Úrval - 01.02.1955, Page 22

Úrval - 01.02.1955, Page 22
Þúsund króna seðillinn. Smásaga eftir Kelvin Lindemann. MARGARETA ABELIN stóð andartak úti við gluggann og andaði að sér gróðurilminum úr Lindingögarðinum. Stórar, þungar, rauðar rósir héngu í klösum á veggnum í skini síð- sumarsólarinnar. Síðan vætti hún eyrnarsneplana og brjóstið með ilmvatninu, sem hún hafði notað alla tíð frá því að hún giftist. Það var koparbrúð- kaupsdagurinn hennar í dag, hún var búin að vera gift í tólf og hálft ár. Kristófer Abelin, maður hennar, hafði verið kallaður á fund í f jármálaráðuneytinu. Það þurfti að ræða ýmis atriði í sambandi við útgáfu nýju seðl- anna. Hún hafði verið ein allan daginn og allt kvöldið. Hún tók blöðin, sem vinnu- stúlkan hafði lagt á bakkann með ávaxtasafanum og kexinu, smeygði sér upp í rúmið og leitaði að stöð með lágum jazzi á útvarpstækinu. Hún lét blöð- in liggja á silkiábreiðunni. Þau birtu öll sömu myndina, sem hún hafði skoðað þar til hún kunni hvert strik og hvern depil utan að. Hún lét augun reika um stóra, fallega svefn- herbergið, þar sem hún hafði átt svo margar hamingjustundir og orðið svo oft fyrir vonbrigð- um í öll þessi ár. Hafði hún brotið mikið af sér ? Hún vissi það ekki sjálf. En hún mundi ekki taka það nærri sér þó að Kristófer óskaði eftir skilnaði. Hún hafði frá upphafi gert sér grein fyrir skyldum sínum gagnvart gamla bank- anum, þar sem hann var banka- stjóri. Fimta kynslóðin. Auk þess var óhugsandi að Kristófer Abelin — „Ekkja Abelins og sonur“ — mundi sætta sig við að vera gerður að athlægi. Já, það var ekki fyrr en nú (þegar það var orðið of seint), að Margareta gerði sér fullkom- lega ljóst, hve viðsjárverður verknaður hennar var. * Það voru tvö ár síðan. Hún hafði tekið þátt í hinni árlegu skemmtiferð með starfstúlkum bankans. Þær höfðu skemmt sér ljómandi vel. Lítill gufubátur hafði beðið ferðbúinn og fimm- tíu sumarklæddar stúlkur höfðu safnast saman á bryggjunni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.