Læknaneminn - 01.09.1969, Blaðsíða 51
LÆKNANEMINN
um hinn vestræna heim. Hinir
læknarnir koma frá ýmsum lönd-
um heims.
Þannig er í landinu aðeins einn
læknir á um 70 þús. íbúa, og þar
sem um það bil helmingur lækn-
anna starfar í Addis Ababa, getur
maður rétt ímyndað sér, hvílíkt
neyðarástand ríkir í þessum mál-
um víðast hvar um landið.
600 hjúkrunarkonur muna vera
í landinu, og starfræktir eru 5
hjúkrunarkvennaskólar.
f öllu ríkinu eru um 8000 sjúkra-
rúm, og um þriðjungur þeirra er
í Addis, en þar eru nokkur allvel
búin sjúkrahús. Eitt hið elzta er
rússneskt, og þar starfa eingöngu
rússneskir læknar.
Nú eru í byggingu í höfuðborg-
inni tvö allstór sjúkrahús, sem
byggð eru og útbúin samkvæmt
nýjustu kröfum, með samanlagt
um 1000 rúmum. Annað þessara
sjúkrahúsa er byggt af Ethiopiska
ríkinu og hitt fyrir gjafafé frá
Vestur-Þýzkalandi. Erfitt verður
að manna þessi sjúkrahús, nema
með hjálp erlendis frá.
Á síðustu árum hefir verið unn-
ið markvisst að uppbyggingu
heilbrigðismála og annarra jajóð-
þrifamála í landinu og miklu ver-
ið áorkað, þó t. d. megi segja, að
enn sé staðið á byrjunarstigi.
Margar af hinum svokölluðu þró-
uðu þjóðum heims hafa lagt þar
hönd á plóginn.
Meðalaldur Ethiopiumanna í
dag er ekki hærri en um 35 ár.
Ungbarnadauði er um 200%, á
sumum landssvæðum allt að 5—
600?A- Fæðingartalan í þessu
Afríkuríki er heldur lág, eða um
35 á 1000 íbúa. Þetta er álitið stafa
af ófrjósemi vegna hinna mjög út-
breiddu kynsjúkdóma, en um 50%
fullorðinna munu þjást af syphilis
og annað eins af gonorrhoea.
J,5
Læknisfræðilega séð er Ethiop-
ia enn óplægður akur, þar sem bíða
úrlausnar óþrjótandi læknisfræði-
leg rannsóknarefni, og fólkið bíð-
ur lækninga. Fólk, sem haldið er
alls kyns kvillum, mörgum hverj-
um er okkur hefir algjörlega eða
nær algjörlega tekizt að útrýma,
svo og mörgum þeim sjúkdómum,
er við enn glímum við. Á slíkum
stað verða kennslubækurnar lif-
andi.
Um það bil 70% allra sjúkdóma
í Ethiopiu eru smitandi sjúkdóm-
ar, sem hægt væri að koma í veg
fyrir með ýmsum almennum ráð-
um, svo sem umbótum á sviði
vatnsveitumála, byggingu hol-
ræsakerfa, útrýmingu skordýra,
almennri fræðslu í heilbrigðismál-
um o. s. frv.
Kwashiorkor.