá
færð þú mynd, sem er nákvæm-
lega eins og mynd hans, ef til
vill að því undanskildu, að hægt
er að klippa myndirnar til á ólík-
an hátt. Er þetta það sem kall-
að er myndbygging, þegar um
ljósmynd er að ræða?
Gerum svo ráð fyrir, að þú
búir þig út með samskonar á-
höld og ég hafði — teiknipapp-
írsörk, blýant, koparplötu og
ætinál. Þú tekur þér stöðu á
sama stað og ég, tíminn skiptir
ekki máli. Þú vinnur þangað til
þér finnst viðunandi árangur
fenginn. Það væri fróðlegt að fá
að sjá þann árangur. Þér tókst
svo vel með ljósmyndavélina.
Verður hann einnig í þetta skipti
mynd, sem talizt getur bera nafn
með rétti ? Að minnsta kosti
hlýtur árangurinn bæði í heild
og einstökum atriðum að verða
gjörólíkur því, sem var hjá mér.
Já, ekki aðeins ólíkur, hann hlýt-
ur að leiða í ljós, að við erum
tveir einstaklingar með ólíkar
tilfinningar, skilning og skap-
gerð. Aftur á móti leiddi Ijós-
myndin ekkert slíkt í ljós. Ljós-
myndir ykkar geta verið bæði
fallegar og smekklegar, — en
góður smekkur og list er ekki
eitt og hið sama. Um hinar
myndirnar — teikningarnar —
er það að segja, að það skiptir
engu máli hvort þær eru góðar
eða vondar, hvort heldur sem er
spegla þær eitthvað persónulegt
og einstaklingsbundið.
Látum því það sem við al-
mennt köllum list — og á ég
þá ekki aðeins við olíumálverk
— vera lélega list eða meistara-
verk eftir ástæðum -— og látum
ljósmyndirnar vera lélegar eða
meistaralegar eftir því sem efni
standa til.
Þeir tímar voru þegar ýmsir
mátu listamennina lítils. Nú
virðist listamannsheitið orðið
eftirsótt, eins og sjá má af því,
að hattarar, klæðskerar, hár-
skerar, skósmiðir, knattspyrnu-
menn og margir fleiri hafa til-
einkað sér listamannsheitið.*)
Því ekki að halda áfram á
*) Iðnaðarmenn þessir kallast nú
á sænsku hattknostnarer, kládkonst-
narer, hárkonstnárer, skokonstnárer
og fotbollkonstnárer.
B*