Úrval - 01.10.1954, Síða 106

Úrval - 01.10.1954, Síða 106
104 ÚRVAL „Segðu ekki þetta,“ hvíslaði hann. Hann horfði í óttaslegin augu hennar, kyssti hana og talaði alúðlega við hana, og hún varð smámsaman rólegri. Hún varð aftur hamingjusöm og þau fóru bæði að hlæja. Seinna, þegar þau fóru út, sást ekki nokkur sál á strand- götunni; borgin með kýprus- trjánum var eins og dauðra manna gröf, en brimið svarraði enn við ströndina; bátur vagg- aði á öldunum; og það brá fyr- ir daufum glampa frá ljóskeri hans. Þau náðu sér í vagn og óku til Oreanda. „Ég sá ættarnafnið þitt í gestabókinni,“ sagði Gomov. „Það er von Didenitz. Er maðurinn þinn þýzkur?“ „Nei. Ég held að afi hans hafi verið Þjóðverji, en hann er rétttrúaður Rússi.“ I Oreanda settust þau á bekk skammt frá kirkjunni og horfðu út á sjóinn. Það var varla hægt að greina Yalta gegnum morg- unþokuna. Hæðirnar voru hjúp- aðar hvítri, hreyfingarlausri skýjaslæðu. Lauf trjánna bærð- ist ekki og tilbreytingarlaus nið- ur hafsins við ströndina hjalaði urn hvíld, hinn eilífa svefn, sem bíður okkar. Þannig gnauðaði hafið áður en Yalta og Oreanda urðu til, og þannig mun það svarra og gnauða, drungalega og afskiptalaust, þegar við er- um horfin. Þegar Gomov sat við hliðina á ungu konunni, sem var svo falleg í morgunljómanum, sæll og töfraður af fegurð út- sýnisins, hafinu, fjöllunum og skýjunum, fór hann að hugsa nm hve allt á jörðinni væri í raun og veru fagurt, allt nema það sem við sjálf hugsum og gerum, þegar við gleymum æðri markmiðum lífsins og mann- legri reisn okkar. Það kom maður til þeirra — strandvörður — leit á þau, hvarf síðan á brott. Hann virt- ist líka vera eins og í leiðslu. „Það er dögg á grasinu," sagði Anna Sergueyevna eftir dálitla þögn. „Já. Það er kominn tími til að halda heim.“ Þau fóru aftur til borgarinn- ar. Eftir þetta hittust þau á hverjum degi á strandgötunni, borðuðu saman, fóru í göngu- ferðir og nutu þess að horfa á hafið. Hún kvartaði yfir því að hún svæfi illa og hefði mikinn hjartslátt. Hún spurði sömu spurninganna aftur og aftur, stundum kvaldist hún af af- brýðissemi, stundum var hún hrædd um að honum hætti að þykja vænt um hana. Oft, þegar þau voru stödd á torginu eða í skemmtigarðinum, og eng- inn var nærstaddur, faðmaði hann hana að sér og kyssti hana ákaft. Hann sagði Önnu Sergu- eyevnu hve yndisleg og freist- andi hún væri. Ást hans var heit og ofsafengin og þau voru sam-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.