Úrval - 01.10.1954, Page 93

Úrval - 01.10.1954, Page 93
ANTON TJEKOV 91 innra, og skellti skolleyrum við því sem einir væntu af honum og aðrir, þeir sem stórbrotnari voru, kröfðust af honum. Hon- um leiddist að ræða um „háleit efni“, en þessháttar orðræðu á- stundar hinn velmeinti Rússi af miklum skaphita, óminnugur þess að það er engan veginn andríkt, heldur hlálegt, að fjöl- yrða um flónelsklæði framtíðar- innar, þegar maður á ekki einu sinni sómasamlegar brækur til að ganga í. Af aðdáunarverðu látleysi elskaði hann allt sem látlaust var, satt og einlægt, og það bjó eitthvað í honum sem knúði aðra til að vera þeir sjálfir. Dag einn komu þrjár glys- klæddar konur í heimsókn til hans. Eftir að hafa fyllt her- bergið með skrjáfi silkipilsa sinna og sterkri ilmandalykt, settust þær með viðhöfn and- spænis gestgjafa sínum, létust gagnteknar af pólitískum á- huga, og byrjuðu að „bera fram spurningar". „Anton Pavlovits! Hvernig haldið þér að stríðinu ljúki?“ Hann hóstaði, velti vöngum, og svaraði alvörugefinn blíðri röddu: „Líklega með friði . . .“ „Já auðvitað. En hvor skyldi sigra, Grikkir eða Tyrkir?“ „Ég hugsa að sá sterkari verði ofaná.“ „En hvor þeirra er sterkari að yðar dómi?“ spurðu konurn- ar af ákafa. „Sá sem nýtur betri menntun- ar og etur betri mat.“ „Ah! Hvílíkt andríki!“ kvein- aði ein þeirra. „En hvorn metið þér meira Grikkjann eða Tyrkjann?" spurði önnur. „Ég met . . . ávaxtakökur mikils . . . En þið ? Þykir ykkur þær góðar?“ „Afskaplega!" hrópaði konan uppyfir sig. „Þær ilma svo!“ staðhæfði önnur alvarlega. Og síðan upphófst fjörugt samtal um ávaxtakökur; það kom í ljós að konurnar ger- þekktu þetta efni og kunnu að tala aðdáanlega um það. Þær voru bersýnilega lifandi fegnar að þurfa ekki að þreyta anda sinn með tilhæfulausum áhuga á Grikkjum og Tyrkjum, sem þær höfðu vissulega aldrei hugsað um fram að þessu. Þegar þær fóru, sögðu þær glaðlega við Anton Pavlovits. „Við skulum aldeilis senda yður ávaxtakökur.“ „Þetta var skemmtilegt sam- tal,“ sagði ég eftir á. Anton Pavlovits hló lítillega og sagði: „Það verða allir að við hafa eigið tungutak." I annað skipti hitti ég hjá honum ungan lögfræðing, iðandi af lífi. Hann stóð frammi fyrir Tjekov, hristi hrokkinkollinn og talaði af miklu f jöri: „Saga yðar Illgerðarmaður færir upp í hendur mínar, Anton
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.