Úrval - 01.10.1954, Síða 51
STAÐA LlFSINS 1 ALHEIMINUM
49
með sjálfshvötun, mætti búast
við því að til væru lífverur allt
öðruvísi að efnasamsetningu en
þær, sem vér þekkjum nú, svo
að lífið væri ekki bundið við
eggjahvítuefnin ein, heldur
kæmu þar líka til greina mörg
önnur efnasambönd svipaðrar
tegundar, enda þótt eggjahvítu-
samböndin kynnu að vera þar
í miklum meiri hluta.
En svo er annað atriði, sem
virðist ennþá sterkari röksemd
fyrir þessari þróun alls lífs á
jörðinni upp af einni einustu
sameind. Sameindir einföldustu
tegundar svo sem H,0, CO=,
NH:; eru nákvæmlega eins og
spegilmyndir þeirra. En ýmsar
hinna margbrotnari sameinda
eru frábrugðnar spegilmyndum
sínum á sama hátt og hægri
hönd er frábrugðin vinstri hendi,
og þar sem báðar samlokurnar
eru í eðli sínu jafnvaranlegar,
er gerður greinarmunur á
,,hægrihandarmynd“og „vinstri-
handarmynd“ sameinda. Séu
þesskonar sameindir búnar til
með efnatengingu (synthesis)
úr einfaldari sameindum, eins og
til að mynda H,,0, þá kemur
fram jafnmikið af hægrihandar-
og vinstrihandarmyndum, þar
sem engum orsökum getur verið
til að dreifa, sem myndu ívilna
annarri tegundinni umfram
hina.
Um efnasamböndin í líkömum
jurta og dýra er hinsvegar það
að segja, að í þeim eru hægri-
handar- og vinstrihandarsam-
eindir nærri því alltaf mismarg-
ar. I mörgum þessara efnasam-
banda kemur meira að segja
ekki fyrir nema önnur gerðin.
Hvernig stendur nú á þessari
undarlegu ósamsvörun í gerð
lífefnasameindanna ? Þessi stað-
reynd, — ein af grundvallar-
staðreyndum lífefnafræðinnar
—, er í raun og veru svo kyn-
leg, að tilraunir til að skýra hana
er varla að finna í því, sem um
þetta hefur verið ritað (að und-
antekinni þeirri, sem hér skal
drepið á), því að ein slík til-
raun áður fram komin er auð-
sjáanlega út í hött. Eina skýr-
ingin, sem til mála getur kom-
ið, er sú, að hér sé að ræða úm
afleiðingu atburðar, er gerðist
í smáheimi efniseindanna
fyrir langalöngu. Nánar tiltekið
yrði þá að gera ráð fyrir, að
eggjahvítusambönd þau, er til
urðu fyrir áðurnefnda „frum-
kviknun", hafi haft þessa ósam-
svörun til að bera. En þá verð-
ur ekki heldur komizt hjá þeirri
tilgátu, að þau séu öll komin af
einni og sömu sameind. Hefði
þessi upphaflega sjálfsmyndun
farið þannig fram, að marg-
ar eggjahvítusameindir hefðu
myndazt samtímis samkvæmt
lögmálum f jöleinda-eðlisfræð-
innar (með „makrófysikölskum"
hætti), þá hlytu líka hægri-
handar- og vinstrihandarmynd-
anir að hafa orðið nokkurnveg-
inn jafnmargar. Hafi hinsvegar
aðeins verið um eina „sameinda-
móður“ að ræða, er síðan hafi