Úrval - 01.10.1954, Side 100

Úrval - 01.10.1954, Side 100
98 ÚRVAL Alla sína æskukrafta offraði hann þessu gleðisnauða sýsli, og það er undravert hvernig hann gat varðveitt kírnni sína. Lífið var honum einungis vanabundin löngun eftir saðningu og hvíld; fyrir honum duldust hinir miklu harmleikar lífsins undir möru grás hversdagsleika. Og það er ekki fyrr en hann hefur létt ögn af sér angrinu við að sjá umhverfis sig vel nært fólk, að hann getur íhugað af skarp- skyggni kjarna þessara harm- leikja. Ég hef aldrei kynnzt manni sem skynjaði jafn djúpt og sterkt og Anton Pavlovits þýð- ingu starfsins fyrir alla menn- ingu. Smæstu atriði heimilislífs hans staðfestu þetta, hvernig hann valdi sér hluti og hve vænt honum þótti um þá; í því fólst engin tilhneiging til söfnunar, heldur hrein aðdáun á verkum mannlegrarhyggju. Honumþótti gaman að byggja, planta garða, prýða jörðina; hann skynjaði skáldskap starfsins. Af hrífandi kostgæfni vakti hann yfir vexti ávaxtatrjánna og runnanna sem hann hafði eigin höndum gróð- ursett í garði sínum. Meðan hann var að byggja húsið sitt í Aloutka, sagði hann: „Ef allir menn gerðu það sem þeir gætu á jarðskikanum sínum, en hve hnötturinn okkar yrði þá fallegur!“ Hann minntist sjaldan á verk sín, og ávallt þvert um hug sinn, næstum sneyptur og ef til vill af jafn mikilli varfærni og þeg- ar hann talaði um Leo Tolstoj. Einstöku sinnum, á miklum gleðistundum, sagði hann frá efni nýrrar sögu — það var ætíð gamansaga . . . Um leikrit sín talaði hann eins og káta gamanleiki, og ég held hann hafi verið sannfærður um að hann skrifaði í raun og veru gamanleiki. Þegar hann brosti, urðu augu hans einstaklega fögur, ástúð- leg og blíð eins og konuaugu. Og hlátur hans, næstum hljóm- laus, var líka furðulega fagur. Þegar hann hló, virtist hlátur hans bregða á leik, hann fagn- aði. Ég hef engan þekkt sem gat hlegið svo — hvernig ætti ég að orða það — svo andríkt. E. H. pýddi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.