Bænavikan - 04.11.1972, Qupperneq 6

Bænavikan - 04.11.1972, Qupperneq 6
okkar nánustu fjölskyldu munu taka eftir, að eitthvað dásam- legt hefur gerzt með okkur. „Við þurfum að helgast af hinum Heilaga Anda sérhverja stund dagsins, til þess að við lendum ekki í snöru óvinarins og sálum okkar sé stefnt í hættu.“ Andinn og bænalíf okkar Heilagur Andi rækir þýðingarmikinn þátt í bænalífi okkar. Þetta hlutverk er lífsnauðsynlegt mikilvægi til þess að við getum höndlað þann andlega þroska, sem við þráum og Guð vill okkur til handa. „Heilagur Andi hjálpar oss við dagleg vandamál vor í bænalífi voru. Vér vitum jafnvel eigi, hvers vér ættum að biðja, né, hvernig vér ættum að biðja; en hinn Heilagi Andi biður fyrir oss af slíkri tilfinningu, að slíkt verður eigi í orðum tjáð. Og Faðirinn, sem þekkir öll hjörtu, skilur auðvitað, hvað Andinn er að segja, er hann þrábiður fyrir vora hönd í samræmi við Guðs eigin vilja.“ Ef til vill hafa þær stundir komið, þegar þú varst þreyttur, þegar þú reyndist andlega dapur, þegar uppreisnarandi gróf ef til vill um sig í hjarta þínu. Þú varst ekki í skapi til að biðja. Ef til vill var það af skyldubundinni vanaskynjun að þú kraupst á kné og reyndir að biðja. En þarna, flatur frammi fyrir Drottni, varð stríð þitt undarlega að engu. Ljúfur friður yfirskyggði þig. Þú fannst, að þú sjálfur og Skapari þinn voru eitt. Þetta var verk Heilags Anda, sem undirbjó þig til að tala við Guð. Svo, þegar haltrandi, stuldrandi orðin liðu þér af vörum, tók Heilagur Andi þau og þýddi þau á tungumál himinsins. Þannig „hjálpar Heilagur Andi í daglegum vandamálum okkar og bænagjörð.“ Hversu dásamleg reynsla — hinn kraftþrungni Andi Guðs að verki í lífi okkar! Andinn og trúin Eitt mestu vandamála minna sem kristins manns var að vera viss um að Guð hefði virkilega fyrirgefið syndir mínar. Skuggaleg mistök mín frá liðnum tíma ruddust stöðugt inn á friðarsvið vitundar minnar. Þá var það dag nokkurn, að guðhræddur biblíukennari minn las mér þessi innblásnu orð: „Þú hefur játað syndir þínar og í hjarta þínu vikið þeim á burt. 4

x

Bænavikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.