Úrval - 01.10.1954, Side 66

Úrval - 01.10.1954, Side 66
64 ■tfRVAL staklinga, sem voru betur sett- ir en hann, hinum dulvitaða ótta hans, sem seinna átti eftir að leiða hörmungar yfir milljónir manna. Að ýmsu leyti mun hann þó hafa breytzt. Upphaflega var hann t. d. eldheitur friðarsinni, svo ótrúlegt sem það kann að virðast. „Hann lærði aldrei að sætta sig við hlutskipti sitt,“ segir Kubizek í bók sinni, „hann vildi það ekki. Hitler áleit, að sá sem slægi af, fyrirgerði um leið rétti sínum til að lifa. Fyrstu frnidir. „Hve þreyttur sem ég var eft- ir vinnu mína á verkstæði föður míns, gat ekkert aftrað mér frá að fara í leikhúsið á kvöldin,“ skrifar Kubizek. „Ég hafði stæði og tók mér oftast stöðu upp við aðra súluna, sem bar uppi kon- ungsstúkuna. Þar bæði sást og heyrðist bezt.En upp á síðkastið hafði ég tekið eftir, að hægri súlan var jafnan upptekin þegar ég kom. Ég virti hálfgramur fyr- ir mér þennan keppinaut um bezta stæðið. Hann var til- takanlega fölur og magur og virtist vera á aldur við mig. Hann fylgdist með sýningunni af brennandi áhuga. Ég gerði ráð fyrir að hann væri frá heldri- mannaheimili, því að hann var alltaf snyrtilega klæddur og fá- skiptinn. I einu hléi tókum við tal saman um óperuna, og kom- umst að raun um, að skoðanir okkar voru mjög á einn veg. Þetta var upphafið að vináttu okkar. Ég komst að raun um, að hann hafði alltaf nægan tíma og spurði hann hvort hann hefði ekki atvinnu. „Auðvitað ekki,“ svaraði hann stuttaralega, og ég skildí, að hann hafði ekki hug á neinu venjulegu starfi. Hann stefndi hærra. Mig furðaði á skoðunumhans á ýmsummálum, en varaðist að spyrja, því að ég tók eftir að hann móðgaðist af spurningum, sem voru honum ekki að skapi. I stað þess ræddum við um óperuna „Lohengrin“, sem við vorum báðir mjög hrifnir af. Þegar ég vék talinu að skóla- göngu,varð ég í fyrsta skiptivar við skapofsa hans. Hann kærði sig ekki um að ganga í skóla, sagði hann. Hann hataði kenn- arana og var hættur að heilsa þeim. Skólafélaga sína hataði hann einnig. Fjölskyldu sína. tal- aði hann sjaldan um, en sagði að hyggilegast væri að eiga sem minnst saman að sælda við full- orðið fólk. Það hefði svo und- arlegar skoðanir og gæti koll- varpað ráðagerðum manns. Mér virtist sem honum væri lítið um alla ættingja sína gefið nema móðurina. Ég var hæglátur og aðgerðar- lítill að eðlisfari, nánast dreym- inn, en Adolf var ákafamaður og fullur skapofsa. Hann gat rokið upp út af smámunum, og var ofsinn oftast ekki í neinu hlutfalli við tilefnið. Mér varð brátt ljóst, að ef vinátta okkar ætti að vara, yrði ég að vera
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.